SÍBS blaðið - 01.10.2001, Síða 34

SÍBS blaðið - 01.10.2001, Síða 34
34 SÍBS er aðili að norrænum samtökum hjarta- og lungnasamtaka sem nefnast: „Nordiska Hjärt- och Lungsjukas Förbund - NHL“. Auk Íslands eiga Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Finnland aðild að samtökunum. NHL kemur saman til fundar einu sinni á ári og skiptast þjóðirnar á að halda fundina. Síðasti stjórnarfundur NHL var haldinn hér á landi laugardaginn 1. september sl. í Rúgbrauðsgerð- inni, Borgartúni 6. Í tengslum við fundinn var haldinn vinnufundur sem byrjaði seinni part föstudags 31. ágúst og stóð fram eftir degi 1. september. Gert var ráð fyrir þremur kjörnum fulltrúum frá hverju landi á stjórnarfundinn en fimm fulltrúum á vinnufundinn. Á vinnufund- inum var fjallað sérstaklega um framtíð og möguleika ungs fólks með hjarta- og lungna- sjúkdóma og hvernig hægt væri að koma til móts við þarfir þess. Hans Jakob Beck fjallaði um framtíðina út frá læknisfræðilegu sjónar- miði. Þá fjallaði Hanna Knapp um aðstæður ungs fólks með hjartasjúkdóma á Norður- löndum og Elin Kristiansen um aðstæður og framtíð ungs fólks með lungnasjúkdóma á Norðurlöndum. Á stjórnarfundinum báru menn saman bækur sínar og skiptust á upplýsingum um helstu verkefni aðildarfélaganna. Fulltrúar SÍBS á aðalfundinum voru Haukur Þórðarson, Kolbrún Ragnarsdóttir og Pétur Bjarnason. Sömu fulltrúar sátu vinnufundinn auk Helga Hróðmarssonar, en Sveinn Indriða- son forfallaðist sökum veikinda. Norrænu gestirnir undu hag sínum vel hér á landi og notuðu tækifærið og skoðuðu sig um á sunnudeginum. Það er von SÍBS að þessi fundur hafi verið hvatning til að sinna í framtíðinni enn betur þjónustu við fólk með hjarta- og lungnasjúkdóma en gert hefur verið og þá sérstaklega ungt fólk. P.B. Norrænn fundur hjarta- og lungnasamtaka á Íslandi Gestunum var bo›i› í göngufer› um Vi›ey og mat á eftir. El in Krist iansen frá Noregi og Hanna Knapp frá Svífljó› fjöl lu›u um málefni ungra hjarta- og lungnasjúklinga á Nor›urlöndum. Til hægr sést í formann NHL, Svein Erik Myrseth frá Noregi. Leita›u tilbo›a í lyfin flín Landssamtök hjartasjúklinga hafa í gegn um tíðina mótmælt hækkunum sem orðið hafa á lyfjum. Vísað er til þess að margir hjarta- sjúklingar eru mjög háðir lyfjum sínum sem þeir verði jafnvel að taka til æfiloka. Samtökin hafa ráðlagt sjúklingum að leita verðtilboða hjá apótekunum vegna lyfja sem þeir taka að staðaldri og versla síðan við það apótek sem býður því „pakkann“ á lægsta verði. Þetta er nokkuð sem margir hafa ekki áttað sig á. Fólk fer bara í næsta apótek og leysir út lyfin sín. Okkar ráð til sjúklinga er að skoða hver býður best. Þetta getur skipt fólk miklu máli fjárhags- lega, ekki síst í ljósi þróunar lyfjaverðs. Þess má geta að þau fjögur lyf sem undir- ritaður notar, hjartalyf, æðaútvíkkandi lyf, blóðfitulækkandi lyf og tungurótartöflur hækkuðu að meðaltali um 47 % frá árinu 1999 til 2000. Ásgeir Þór Árnason, - LHS

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.