SÍBS blaðið - 01.01.2001, Qupperneq 10

SÍBS blaðið - 01.01.2001, Qupperneq 10
tdaðið Oli Gurmarsson annaöist um Happdrætti SÍBS i 47 ár og á aöallega góöar endurminningar frá því starfi: Sleppti miöa og þá kom milljónavinnirigurinn í nærfellt hálfa öld hefur Óli Gunnarsson starfaö fyrir SÍBS sem umboðsmaður happ- drættisins á Kópaskeri. Nú hefur hann ákveðið að hætta störfum og taka til við ný verkefni og njóta efri áranna. Óli tók við happdrættis- umboðinu fýrir 47 árum af Baldi Öxdal þegar hann flutti suður. „Eg var nú nýkominn úr Samvinnuskólanum og hafði tekið við skrifstofustarfi hjá kaupfélaginu. Ég var rétt tæp fimmtíu ár á skrifstofunni hjá kaupfélaginu. Meðfram var ég með happdrættis- umboð SÍBS og síðar bættist við Háskóla- happdrættið," segir Óli Gunnarsson sem síðast var fulltrúi kaupfélagsstjórans á Kópaskeri. Óli Gunnarsson og kona hans Þórunn Guðrún Pálsdóttir. Myndin er tekin á 75 ára afmæli Óla. „Því er nú ver og miður að aldrei geröi ég neinn aö milljónamæringi. Ég man eftir einu tilfelli fyrir mörgurn árum að hingað kom hæsti vinningur, en því miöur hafði sá sem átti miðann hætt með hann um áramótin, miðinn var óseldur, og enginn naut vinningsins. Þetta var örfáum mánuðum eftir að maðurinn hætti með miöann. Ég passaði mig á því að láta hann aldrei vita af þessu, og ég held að hann hafi aldrei frétt um þessa óheppni sína, hann íýlgdist ekki meö númerinu sjálfur,“ segir Óli í samtali við SÍBS-fréttir. „Þetta starf við happdrættið var þægilegt fýrir mig þar sem ég var skrifstofumaöur hjá kaupfélaginu þar sem allir voru i reiknings- viðskiptum, þess vegna vannst þetta létt fýrir mig og kannski léttara en hjá mörgum öðrum umboðsmönnum," sagði Óli. Hann segir að fólk hafi verið afar tryggt með endurnýjun og ekki hafi þurft að ganga eftir greiöslum. „Ég átti alla tíð góð viðskipti við fram- kvæmdastjóra happdrættisins og þeir sýndu mér yfirleitt skilning og leyfðu mér aö hafa gjaldfrest á þessu, þannig aö þetta var ekki svo bundið daginn eða mánuöinn. Þetta var ákaflega vinsælt hérna, menn fengu gjaldfrest fram í miðjan maí,“ segir Óli. Hann segist aldrei hafa tapað peningum á aö lána fólki. Óli tók við umboðinu fýrir Vöruhappdrætti SÍBS á þeim árum þegar berklar grasseruöu á Islandi. „Ég fýlgist vel meö í gegnum mitt starf og hafði mikla trú á starfl SÍBS. Það var ekki um neina berklaveika að ræða í minni fjölskyldu, en ég fýlgdist aftur á móti með nokkrum nánum vinum sem urðu fýrir barðinu á berklunum. Happdrættið naut ótvírætt mikils góðvilja fólks fýrir þá hörðu baráttu sem háð var gegn berklunum og fýrir endurhæfmgu berklasjúkling'a. Sjálfur átti ég síðar eftir að dvelja um tíma á Vífilsstöðum. Það var rétt fýrir 1980 að ég fékk að dvelja þar i vikutíma eftir lungnauppskurð á Landspítalanum. Það var gott að vera á Vífilsstöðum og svo vel gert við mann að maður rokfitnaði," segir Óli. Óli er hress og nýtur þess að vera kominn á eftirlaun. „Aldurinn er farinn að segja til sín. Ég hef þaö bara rólegt og við búum hér tvö hjónin. Við eigum átta börn og höfum nóg að hugsa um. Einn sonur okkar er bóndi hér í nágrenninu og þar er ég með annan fótinn meðan heilsan leyfir," segir Óli. Kona Óla er Þórunn Guðrún Pálsdóttir ættuð frá Ólafsfirði og segir Óli aö hún hafi verið hjálpleg við störfin fýrir happdrættið. JBP Óli segir aö Qöldi vinninga hafi auðvitað lent á Kópaskeri og þeir hafi komið sér vel hjá fólkinu þótt ekki væru það hæstu vinningar. S0RPA SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs

x

SÍBS blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.