SÍBS blaðið - 01.02.2015, Page 24
SÍBS BLAÐIÐ 2015/124
af veitt undir merkjum Atvinnudeildar fatlaðra
sem nú er orðinn partur af almennri ráðgjafar-
og vinnumiðlunarþjónustu VMST. Innan þeirrar
þjónustu starfa ráðgjafar sem sérhæfa sig
í þjónustu við þann hóp sem býr við skerta
starfshæfni. Ávallt hefur verið lögð áhersla á
öflugt og faglegt samstarf við endurhæfingar-
aðila og aðra þá þjónustuaðila sem vinna að
því að auka möguleika og aðgengi fólks með
skerta starfshæfni að vinnumarkaði. Í því sam-
bandi má m.a nefna Reykjalund, Hringsjá og
Starfsendurhæfingarmiðstöðvar víða um land.
Samstarfið hefur byggst á góðri samvinnu og
gagnkvæmu trausti þar sem skjólstæðingar fara
frá VMST í starfsendurhæfingu og koma til baka
til Vinnumálastofnunar þegar og ef vinnufærni er
náð á nýjan leik.
Þá hafa ráðgjafar VMST séð um umsóknir á
vernduðu vinnustaðina Múlalund og Örtækni
í áratugi og átt farsælt samstarf við þau mik-
ilvægu fyrirtæki. Til viðbótar má nefna að
Vinnumálastofnun og Múlalundur vinnustofa
SÍBS gerðu þann 23. september síðastliðinn
með sér tímabundið samkomulag um kaup á
starfsprófunarrýmum á Múlalundi fyrir atvinnu-
leitendur með skerta starfsgetu og/eða lang-
tímaatvinnuleitendur. Verkefnið felst í því að fá
raunhæfa starfsprófun fyrir atvinnuleitendur til
að auka möguleika þeirra til atvinnuþátttöku á
almennum vinnumarkaði. Frammistaða er metin
samkvæmt stöðluðu mati í lok matstímans.
Mat á árangri verkefnisins lofar góðu og hefur
ákvörðun um frekara samstarf verið tekin.
Árið 2006 fær Vinnumálastofnun aukið hlutverk
á sviði atvinnutengdrar endurhæfingar með
breytingu á lögum um vinnumarkaðs aðgerðir
sem heimilar VMST að gera samning um
atvinnutengda endurhæfingu við atvinnuleit-
endur í allt að 6 mánuði. Ráðgjafar Vinnumála-
stofnunar fá með þessum breytingum það
lögbundna hlutverk að leggja mat á vinnufærni
og gera samninga um atvinnutengda endur-
hæfingu við þá sem þess þurfa í samstarfi við
endurhæfingaraðila. Þessi breyting á lögum
um vinnumarkaðsaðgerðir var í anda þeirrar
hugmyndafræði sem rutt hafði sér til rúms
þar sem vaxandi áhersla var á réttinn til vinnu
fremur en réttinn til örorku, með snemmbæru
inngripi og áherslu á samhæfingu þjónustunnar
með þverfaglegri teymisvinnu sérfræðinga
sem kæmu að endurhæfingu. Í kjölfar þessarar
breytingar á lögum um vinnumarkaðsaðgerðir
hafa ráðgjafar Vinnumálastofnunar gert u.þ.b.
400 samninga um atvinnutengda endurhæfingu
við atvinnuleitendur.
Frá því þessi breyting var gerð á lögunum um
vinnumarkaðsaðgerðir hefur verið að safnast
upp afar dýrmæt þekking hjá ráðgjöfum VMST
varðandi mat og stuðning við þann hóp sem
veikast stendur og hefur þörf fyrir sértæka þjón-
ustu, sem mun nýtast vel í þeim verkefnum sem
framundan eru.
Áherslur í þjónustu
Vinnumálastofnunar 2015
Á árinu 2014 og í áherslum stofnunarinnar fyrir
árið 2015 hefur verið lögð sérstök áhersla á að
efla þjónustu með einstaklingsmiðaðri nálgun
við þann hóp sem er langt kominn með bóta-
rétt sinn innan Atvinnuleysistryggingasjóðs og
þann hóp sem þegar hefur lokið bótarétti sínum.
Sömuleiðis er aukin áhersla á að efla þjónustu
við atvinnuleitendur með skerta starfshæfni
með einstaklingsmiðaðri þjónustu og áherslu
á árangursríkar leiðir til að sem flestir geti aftur
orðið virkir á vinnumarkaði. Markmiðið er ekki
síst að koma í veg fyrir að atvinnuleysi leiði
til óvinnufærni sem gæti endað í ótímabærri
örorku.
Áhersla er lögð víðtækan stuðning við þá sem
hafa skerta vinnugetu vegna andlegrar og / eða
líkamlegrar fötlunar, aðstoð við að finna rétta
starfið og að veita stuðning á nýjum vinnustað
ef þörf er á. Atvinna með stuðningi (AMS) er
þar árangursrík leið í atvinnumálum fyrir þá sem
þurfa aðstoð við að fá vinnu á almennum vinnu-
markaði og er hún hluti af ráðgjafarþjónustu
stofnunarinnar eins og áður er nefnt.
Í ljósi þessarar áherslu tekur Vinnumálastofnun
þátt í samstarfsverkefni með Öryrkjabandalagi
Íslands og Landssamtökunum Þroskahjálp undir
heitinu „Virkjum hæfileikana – alla hæfileikana“.
Markmið verkefnisins er að stuðla að fjölgun
starfstækifæra fyrir atvinnuleitendur með skerta
starfsgetu. Verkefnið fór af stað í október sl. og
var í byrjun leitað til opinberra stofnana bæði hjá
ríki og sveitarfélögum með kynningu á verkefn-
inu og þeim möguleikum sem það felur í sér.
Vinnumálastofnun opnaði sérstakt vefsvæði
undir heiti verkefnisins þar sem atvinnurekendur
geta skráð inn störf sem hentað gætu mark-
hópnum. Átakinu verður fylgt eftir með frekari
kynningu og aðgerðum á árinu 2015.
Á árinu 2014 fékk Vinnumálastofnun aukið hlut-
verk á svið starfsendurhæfingar þegar stofn-
uninni var falið af velferðarráðuneytinu að efla
samstarf við endurhæfingaraðila og hafa umsjón
með fjármagni til starfsendurhæfingar.
Fjármagninu verður varið í gerð þjónustusamn-
inga við aðila á sviði endurhæfingar og má
þar nefna sem dæmi Hringsjá, Hlutverkasetur,
klúbbinn Geysi, klúbbinn Strók og endur-
hæfingarhúsið Hver. Að auki verður fjármagninu
varið í úrræði fyrir þátttakendur sem ekki eru
tryggðir innan Atvinnuleysistryggingasjóðs.
Þessi breyting á
lögum um vinnu-
markaðsaðgerðir
var í anda þeirrar
hugmyndafræði
sem rutt hafði sér
til rúms þar sem
vaxandi áhersla var
á réttinn til vinnu
fremur en réttinn til
örorku.