Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2016, Blaðsíða 15
Fréttir Erlent 15Vikublað 16.–18. febrúar 2016
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
RaðmoRðingjaR okkaR tíma
n Bauð upp á mannakjöt í matarboðum n Nýta sér neyð kvenna og fólks í vanda
Hjálpsami lögreglumaðurinn
Nafn: Mikhail P.
Fjöldi morða: 24+
Dæmdur: Bíður dóms
n Eftir þrotlausa rannsókn í 15 ár hafði lögreglan í Rússlandi hendur í hári þessa alræmda
fjöldamorðingja. Talið er víst að hann hafi drepið 24 fórnarlömb í heimahéraði sínu en
mögulega önnur 26. Morðin voru framin á árunum 1995 og 1998, þegar hann var starfandi
lögreglumaður í Angarsk í Síberíu. Ein kona var þó myrt 2004. Hann sat fyrir ungum konum
þegar þær voru einar á leið heim af skemmtunum og bauð þeim far heim. Hann rændi þeim,
pyntaði með skrúfjárnum og hnífum áður en hann afhöfðaði þær með exi. Hann er sagður
hafa misnotað líkin kynferðislega. Lögreglan fann mörg líkin en fann ekki sökudólginn fyrr
en hún bar DNA-sýni af hinum látnu saman við DNA úr lögreglumönnum eigin sveitar. Þá var
morðinginn á bak og burt en fannst og var handsamaður. Hann bíður enn dóms. Vinnufélagi
hans lýsti honum sem dagfarsprúðum fjölskylduföður og grunaði ekki hvers kyns mann
hann hafði að geyma.
Eldaði mannakjöt
ofan í vini og
vandamenn
Nafn: Óþekkt
Fjöldi morða: 31+
Dæmd: 2011
n Árið 2011 var indónesísk kona
handtekin eftir að lögregla komst
að því að hún hafði myrt meira en 30
ungar konur. Líkamshlutar hinna látnu
fundust í ísskáp. Þar geymdi hún líkin
til að halda þeim köldum, áður en hún
gæddi sér á líkamsleifunum. Í ljós kom
að hún myrti áður manninn sinn og át,
ásamt fleirum. Hún hafði að sögn lagt
sér mannakjöt til munns um langa
hríð. Við yfirheyrslur viðurkenndi hún,
til að bíta höfuðið af skömminni, að
hún hefði haldið fjölmargar veislur fyrir
vini og ættingja, þar sem mannakjöt
var á boðstólum – án vitundar þeirra
sem mættu. Gestirnir hafi iðulega
hrósað henni í hástert fyrir matseldina.
Í fangelsinu hefur hún verið til ama.
Hún réðst eitt sinn á fangavörð, beit af
honum fingur og gleypti.
Gróf verkfæri til að
drepa síðar
Nafn: Israel Keyes
Fjöldi morða: 7
Dæmdur: 2012
n Israel Keyes fæddist í Utah 1978 en af-
brotaferill hans hófst um 18 ára aldur, þegar
hann nauðgaði táningsstúlku í Oregon.
Keyes skipulagði morðin gaumgæfilega
og lét aldrei til skarar skíða á sama svæði.
Hann lagði mikla vinnu á sig til að fela
slóð sína og notaði stundum verkfæri
sem hann hafði grafið eða falið í þessum
tilgangi einhverjum árum áður. Hann var
eftirlýstur af lögreglunni, þegar í ljós kom
að hann var ábyrgur fyrir hvarfinu á hinni
18 ára Samönthu Koenig. Hann reyndi að
kúga 30 þúsund dollara út úr ættingjum
hennar en drap hana að endingu og fleygði
í Matanuska-vatnið, norður af Anchorage í
Alaska. Lögreglan hóf þá umfangsmikla leit
en hann kom upp um sig með því að nota
debetkort stúlkunnar. Keyes svipti sig lífi í
desember 2012, eftir að hafa játað á sig sjö
morð á ungum stúlkum.
Læknirinn
sem lék guð
Nafn: Dr. Virginia Helena Soares de Souza
Fjöldi morða: 300 (óstaðfest)
Dæmd: Bíður dóms
n Dr. Souza bíður enn dóms. Hún er grunuð
um að hafa drepið allt að 300 sjúklinga á
Evangelica Hospital of Curitiba í Brasilíu, til
að losa sjúkrarúm. Ef hún verður fundin sek
er hún einn afkastamesti fjöldamorðingi
sögunnar. Hún er talin hafa gefið veikum
einstaklingum vöðvaslökunarlyf áður en
hún dró úr súrefnisgjöf til þeirra í gegnum
öndunarvélina. Læknirinn var handtekinn
vorið 2013 í kjölfar þess að sjö einstaklingar
létust sviplega. Dr. Mario Lobato, sem leiðir
rannsóknina, hefur látið hafa eftir sér að
hún hafi leikið guð, með því að ákveða
hverjir lifðu og hverjir dóu. Það hafi hún
gert í þeim tilgangi að rýma rúm fyrir aðra
sjúklinga. Þrír aðrir starfsmenn spítalans
hafa verið kærðir í tengslum við málin en
lögmaður Dr. Souza segist þess fullviss að
verjandinn muni sanna sakleysi hennar.
Seldi mannakjöt sem
strútskjöt
Nafn: Zhang Yongming
Fjöldi morða: 11
Dæmdur: 2013
n Zhang var kínverskur raðmorðingi sem er
grunaður um að hafa drepið 11 unga karlmenn
á tímabilinu mars 2008 til apríl 2012. Hann
var raunar dæmdur fyrir morð árið 1979 en var
sleppt lausum árið 1997, eftir að dómurinn var
mildaður. Hann byrjaði aftur að drepa tíu árum
síðar. Menn ætla að hann hafi fóðrað hunda
sína á mannakjöti auk þess að selja kjötstykki
á útimarkaði, þar sem hann sagði að um
strútskjöt væri að ræða. Grunsemdir vöknuðu
þegar nágrannar hans tilkynntu um grunsam-
lega poka sem þeir sáu hanga út úr glugga á
íbúð hans. Út úr þeim stóðu bein. Við húsleit
fundust mannsaugu í glerkrukkum auk þurrkaðs
mannakjöts. Fyrir dómi sýndi Yongming enga
iðrun. Hann var tekinn af lífi 10. janúar 2013.