SÍBS blaðið - 01.01.2001, Síða 25

SÍBS blaðið - 01.01.2001, Síða 25
^■ífiSdilaðið Frá Landssamtökum hjartasjúklinga Starfsfólk Landssamtaka hjartasjúklinga sendir ööru SÍBS fólki bestu nýárskveðjur. Desembermánuöur er mikill annatími hjá LHS því þá er verið aö senda og selja jólakort um land allt. Jólakortasaian er vel skipulögö og munu seljast 11-12 þúsund pakkar af jólakortum að þessu sinni og færa samtökunum umtalsverðar tekjur. Velferð, málgagn LHS, kom út rétt fyrir jól og er rétt að benda þeim á, sem ekki hafa séð blaðið, að þar er að finna frásögn af mjög vel heppnuðu framtaki Félags hjartasjúklinga á Vesturlandi, en félagið bauð upp á blóðþrýstings- og blóðfitumælingu á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi og komu um 130 manns til að láta mæla sig og um 50 manns sóttu fræðslufund, þar sem Þorkell Guöbrandsson flutti skörulegt erindi um lífshætti og hjartasjúkdóma. Þá er athyglisverð frásögn af svörum þriggja hjartalækna við spurningum hjartasjúklinga á fundi á Hótel Sögu í september sl. Ef þið eigið leið í Suðurgötu 10 þá biðjið um eintak af blaðinu. Á næsta ári verður hafist handa viö endurgerö og endurprentun tveggja bæklinga, þ.e. Starf og stefna LHS og Eru ljón í veginum? En fyrsta upplag þess ágæta bæklings er á þrotum. Þá hefur veriö ákveðið að gera nýjan bækling sem mun fjalla um helstu hjartalyfin, kosti þeirra og hugsanlegar hliöarverkanir. Athugið með afslátt af lyfjaverði Það er rétt að nota tækifærið til að benda sjúklingum sem þurfa að kaupa umtalsverða skammta af lyfjum að fara fram á afslátt í apótekum, eða jafnvel biðja um tilboð í lyfjaskammtinn ef hann er verulegur. Þetta hafa nokkrir hjartasjúklingar gert meö góðum árangri. Nú fer fram allítarleg athugun á lyQaverði og hver er hlutur sjúklinga í því. Þetta er allflókið úrlausnarefni, en almennt talað þá hafa lyf verið að lækka undanfarið og álagning lfka, en um leið hefur Tryggingastofnun dregið úr sínum framlögum þannig að sjúklingar hafa þurft að greiða mun meira en áður og stundum eru þessar hækkanir umtalsverðar eða frá 100% til 270% á sl. fímm árum. Væntanlega fær þetta mál frekari umfjöllun í Velferð og SÍBS blaðinu á vordögum. Umboðsmaður heilbrigðis- og félagsmála Sjötta þing LHS ítrekaði ályktun frá þinginu þar áður aö skoða þörf á lagasetningu um umboðsmann heilbrigöis- og félagsmála með hliðsjón af reynslu Dana, Norðmanna og Svía i þessum efnum. Fjölmörg vandamál hafa komið upp gagnvart sjúklingum að undanförnu og er mikið um aö erfitt sé fyrir þá að ná rétti sinum. Því er biýnt að sjúklingar eigi sér öflugan aðila, sem kynnir sér mál þeirra og bendi á leiðir til úrbóta, segir í ályktuninni. í lokin er fróðlegt að rifja upp að 9 íslendingar hafa fengið nýtt hjarta, sá fýrsti árið 1988. Fjórir af þessum níu fengu bæði hjarta og lungu. Þrír íslendingar hafa fengiö ígrædd lungu ein og sér. ' Uiðteiningar til i, hIART/ legu,, (raeðondJ baAl.ngo' V'J yiljo óðtan ÞJ Landssamtök hjartasjúklinga hafa leitast við að fræða félagsmenn sina um hinar ýmsu hliðar hjartasjúkdóma og endurhæfingu. Á skrifstofu samtakanna eru bæklingarnir sem sjást hér aö ofan, ennfremur bæklingurinn Hjartasjúkdómar-varnir, lækning, endurhæfmg. Þá eigum við vandað myndband um hjartaaðgeröir og afstöðu sjúklinga til þeirra og er hægt að fá myndbandið keypt eða lánað. Ný heimasíða LHS er á lokastigi og er slóöin www.lhs.is. S.J. PrICEWATeRHOUs^COPERS

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.