SÍBS blaðið - 01.11.2006, Side 4
4
Dagana 20. – 21. október sl. var 35. þing SÍBS
haldið að Reykjalundi. Áður en þingið hófst,
en í tengslum við það, var haldin ráðstefna á
Hótel Sögu um gildi hreyfingar og er henni
gerð skil hér á öðrum stað í blaðinu.
Þinghald hófst á Reykjalundi klukkan um
17:00. Formaður SÍBS, Sigurður Rúnar Sig-
urjónsson setti þingið og minntist Hauks Þórð-
arsonar fyrrverandi formanns SÍBS og yfir-
læknis á Reykjalundi um langt árabil, en hann
lést 4. okt. sl.
35. þing SÍBS
Formaðurinn sagði um störf þingsins framund-
an:
,,Fyrir þessu þingi liggja mörg verkefni svo sem
venja er til, en þó má segja að óvenju mikil
vinna hafi farið fram frá síðasta þingi vegna
þeirrar stöðu sem þá kom upp, að öllum til-
lögum til lagabreytinga var vísað frá og efnt til
rækilegrar vinnslu á þeim milli þinga. Sú vinna
hefur staðið allt tímabilið og hefur einkum fal-
ist í þrennu:
Skipulagshópur var settur á fót með þátttöku
Sigurður Rúnar Sigurjónsson, formaður stjórnar SÍBS
setur þingið.
fólks úr félagsdeildum og stjórn undir stjórn
Sólveigar Ólafsdóttur. Hópurinn vann áfram að
breytingu á lögum og skipulagi sambandsins og
kynnti tillögur á aukaþingi fyrir tæpu ári.
Laga- og skipulagsnefnd hefur unnið úr þessum
niðurstöðum frá því í vor og lagt í það mikla
vinnu.
Að lokum má geta þess að hópur háskólanema
í mastersnámi við Háskóla Íslands vann undir
stjórn Auðar Ólafsdóttur tillögur að stefnumót-
un fyrir SÍBS sem hafðar hafa verið til hlið-
sjónar í þessu ferli.
Samhliða þessu hefur verið lagt kapp á að
kynna þessa vinnu og tillögur til lagabreytinga
fyrir félagsdeildum. Nú verða þessi störf lögð í
dóm þingsins til umræðu og afgreiðslu”.
Haraldur Finnsson og Pétur Bjarnason vortu
síðan skipaðir þingforsetar og Jón Benediktsson
og Sólrún Óskarsdóttir þingritarar.
Á föstudeginum voru reikningar, skýrslur félaga
og stofnana lagðar fram og mælt fyrir þeim en
fundi síðan frestað.
Á laugardeginum voru umræður um skýrsl-
urnar og reikninga, sem síðan voru afgreidd en
þá tók við meginefni þigsins, þ.e. lagabreyt-
ingar og skipulagsbreytingar þeim tengdar. Tók
sú umræða allan daginn og voru tillögur til
lagabreytinga síðan samþykktar lítið breyttar
Haraldur Finnsson, annar þingforseta í ræðustól.
Þingfulltrúar yfir pappírum sínum.
Þingfulltrúar söfnuðust saman utandyra ti l myndatöku
í góða veðrinu meðan stutt hlé varð á þinghaldinu.
F
r
á
S
ÍB
S