SÍBS blaðið - feb. 2016, Síða 26
26
SÍBS-blaðið
Margir upplifa að kvíðinn
komi án fyrirvara eða eins og
þruma úr heiðskíru lofti.
að því meira sem fólk æfir sig því meiri árangri nær það og
það sem meira er, árangurinn heldur áfram eftir að eiginlegri
meðferð er hætt. Gott er að hafa í huga að hraður hjartsláttur
sem fylgir kvíða er ekki hættulegur þó hann sé óþægilegur og
að vanlíðanin gengur yfir.
Margir aðrir þættir geta stuðlað að betri líðan og dregið úr
kvíða. Nefna má slökun, hugleiðslu og núvitund. Þegar slökun
er notuð á árangursríkan hátt hægist á öndun og hjartslætti,
blóðþrýstingur lækkar og vöðvaspenna minnkar. Með því að
stunda slökun reglulega er hægt að draga úr innri spennu sem
skilar sér í betri andlegri líðan og hjálpar til að takast betur
á við ýmiss konar áreiti og kvíða í daglegu lífi. Aftur á móti
er ekki mælt með að nota slökun í kvíðavekjandi aðstæðum.
Einnig er mikilvægt að skipuleggja tíma sinn vel, nota jákvætt
sjálfstal og hafa reglu á svefni og svefnvenjum. Reglubundin
hreyfing og hollt og gott mataræði skilar sér líka í betri líðan
bæði andlega og líkamlega. Ekki má heldur gleyma félagslega
þættinum, en fátt er dýrmætara en að eiga góða fjölskyldu
og vini sem hægt er að leita til bæði á góðum og erfiðum
stundum.
Samantekt
Kvíði er eðlileg tilfinning og hluti af daglegu lífi. Hann er
eðlilegt viðbragð við áreiti og jákvætt afl í lífsbaráttunni. Aftur
á móti getur kvíðinn snúist upp í andhverfu sína þegar hann er
orðinn of mikill og farinn að hafa áhrif á daglegt líf og lífsgæði.
Hægt er að læra aðferðir til að draga úr og ná betri stjórn á
kvíða.
Heimildir/ítarefni:
Fennell, M. og Butler, G. (2005). Að takast á við kvíða (Gunnhildur L.
Marteinsdóttir, Inga Hrefna Jónsdóttir og Oddi Erlingsson þýddu). Reykjavík:
Félag um hugræna atferlismeðferð. (Upphaflega gefin út 1985).
Inga Hrefna Jónsdóttir, Rósa María Guðmundsdóttir, Vera Siemsen og Þórunn
Gunnarsdóttir (Ritstj.) (2010). HAM Handbók um hugræna atferlismeðferð
(6. útgáfa). Mosfellsbæ: Reykjalundur endurhæfingarmiðstöð. Einnig má
nálgast bókina á vefsíðunni: ham.reykjalundur.is
Sóley Dröfn Davíðsdóttir (2014). Náðu tökum á kvíða, fælni og áhyggjum.
Reykjavík: Edda
Stuart, G.W. (2013). Principles and Practice of Psychiatric
Nursing (10. útgáfa). St. Louis: Elsevier.
- -