SÍBS blaðið - 01.01.2001, Qupperneq 29

SÍBS blaðið - 01.01.2001, Qupperneq 29
aoi Bundinn viö hjólastól en tók samt lögfræöipróf Annar maður sem hefur dvalið lengi á Vifilsstöðum er Skúli Jensson, lögfræðingur, en hann hefur verið bundinn við hjólastól og sjúkrarúm frá 15 ára aldri. Hann hefur dvaliö á Vífilsstöðum frá 1952 og m.a. veriö umboðsmaður Happdrættis SÍBS þar, sá um símsvörun og hafði umsjón meða bókasafni Vífilsstaða auk þess að vera með bóksölu. Hann vann það afrek að taka embættispróf í lögfræði árið 1949. Skúli hefur tekið saman heimildir um fyrri tíma á Vífilsstöðum og hann hefur verið stórvirkur þýðandi. Hann sagði um þetta starf í viðtali sem birtist i happdrættisaukablaði meö Morgunblaöinu 1998: „Lengi vel þýddi ég svona átta bækur á ári, en undanfarið hafa þær ekki verið nema ein til tvær. Þetta eru helst bækur sem krefjast ekki mikillar listfengi við þýöingar. Mitt hlutverk er bara að koma þeim á gott íslenskt mál þannig að söguþráðurinn komist til skila án þess að hugsa sérstaklega um stíl.“ Gott aö vita Árið 1928 námu útgjöld ríkisins vegna berklavarna 7,5% af heildarútgjöldum ríkisins og hélst sú tala nokkuð svipuð næstu árin. En þó óx fjöldi berklasjúklinga stöðugt og um það bil fimmti hver landsmaður, sem lést á árunum 1925-1932 varð berklaveikinni að bráð. Árið 1935 var sjúkrarúmafjöldi fyrir berklasjúklinga á heilsuhælum og sjúkrahúsum 420 rúm og veitti ekki af. Sérstakur berklayfirlæknir, Sigurður Sigurðsson, var ráðinn af Alþingi áriö 1935 og tók hann málin föstum tökum og skipulagði margvíslega leitar- og eftirlitsstarfsemi sem brátt bar mikinn árangur. (Heimild: SÍBS bókin). Þessi fallega vatnslitamynd er eftir Eirík Smith og var gjöf frá SIBS á 90 ára afmæli Vífilsstaðaspítala. Gott aö vita Hjúkrunarfélagiö Líkn kom á fót berklavarnarstöð í Reykjavík og var hún fyrsti vísirinn að skipulögðum berklavörnum meðal almennings utan sjúkrahúsa. Hælið á Kristnesi tók til starfa 1927 og var fyrst fyrir 6o sjúklinga en eftir stækkun fyrir 72 sjúklinga. Hringurinn í Reykjavík byggði árið 1926 hressingarhæli fyrir berklasjúklinga í Kópavogi og var þar rúm fyrir 24 vistmenn. Reykjahæli í Ölfusi tók til starfa 1931 og var eiginlega forveri Reykjalundar þvf þar átti að koma upp sem fjölþættustum störfum fyrir berklasjúklinga í afturbata, en þeir draumar rættust ekki. Vígsla Vinnuheimilisins að Reykjalundi fór fram 1. febrúar 1945. Upphaflega var rúm fyrir 80 sjúklinga á Vifilsstöðum, en hælið var stækkað og sjúkrarúmum fjölgað, svo að lengi voru þar á annað hundrað sjúklingar og jafnvel yfir 200 þegar flest var. (Heimild: SÍBS bókin).

x

SÍBS blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.