SÍBS blaðið - feb. 2016, Side 28

SÍBS blaðið - feb. 2016, Side 28
28 SÍBS-blaðiðGrein Líkamleg þjálfun sem meðferðarform Arnbjörg Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari Reykjalundi Kristbjörg Helgadóttir sjúkraþjálfari Reykjalundi Fjöldi Íslendinga glímir við geðraskanir og ljóst er að þeim sjúkdómum fylgir oft mikil skerðing á lífsgæðum. Lífslíkur ein- staklinga með alvarlegan vanda eru auk þess minni þar sem óheilbrigður lífsstíll getur haft í för með sér ýmsa líkamlega sjúkdóma. Stöðugt samspil á sér stað milli líkama og sálar þar sem hvort hefur áhrif á annað. Aukin þekking á því samspili gerir okkur kleift að hafa jákvæð áhrif á heilsu með ýmsu móti. Undanfarin ár hefur áhugi á hreyfingu í þessu sambandi aukist mikið og á síðustu tveimur til þremur áratugum hafa fjölmargar rannsóknir verið gerðar á áhrifum líkamlegrar þjálf- unar á andlega heilsu. Niðurstöður leiða í ljós jákvæð áhrif þjálfunar á þunglyndi, kvíða og streitu og einnig hefur verið sýnt fram á forvarnargildi þjálfunar í tengslum við geðsjúk- dóma. Þjálfunaraðferðir Þjálfun er skilgreind sem skipulögð, markviss og endurtekin hreyfing sem ætlað er að bæta eða viðhalda einum eða fleiri þáttum líkamshreysti. Heilsufarslegur ávinningur þjálfunar er fjölþættur og gerir okkur betur í stakk búin að takast á við áskoranir í daglegu lífi. Auk þess að bæta andlega líðan stuðl- ar þjálfun að endurnýjun og viðhaldi líkamans og virkar í raun bæði sem forvörn og meðferð við ýmsum lífsstílssjúkdómum, t.d. sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum, offitu og stoðkerfis- vanda. Til eru margar þjálfunaraðferðir en þol- og styrkþjálfun hafa mest verið skoðaðar með tilliti til geðraskana. Þolþjálfun er hreyfing sem reynir á hjarta, lungu og blóðrásarkerfi, svo sem rösk ganga, hjólreiðar, skokk, o.fl. Til þess að ná þolþjálfunarálagi þarf að erfiða nokkuð og talið er nauðsynlegt að álagið nái 60-85% af hámarkspúlsi, en hann má áætla gróflega með því að draga aldur frá tölunni 220. Á þessu þjálfunarálagi er eðlilegt að hitna, svitna, mæðast og finna fyrir þreytutilfinningu. Nota má þessi líkamlegu viðbrögð til að meta ákefð þjálfunarinnar en einnig er hægt að fylgjast með púlsi með því að telja slög í slagæð í eina mínútu eða nota púlsmæli. Dæmi: Fertugur einstaklingur: Hámarkspúls 220 – 40 (aldur) = 180 slög/mín. Þjálfunarpúls: 60 til 85 % af 180 er 108 til 153 slög/mín. Hafa skal í huga að sum blóðþrýstingslækkandi lyf (svo- kallaðir betablokkerar) hafa áhrif á púlsinn á þann hátt að hann hækkar ekki eðlilega við áreynslu og þá er ekki hægt að nota hann sem viðmið! Styrkþjálfun er hreyfing þar sem unnið er með mótstöðu á vöðva. Hægt er að iðka hana á margvíslegan máta, allt eftir getu og markmiðum hvers og eins, t.d. í líkamsræktartækjum, með handlóðum, nota vatnsmótstöðu í sundlaug eða gera æfingar með eigin líkamsþyngd. Áhrif styrkþjálfunar eru mismunandi eftir því hversu mikil mótstaðan er, en vöðvar þurfa alltaf að erfiða til að auka styrk. Æskilegt er að byrja rólega, sérstaklega ef fólk er með stoðkerfisvanda, t.d. gigtarsjúkdóm eða langvinna verki og auka mótstöðu smám saman ef vel gengur. Magn þjálfunar – hversu mikið er nóg? Þær ráðleggingar sem stuðst er við varðandi magn þjálfunar koma m.a. frá sænsku stofnuninni Fyss (Fysisk aktivitet i sjukdomsprevention och sjukdomsbehandling) en sú stofnun tekur m.a. saman rannsóknir um áhrif þjálfunar á fjölmarga sjúkdóma. Fyrir áhugasama er hægt að finna ýmsan fróðleik inni á heimasíðu þeirra sem er: www.fyss.se. Reikna má með að það taki um átta til níu vikur að ná árangri, þ.e. að jákvæð áhrif á andlega líðan komi fram, en stundum upplifir fólk jákvæðar breytingar mun fyrr. Til þess Líkamleg þjálfun bætir andlega og líkamlega líðan og virkar sem forvörn og meðferð við ýmsum lífsstílssjúkdómum

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.