SÍBS blaðið - 01.01.2001, Page 12

SÍBS blaðið - 01.01.2001, Page 12
Æviminningar Flest SIBS-fólk kannast viö nafn Rannveigar Löve þeirrar miklu baráttukonu. Hún er meðal frumkvöðla SIBS, á að baki mikið starf og starfar enn í þágu samtakanna. Rannveig hefur nú sent frá sér bók, „Myndir úr hugskoti“ sem hún hefur skrifað í samstarfi við son sinn Leó. Bókin er æviminningar Rannveigar og jafnframt saga baráttunnar við berklaveikina. Eiginmaður hennar, Guömundur Löve, vann alla tíð aö málefnum sjúkra og öryrkja og lyfti Grettistaki á því sviði. Bókin er því merk heimild um sögu SIBS. Myndin sýnir Rannveigu daginn sem bókin kom út. Önnur merk kona sem kynntist berklaveikinni harkaleg'a af eigin raun er líka að gefa út sína ævisögu um þessi jól. Það er sú ágæta skáldkona Vilborg Dagbjartsdóttir og bókin heitir „Mynd af konu.“ Fróðlegt verður að lesa bækur þeirra Rannveigar og Vilborgar og mikils virði að fá innsýn í líf og baráttu fólks við hvíta dauðann. Við óskum þessum heiðurskonum hjartanlega til hamingju með bækurnar. H.F. AGA Healthcare Vinningshafar 2000 Áriö 2000 hefur á vissan hátt verið ár unga fólksins hjá Happdrætti SÍBS. Milljónavinn- ingar ársins hafa nefnilega oftast lent hjá ungu fólki. Ungt barnafólk sem á miðana sína skráða í versluninni Storkinum í Reykjavík hlaut þrjár milljónir. Húnvetning'ur hlaut fjórar milljónir. Ungt fólk á Vestfjörðum hlaut tvær milljónir. Tveir ungir menn norður á Ströndum hlutu milljón, sex milljónir lentu austur á land og síðan aftur þrjár milljónir á svipaðar slóðir. Borgfírðingur fékk eina milljón og viðskipta- vinir aöalumboðs í Reykjavík voru líka heppnir og voru meðal þeirra sem hrepptu milljóna vinninga. Desembervinningurinn að verðmæti fimm milljónir gekk ekki út og leggst því við íýrsta vinning í janúar. Peug'eot-bílarnir fóru eins og við höfum áður sagt frá í Kópavog, á Suðurnes og norður í Húnavatnssýslu. Lægri vinningar dreifðust síðan nokkuö jafnt um allt land. Vonandi hafa allir þessir vinningar komið aö góðum notum. H.F. Þá gat ég fermst! Alltaf gleðjumst viö SÍBS fólk þegar við fréttum af vinningum sem hafa fallið á réttan stað á réttum tíma. Um síöustu áramót hringdi ung kona í umboðið í Suðurgötu 10 og keypti miða. Símadömunni fannst röddin og nafnið kunnuglegt og spurði hvort þetta væri hin eina sanna með þessu nafni. Jú, þetta var hún, ung og mjög þekkt íslensk söngkona. „Fjölskyldan átti alltaf miða í umboði SÍBS sem var á Grettisgötunni. Mér er svo minnisstætt að við fengum einu sinni mjög góðan vinning á erfiðleikatímum. Vinningurinn breytti miklu þvi þá g'at ég fermst." H.F. Ráöning myndagátu Lausn myndagátunnar í síðasta blaði var: Öflugir jarðskjálftar skóku sunnanvert landið í sumar. Dregiö var úr réttum lausnum og eftirfarandi nöfn komu upp: 1. Jónína Sigurg'eirsdóttir, Furubyggð 28, 270 Mosfellsbær hlaut engil úr gulli 2. Kristrún Guönadóttir, Hólalandi 16, 755 Stöðvarfjörður vann spilaöskju 3. Soffía Jensdóttir, Goðheimum 2, 104 Reykjavik hlýtur líka spilaöskju i verðlaun. Við þökkum góða þátttöku og bendum á að ný glíma hefst við myndagátuna í þessu blaði.

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.