Femina - 01.11.1946, Qupperneq 13
Kathleen Norris
45
„Ástæðan fyrir því, að ég vek athygli yðar á þessu, er sú,
að ég veit allt um það“, svaraði Kent. „Ég veit, hver setti
þessa auglýsingu í blaðið, og ég held“, bætti hann við ofur-
lítið ákafur, „að þetta sé einmitt starf fyrir yður; það er
að segja, ef þér eruð viss um spænskuna. Það er fyrir
ollu“.
„Spænskuna?“ sagði Juanita undrandi. „Það er mitt
móðurmál!“
„Þér gætuð aldrei leikið á frú Chatterton“, hélt Kent
áfram eins og við sjálfan sig.
„Hver er frú Chatterton?“ spurði Juanita.
„Frú Chatterton er afar fögur kona, gift núverandi hús-
bónda mínum“, svaraði Kent, „og einkaritari hennar heit-
ir ungfrú Russell. Hún setti þessa auglýsingu í blaðið, því
hún vildi endilega hætta starfinu, enda kann hún ekki
spænsku, og á því hefur alltaf strandað; það er nóg af
gömlum kerlingaskrukkum, sem kunna spænsku, og prýði-
legum, ungum stúlkum, sem geta verið ágætir einkaritarar.
Þetta virðist bara aldrei fara saman hjá neinum kven-
manni“.
„En gæti ég leyst hin störfin af hendi?“ spurði Juanita
áhygg.iufuI1-
„Ef þér getið leyst spænskukennsluna af hendi, er allt
gott. Frú Chatterton er ákveðin í því að læra hana á fimm
mánuð um, og hún vill æfa sig að tala hana í tvo tíma á dag“.
„En getur nokkur lært spænsku á fimm mánuðum?“
spurði Juanita vantrúuð.
jJ-Iún getur það“, sagði Kent sannfærandi. „Þér þekkið
hana ekki“.