SÍBS blaðið - 01.01.2001, Síða 22

SÍBS blaðið - 01.01.2001, Síða 22
j l ELS-hi a ð i ð , Erria S. Arnadóttir og Guöný Siguröardóttir: INIeistirm til Firmlands Helgina 10.-12. nóveniber sl. var Neistanum boðið að senda 2 fulltrúa til Finnlands. Astæðan var 25 ára afmæli finnska félagsins. Landssamtök hjartasjúklinga og Neistinn greiddu sitt fargjaldið hvort en gisting og uppihald voru í boði Finnanna. Fyrir Neistann fóru Erna S. Arnadóttir og Guðný Siguröar- dóttir. Auk þeirra voru fulltrúar Norðmanna, Svía, Dana, Belga og Eista. Markmiðiö með ferðinni, fyrir utan að mæta á afmælishátíöina, var m.a. að kynnast starfsemi hinna Norðurlandanna og því hvernig félögin standa að fjáröflun sinni. Finnland, land hinna þúsund vatna. Við lentum í Helsinki síödegis á föstudeg'i. Fulltrúi Finnanna tók á móti okkur á flugvellinum og ók okkur sem leið lá á hóteliö í miðbæ Helsinki. Hún nýtti tímann vel og spuröi okkur spjörunum úr um félagið og starfsemi þess. Kom það þægilega á óvart að finna áhugann sem hún sýndi Neistanum og eins hvað hún þegar vissi um félagið. Finnska félagiö hefur sína starfsemi í stóru, fallegu húsi í Helsinki ásamt finnsku hjarta- og lungnasamtökunum. Þar er góö aðstaða til aö taka á móti stórum og smáum hópum. Um hádegi á laugardeginum mættum við á afmælishátíðina. Snæddum góðan hádegisverö og hittum hina erlendu fulltrúana. Við höfðum um klukkustund til aö spjalla saman yfir kaffibolla. Svo var á brattann aö sækja. Við tók þriggja klukkustunda dagskrá með fyrirlestrum og gamanmáli, allt á finnsku. Má réttilega segja aö ekki hafi veriö mikill skilningur á innihaldi fundarins en við reyndum að brosa og klappa á réttum stöðum. Um kvöldið var öllum erlendu fulltrúunum boðið til kvöldverðar á lappneskum veitingastað. Yfir fiskisúpu og hreindýrakjöti gátum við haldiö áfram að skiptast á skoðunum. Aftur undruðumst við áhugann sem Neistanum var sýndur og hvað allir voru boðnir og búnir að hjálpa og gefa góö ráð. I ljós kom að misvel er búið að félögunum. Sum, eins og Norðmenn, Svíar og Finnar eru ríkisstyrkt ásamt því að stunda fjáröflun. Danir eru háðir fjárframlögum frá dönsku hjartasamtökunum en um leið og þeir safna einhverjum pening aukalega lækkar styrkurinn. Við sáum að starfsemi félaganna litast mikið af aöbúnaðinum heima fýrir. Hjá okkur er mikil áhersla lögð á að styðja við og aðstoða foreldra sem fara með börn sín í aðgerðir erlendis. Finnarnir sjá um allar sínar aðgerðir sjálfir og hafa því aðrar áhersiur. Eistarnir eru svo með báðar hendur bundnar, aöstaða á sjúkrahúsum er léleg og ekkert Qármagn til að kosta börn í aðgerðir erlendis. Mikið hefur gengiö á þeg'ar send hafa verið 1-2 börn á ári til Finnlands til aö leita sér hjálpar. Fram kom mikill áhugi að halda árlega ráöstefnu Norðurlandanna á íslandi 2002. Kostnaðurinn fyrir félagið er í sjálfur sér ekki mikill, aöal vinnan liggur f skipulagningunni. Tíminn leiðir i ljós hvað gert veröur í því. Einnig var rætt um sumarbúðir sem haldnar eru árlega. Norðmenn, Svíar, Danir og Finnar hafa skipst á um að bjóða til sin unglingum frá hinum Norðurlöndunum. Okkur stendur til boða aö senda unglinga héðan ef áhugi er fyrir því. Viö vorum sammála um að það er sannkölluð vítamínsprauta að fá tækifæri til að hitta hópa sem berjast fyrir sama málefninu og finna að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Styrktarfélagar Ef þú lesandi góður vilt gerast styrktarfélagi í Neistanum og greiða árgjald til félagsins hafðu þá endileg'a samband við okkur á skrifstofu LHS / Neistans í síma 561-5678 eða sendið okkur tölvupóst á neistinn@neistinn.is Stuðningur þinn er okkar von! 22

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.