SÍBS blaðið - 01.02.2015, Page 14
SÍBS BLAÐIÐ 2015/114
„Mín vitneskja byggist á þeim skjólstæðingum
sem leita til okkar hjá ÖBÍ og eru örorkulífeyris-
þegar, fólk með skerta starfsgetu,“ segir Ellen
Calmon formaður Öryrkjabandalags Íslands,
þegar spurt er hvernig sé að vera öryrki á Íslandi
í dag. „Þá erum við einkum að tala um fólk sem
þarf að lifa á örorkulífeyri almannatrygginga,
sem er langt fyrir neðan lágmarkslaun. Við not-
umst við viðmið frá velferðarráðuneytinu, sem
er dæmigert neysluviðmið og er í kringum 400
þúsund krónur á mánuði, en okkar fólk er að lifa
á um 150 til 180 þúsund krónum á mánuði. Og
þetta er í landi þar sem leiga á íbúð fer sjaldan
undir 100 þúsund krónur á mánuði. Svo þarf
að kaupa í matinn, og þó að sumir telji að hægt
sé að gera það fyrir einhverja hundraðkalla á
dag fyrir fjögurramanna fjölskyldu þá held ég
nú að það sé ekki raunveruleikinn. Við sjáum
að fólk á einfaldlega mjög erfitt með að komast
af á þessum fjárhagsforsendum, að greiða fyrir
þessi venjulegu útgjöld einnar fjölskyldu eins og
húsnæði, mat, hita og rafmagn.“
Neita sér um læknisþjónustu
„Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að æ fleiri örorku-
lífeyrisþegar neita sér um læknisþjónustu vegna
kostnaðar,“ segir Ellen. „Fólk með skerta starfs-
getu er ýmist fatlað fólk eða fólk sem er með
einhvers konar heilsubrest. Það þarf að nýta sér
heilbrigðisþjónustu í ríkara mæli en margir aðrir.
Kostnaður vegna þessa hefur aukist gríðarlega
á undanförnum árum. Eins og gefur að skilja
fylgir því aukinn kostnaður að vera með skerta
starfsgetu. Hreyfihamlað fólk þarf oft sérút-
búna bíla og ber það stóran kostnað sjálft við
að útbúa bílana svo þeir hæfi þeim. Ríkið tekur
æ minni þátt í slíkum kostnaði. Það er ógerlegt
fyrir fólk með um 180 þúsund krónur í mánaðar-
tekjur að bera alla þessa grundvallarkostnaðar-
liði. Rannsóknir hafa sýnt að þessar tekjur eru
ekki nægar til að framfleyta fólki heldur nýtur
það góðvildar fjölskyldu og vina, sem eru bæði
að bjóða því í mat, greiða jafnvel lyf- og læknis-
þjónustu eða versla fötin á börnin. Rannsóknir
hafa einnig sýnt að fjölskyldur örorkulífeyrisþega
sem eru með börn á framfæri búa við mun lakari
fjárhagsaðstæður og þar með skert frelsi til
að taka þátt í samfélaginu, sem kemur niður á
börnunum.
Staðan var ekki góð fyrir hrunið og ef eitthvað
er þá hefur hún versnað á árunum eftir það. Það
átti sér stað viss kjaragliðnun, lægstu launin í
þjóðfélaginu hækkuðu en ekki örorkulífeyrinn
og því höfum við orðið vör við mun meiri kvíða
og þunglyndi hjá okkar fólki. Ég tek gjarnan
dæmi um konuna sem kom til okkar, þegar ég
var nýtekin við sem formaður haustið 2013, en
hún hafði neitað sér svo lengi um tannlæknis-
þjónustu að ástandið á tönnunum hennar var
þannig að hún gat ekki lengur neytt matar með
nægilegu næringarinnihaldi til þess að halda
heilbrigði. Því var hún með skyrbjúg, sjúkdóm
sem maður hefur bara heyrt um frá fyrri öldum
og hélt að fyrirfyndist ekki á Íslandi árið 2013.
Ég heyri líka frá Mæðrastyrksnefnd og Hjálpar-
starfi kirkjunnar að þunginn hafi aukist gríðar-
lega eftir 2008.“
Brot á grundvallarmannréttindum
„Með tilliti til stjórnarskrárinnar og mannrétt-
indasáttmála Sameinuðu þjóðanna um rétt-
indi fatlaðs fólks um að allir hafi rétt á að lifa
mannsæmandi lífi teljum við að mannréttindi
séu víða brotin í málefnum örorkulífeyrisþega
og fatlaðra hér á landi. Dæmið um túlkaþjón-
ustuna sem kom upp í umræðunni fyrir síðustu
jól, og reyndar einnig árið 2013, sýndi að þar var
klárlega gengið gegn sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi fatlaðs fólks, sem Íslendingar
hafa undirritað en hvorki innleitt né lögfest. Við
bendum líka á það ákvæði í stjórnarskránni sem
kveður á um að allir eigi sama rétt til mann-
sæmandi lífs. Við erum með nokkur mál í gangi
hvað það varðar, þ.e. lögsóknir. Við erum með
lögmann á okkar snærum og erum að sækja á
bæði ríki og borg varðandi ýmis málefni sem
Mannréttindi
víða brotin
Páll Kristinn Pálsson
Viðtal