SÍBS blaðið - 01.01.2001, Qupperneq 19

SÍBS blaðið - 01.01.2001, Qupperneq 19
11. deild Landssamtakanna. Ég vil segja að þetta sé eitt mesta gæfuspor sem við höfum stigið, því öll samvinna með stjórn og ekki síst starfsmönnum LHS þeim Rúrik Kristjánssyni, Asgeiri Þ. Arnasyni og fyrrverandi starfsmanni Ingólfi Viktorssyni hefur verið með þvílíkum fyrirmyndarskap að fátítt er. Allt þetta fólk hefur reynst okkur mjög vel og höfum við getað leitað ráða hjá þeim hvenær sem er, því þetta er fólk sem hefur verið í baráttunni mun lengur enn við. Og ekki hefur það versnað eftir að LHS gekk í raöir SIBS þar höfum við einnig getað leitað ráða og á nýr framkvæmdastjóri SIBS heiður skilið fyrir alla samvinnu við Neistann. Sumarferðir Við höfum farið í eina sumarferð á ári með íjölskyldur okkar. Hafa þetta verið mjög svo ánægjulegar ferðir og góð tilbreyting frá hversdagslegu lífi og hugsunum um lang- varandi veikindi. Fyrsta feröin sem við fórum var að Skógum, eftir það höfum við farið í Lundarreykjadal, að Laugarvatni, Steinstaðar- skóla í Skagafírði og nú síðast fórum viö að Dæli í V-Húnavatnssýslu. Öll aðstaða að Dæli Haukur Þór.Guðlaugur Agnar og Valur Pálmi í grænni brekku. Hvítserkur í baksýn. var til fyrirmyndar og eru húsráðendur að Dæli hið mesta sómafólk. Sum okkar gistu í tjöldum, en einnig eru til staðar smáhýsi og sumarhús sem þau hjónin leigja út. Flest okkar mættu á svæöið á föstudagskvöldi en aðrir komu á laugardagsmorgni. Einnig eru nokkrir sem ekki geta verið að heiman með veik börn sín yfir nótt sem komu í dagsferö. Á laugardeginum fórum við Vatnsneshringinn. Við byrjuðum í Borgarvirki en lítið sást niður vegna þoku, því næst fórum við að Hvítserk og svo var endaö i Qöruferð. Um kvöldið var svo slegið upp grillhátið mikilli í boði Nettó, Vífilfells og Olis, hafa þessi fyrirtæki stutt vel við bakið á okkur og er þetta ekki fyrsta sumarferðin sem þau bjóða uppá. Á sunnudeginum var krökkunum boðið á hestbak og svo var farið í skoðunarferö I Borgarvirki. Dælir í V-Hún. Þar var bækistöð meðan grillveislan var undirbúin. að Kolugljúfri, en það er enn ein náttúruperlan í Húnavatnssýslunni. Kvörtun Neistans til Umboösmanns Alþingis í marsmánuöi 1997 sendi Björn Jónsson hrl. fyrir hönd Neistans kvörtun til Umboðsmanns Alþingis. Kvörtunin byggðist á misrétti varöandi umönnunargreiðslur til foreldra fatlaðra og langveikra barna. Umboðsmaður Alþingis tók til greina kvörtun Neistans. Sýnir þetta að við erum ekki bara að afla Qár og veita foreldrum stuðning, heldur þurfum við að fylgjast með löggjafarvaldinu og ýta við þeim þegar á þarf að halda. Heimasíða Neistinn heldur úti heimasíðu á Internetinu, þar er að finna margs konar upplýsingar og fróðleik. Viö hvetjum ykkur að skoða síðuna okkar en slóðin á hana er www.neistinn.is Kæru SIBS félagar mig langar að lokum aö óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Valur Stefánsson formaður Neistans. 49

x

SÍBS blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.