SÍBS blaðið - febr 2016, Qupperneq 3
3
1. tbl. 2016Leiðari
Alveg örugglega ekki fyrir börn og unglinga og þar með ekki heldur fyrir foreldra.
Alls ekki fyrir þolendur heimilisofbeldis eða annarra ofbeldisglæpa. Ekki fyrir
fórnarlömb umferðarslysa. Heldur ekki fyrir heilbrigðis- og tryggingakerfið eða
löggæsluna. Þaðan af síður fyrir geðsjúka eða fyrir þá sem eiga á hættu að fá slíkan
sjúkdóm, þar sem áfengisneyslan er stærsti einstaki áhættuþátturinn.
Ef marka má niðurstöður skoðanakannana virðist það að setja áfengi í matvöru-
verslanir helst vera gert fyrir miðaldra karla – sem þá væntanlega hugsa lítið um
aðra en sjálfa sig.
Áfengisneysla er þriðji stærsti greinanlegi áhættuþáttur fyrir heilsubresti
Íslendinga samkvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), annar
stærsti áhættuþáttur geðraskana, fjórði stærsti áhættuþáttur krabbameina, stærsti
áhættuþáttur skorpulifrar og langstærsti áhættuþáttur slysa og áverka sem greina
má sem atferlistengdan.
Fyrir utan það sem hægt er að mæla líkt og ofangreint, hefur áfengisneysla
einnig áhrif á félagslega og þjóðhagslega þætti gegnum fjölskyldur, umhverfi og
vinnustaði. Aukið aðgengi veldur auknu framboði, og aukið framboð eykur neyslu.
Þetta eru hagfræðilegar staðreyndir.
Öllu því sem við gerum í lífinu er stýrt af atferli. Jafnvel það að borða snýst ekki
aðeins um hitaeiningarnar og næringarefnin, heldur líka það hvernig við borðum.
Þetta gildir auðvitað í enn meira mæli um hreyfingu, þar sem atferlið ræður mestu.
VIð getum einnig hlutast til um streituálag og svefn með bættu atferli og samanlagt
þannig haft áhrif á flesta lífsstílstengda áhættuþætti með bætt atferli að vopni.
Áfengisneysla vinnur gegn þessu öllu saman.
Takist Íslendingum að draga úr heilsufarsskaða um 1% næmi sá ávinningur sem
samsvarar 700 mannárum lifað við bætta heilsu og um 4 milljörðum króna á ári,
mælt í landsframleiðslu á mann.
Við verðum að horfa á stóru myndina þegar ákvarðanir sem varða hag og heilsu
heillar þjóðar eru teknar.
Fyrir hverja?
Guðmundur Löve
framkvæmdastjóri SÍBS
SÍBS-blaðið
32. árgangur | 1. tölublað | Feb. 2016
ISSN 1670-0031
Útgefandi: SÍBS
Síðumúla 6
108 Reykjavík
sibs@sibs.is, www.sibs.is
Ábyrgðarmaður: Guðmundur Löve
gudmundur@sibs.is
Ritstjóri: Páll Kristinn Pálsson
pallkristinnpalsson@gmail.com
Auglýsingar: Öflun ehf.
Umbrot og prentun: Prentmet ehf.
Upplag: 11.000 eintök
SÍBS er samband samband
sjúklingafélaga með um
sex þúsund félagsmenn.
SÍBS á og rekur endurhæfingar -
miðstöðina Reykja lund og
öryrkja vinnu staðinn Múlalund,
auk Happdrættis SÍBS.
Efnisyfirlit
3
Fyrir hverja?
4
Jafnvægi í daglegu lífi
8
Þunglyndi
12
Þegar athygli og minni týnast í vanlíðan
16
Enginn leikur sér að því að líða illa
20
Tengsl og samskipti
24
Kvíði
28
Líkamleg þjálfun sem meðferðarform
30
Núvitund