SÍBS blaðið - 01.01.2001, Blaðsíða 15
12 börnum, 7 drengjum og 5 stúlkum. Þess má
geta aö á síðustu 9 árum hefur aöeins eitt barn
veriö sent utan til aðgeröar vegna þrengsla i
ósæð. Tafla II sýnir hvaða hjartaskurðaðgerðir
voru framkvæmdar hjá nýburum á tímabilinu.
Eitt barn í þessum hópi lést eftir að hafa
gengist undir tvær aðgerðir. Þótt flest
barnanna með ósæðarþrengsli hafi verið
fárveik við greiningu hefur þeim öllum farnast
vel eftir aðgerð. Hjá ijórum þeirra hafa þrengsli
tekið sig upp aftur og hafa þrjú þeirra gengist
undir víkkun á þrengslunum í hjartaþræöingu.
Tafla I
Tegundir og fjöldi aögerða í heild
Tegundir aðgerða fjöldi aðgerða
Op á milli gátta (atrial septal defect) 30
Ósæðarþrengsli (coarctation aortae) 14
Framhjáveita (shunt aðgerð) 12
Opin fósturæð (patent foramen ovale) 2
Æðahringur (vascular ring) 2
Op á milli slegla (ventricular septal defect) 2
Aðrar aðgerðir 17
Samtals 79
Tafla II
Fjöldi og tegundir aögeröa hjá nýburum
Ósæðarþrengsli (coarctation aortae) 12
Hjáveituaðgerð (shunt) 6
Opin fósturæð (patent ductus arteriosus) 2
Samtals 20
Þá hafa tvö börn gengist undir aðgerð þar sem
gúll sem myndast hafði í þrengingunni eftir
útvíkkun i þræðingu var fjarlægður.
Árangur
Af 75 börnum sem gengust undir hjarta-
skurðaögerð náðu 74 fullri heilsu. Eitt barn lést
eftir að hafa gengist undir tvær aðgerðir en í
því tilviki var um að ræða mjög alvarlegan
galla með litlar lífslíkur. Tveir sjúklingar fengu
fýlgikvilla þar sem vökvi safnaðist fyrir í
gollurshúsi sem gekk til baka eftir lyfjameðferð
með þvagræsilyijum og sterum. Sjúklingurinn
sem meginbláæð var flutt til í fékk síðkomna
þrengingu í tengingu meginbláæðar inn í
hjartað sem var lagfært i hjartaþræðingu.
Kostnaður
Hjartaskurðaðgerðir eru mjög kostnaðarsamar
aögerðir og var sá þáttur tekinn með þegar
ákveðið var aö framkvæma fleiri aðgeröir hér á
landi. Kostaði hver aðgerð framkvæmd erlendis
nálægt 2,5 milljónum króna (á núvirði) en
samkvæmt okkar áætlunum yrði kostnaður viö
hverja aðgerð hérlendis um 1,2 milljónir króna.
Þannig myndi sparast um helmingur kostnaðar
viö hverja aðgerö sem framkvæmd yrði hér
heima. Með þetta að leiðarljósi ákvað
heilbrigðisráðherra Ingibjörg Pálmadóttir að
veita fjármagni til Ríkisspítala þannig að af
þessu gæti orðið. Frá árinu 1990 til dagsins í
dag hafa 79 aðgerðir verið framkvæmdar
hérlendis og er sparnaöurinn nálægt 95
milljónum króna á þessu tímabili. Þá er ekki
tekið tillit til óbeins sparnaðar sem hlýst af því
að halda peningunum innan okkar hagkerfis.
Umfjöllun
Við búum í litlu samfélagi og getum ekki
framkvæmt allar hjartaskuröaögerðir á börnum
hérlendis. Þurfum við því enn að reiða okkur á
að geta sent nokkurn Ijölda barna á sjúkrahús
erlendis til meðferðar. Það skiptir verulegu
máli fyrir okkur að framkvæma það sem unnt
er hér á landi. Það er erfiöara en orð fá lýst að
vera meö veikt barn sitt á sjúkrahúsi erlendis,
ijarri heimili og ástvinum og veröum við að
leita allra ráða til að komast hjá því. Skiptir
það okkur miklu að geta boöið skjólstæðingum
okkar upp á þessa þjónustu hér heima. Þá er
það ótaliö að fiutningur aðgerðanna heim veita
atvinnu og sparar gjaldeyri. Er þá ótalinn
mikilvægasti þáttur þessa máls, árangurinn.
Hann er fyllilega sambærilegur við það sem
gerist á bestu stöðum erlendis og megum viö
vera stolt af því.
Á hverju ári gangast 20-30 íslensk börn undir
hjartaskurðaðgerðir og er nú rúmur helmingur
aðgerðanna framkvæmdur hérlendis. Þannig
höfum við náö þeim markmiðum sem viö settum
okkur þegar ráðist var í að framkvæma hjarta-
skurðaðgerðir á börnum hérlendis. Einnig er
hugsanlegt að seinna meir verði unnt að fram-
kvæma enn fleiri hjartaskurðaðgerðir á börnum
hérlendis. Það mun framtíðin leiða í Ijós.
AKUREYRI íslands