SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 3
SÍBS BLAÐIÐ 2015/1 3
Leiðari
SÍBS-Blaðið
31. árgangur | 1. tölublað | FEB. 2015
ISSN 1670-0031
Úgefandi:
SÍBS
Síðumúla 6
108 Reykjavík
Sími: 560-4800
Netfang: sibs@sibs.is
Heimasíða: www.sibs.is
Ábyrgðarmaður:
Guðmundur Löve
gudmundur@sibs.is
Ritstjóri:
Páll Kristinn Pálsson
pallkristinnpalsson@gmail.com
auglýsingar:
Öflun ehf.
Umbrot og prentun:
Prentmet ehf.
Upplag: 11.000 eintök
Berklavörn
SÍBS er samband félaga á sviði
brjóst holssjúkdóma með um sex
þúsund félagsmenn. SÍBS á og rekur
endurhæfingar miðstöð ina Reykja lund
og öryrkjavinnu staðinn Múlalund,
að ógleymdu Happdrætti SÍBS.
3 Heilbrigði einstaklings
– hagur samfélags
4 Stóra myndin
í heilbrigðismálum
8 Örorka og
örorkumat
11 Skilgreiningar á örorku
14 Mannréttindi
víða brotin
16 Starfsgetumat í stað
örorkumats
22 Virkjum hæfileikana -
alla hæfileikana
Örorka er safnheiti yfir líkamlega hömlun
og erfiðleika við að framkvæma verk eða
taka þátt í daglegu lífi. Örorka er flókið
fyrirbæri sem lýsir samspili einstaklings-
ins við samfélagið þar sem hann býr. Án
þess að fara hér orðum um þá þjáningu
sem örorka veldur einstaklingnum, blasir
við að það er stórkostlegt samfélagslegt
hagsmunamál að draga úr örorku eins
og kostur er.
Í okkar heimshluta fer örorka víðast
hvar vaxandi. Hér á landi hefur örorku-
lífeyrisþegum fjölgað þrefalt hraðar en
fólksfjölgun þjóðarinnar síðastliðin 15 ár
og eru nú rúmlega 17 þúsund talsins.
Þegar Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO)
mælir örorku samkvæmt framangreindri
skilgreiningu kemst stofnunin að raun um
að á Íslandi er árlega samtals 35 þúsund
æviárum varið við örorku. Til að leggja
gróft mat á samfélagslegan skaða vegna
örorku má margfalda þessi æviár með
landsframleiðslu á mann. Það gera 200
milljarða króna á ári.
Stærstu orsakavaldar örorku skv. WHO
eru geðraskanir og stoðkerfissjúkdómar
ásamt langvinnum öndunarfærasjúk-
dómum. Mælt í æviárum eru þessir þrír
örorkuvaldar að valda svipuðum skaða
og stóru drápararnir tveir, krabbamein og
hjarta- og æðasjúkdómar.
Samkvæmt WHO eru fimm stærstu
áhættuþættir örorku hjá Íslendingum
ofþyngd, starfstengd áhætta, slæmt
mataræði, reykingar og hár blóðsykur.
Háþrýstingur, áfengis- og vímuefna-
neysla og hreyfingarleysi eru svo ekki
langt undan. Það má eiginlega segja að
flestir lifnaðarhættir okkar séu hér undir.
En hvað er heilbrigðiskerfið að gera í
málunum? Það vekur athygli að af 140
milljörðum króna sem árlega er varið til
heilbrigðismála er langsamlega stærstum
hluta þessa fjár varið til að bregðast við
skaðanum en aðeins um 4 milljörðum til
að koma í veg fyrir skaðann – og þar af
aðeins 0,5 milljörðum króna til beinna
forvarna utan heilsugæslu.
Langvinnir og lífsstílstengdir sjúkdómar
og örorkan þar með verða ekki stöðvuð
með viðbragðsdrifnum aðgerðum. Þetta
eru sjúkdómar sem læðast aftan að
okkur og oft bregðumst við ekki við fyrr
en það er um seinan og skerðing blasir
við. Við þurfum því sterka og samhæfða
– og vel fjármagnaða – forvarnastefnu
þar sem áhersla er lögð á snemmbær
inngrip í öllu nærumhverfi fólks, dæmi:
Það þarf að koma á sykurgjaldi á óholla
matvöru rétt eins og er með áfengisgjald
og tóbaksgjald. Það þarf að gera ein-
faldara og öruggara að ferðast gangandi
og á hjóli. Það þurfa að vera öruggar
hjólageymslur á vinnustöðum og skólum
og hollur matur í mötuneytunum. Íþrótta-
félögin þurfa að bjóða upp á smurt brauð
og vatn eða mjólk í staðinn fyrir kökur
og gos á íþróttamótum – og fjarlægja
gos- og sælgætissjálfsalana! Það þarf að
kenna skólabörnum að umgangast mat
og lesa innihaldslýsingar. Svona mætti
lengi telja.
Þetta eru bara örfá dæmi um hversu víða
þarf að koma við í samræmdri forvarna-
stefnu. Við þurfum að koma á víðtækri
viðhorfsbreytingu þvert á öll svið þjóð-
félagins – og byrja í grasrótinni.
Heilbrigði einstaklings
– hagur samfélags
Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS