Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2016, Blaðsíða 8
8 Fréttir Vikublað 16.–18. febrúar 2016
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • Opið kl. 12-18
Lengri og breiðari
parketpLankar
Píratar eru næst-
stærstir í Kópavogi
n Myndu fá 26,3 prósenta fylgi samkvæmt könnun n Björt framtíð í frjálsu falli n Ánægja með Ármann
P
íratar í Kópavogi mælast
með 26,3 prósenta fylgi og
eru orðnir að næststærsta
stjórnmálaaflinu í bænum
samkvæmt nýrri skoðana-
könnun sem unnin var af Gallup.
Flokkurinn bauð fram í fyrsta skipti
í sveitarstjórnarkosningunum 2014
og náði þá engum manni inn í Kópa-
vogi. Ljóst er að sá meðbyr sem Pírat-
ar njóta á landsvísu er einnig að skila
sér á sveitarstjórnarstigið. Birgitta
Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segist
túlka velgengnina sem ákall á breytt-
ar áherslur. Samkvæmt sömu könnun
mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
flokka með 36,5 prósenta fylgi en
einnig var spurt sérstaklega um störf
Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra
Kópavogs, sem virðist hafa sterka
stöðu. Alls 40,5 prósent þeirra sem
tóku afstöðu eru ánægðir með störf
Ármanns.
Hástökk í fylgi án fyrirhafnar
Píratar buðu í fyrsta skipti fram í
Kópavogi í sveitarstjórnarkosningun-
um 2014 og hlutu þá 4 prósenta fylgi.
Efstu sæti listans voru skipuð ungum,
rétt ríflega tvítugum mönnum sem
ákváðu að bjóða fram undir merkjum
Pírata með tiltölulega skömmum fyr-
irvara. Ingólfur Árni Gunnarsson var
oddviti Pírata í Kópavogi þá og seg-
ir hann að Píratar séu þakklátir fyrir
þennan stuðning. Ljóst sé að Píratar
í Kópavogi séu að njóta góðs af þeim
mikla meðbyr sem Píratar njóti nú um
stundir.
„Já, ég held að það sé óhætt að
segja það, að hægt sé að rekja þetta
að mestu til þess og góðra starfa hjá
þingflokknum upp á síðkastið. Við
erum auðvitað ekki með neinn mann
inni í bæjarstjórn núna þannig að við
höfum ekki verið að gera neitt þar
sem hefur verið að vekja lukku endi-
lega. Þetta er rosaleg fylgisaukning
sem Píratar hafa verið að fá á lands-
vísu, og þeir hafa verið að vaxa mik-
ið þar þannig að það kemur mér ekk-
ert rosalega á óvart að það smitist út í
bæjarpólitíkina líka. Ég held að fólk sé
líka alltaf að verða betur upplýst um
grunngildi Pírata um gegnsæi í stjórn-
sýslu og aukinn sjálfsákvörðunarrétt
einstaklinga og það vinnur með okk-
ur til lengri tíma með aukinni umfjöll-
un. Og það er að festa ákveðið fylgi við
flokkinn.“
Ingólfur Árni segir að Píratar hafi
ekki náð nægilega vel í gegn í Kópa-
vogi síðast, þeir hafi verið seinir inn
í kosningabaráttuna og hlutirnir hafi
því ekki gengið alveg eftir. „En ég
hef fulla trú á því að það gangi betur
næst.“
Niðurstaða könnunarinnar sýnir
að svo virðist sem eftirspurn sé eftir
Pírötum í bæjarpólitíkinni í Kópavogi,
sérstaklega á meðal yngsta hópsins,
18–24 ára, þar sem þeir mældust með
46 prósenta fylgi í þeim aldurshópi í
könnuninni. Félagið hefur verið virkt
að einhverju leyti frá síðustu kosning-
um. Ingólfur segir að frá sínum bæj-
ardyrum séð sé á hreinu að það verði
framboð Pírata í Kópavogi í næstu
bæjarstjórnarkosningum. Hann
bendir á að það séu allir velkomnir að
taka þátt í starfi Pírata og ef einhverjir
vilji taka þátt og vinna með félaginu sé
það öllum opið.
Þreytt á yfirborðskenndum
loforðum
„Mín tilfinning er að þetta er ákall
á breyttar áherslur,“ segir Birgitta
Jónsdóttir, þingmaður Pírata og einn
forsprakka flokksins, aðspurð um
niðurstöður könnunarinnar í Kópa-
vogi. „Fólk er orðið mjög þreytt á
þessum yfirborðskenndu loforðum
sem hljóma vel fyrir kosningar en
er svo ómögulegt að framkvæma.
Fólk vill bara fá upplýstari leiðir til
að geta haft áhrif beint. Maður sér að
það eru miklar væringar víða og ég
held að fólk sé að kalla eftir opnari
og ábyrgari ákvörðunarferlum sem
kjósendur geta tekið þátt í. Og það er
mjög mikilvægt að þeir sem vilja fara
fram fyrir Pírata séu mjög ákveðn-
ir í því að þannig vinnubrögð séu
ástunduð. Það er mjög mikilvægt.“
Björt framtíð í frjálsu falli
Önnur tíðindi í könnuninni eru þau
að Sjálfstæðisflokkurinn heldur ster-
kri stöðu sinni, mælist með 36,5 pró-
senta fylgi en hlaut 39,3 prósent í
síðustu kosningum. Aðrir flokk-
ar tapa fylgi. Sér í lagi Björt framtíð,
sem myndaði meirihluta í Kópavogi
með Sjálfstæðisflokki í kjölfar síðustu
kosninga. Björt framtíð mælist nú
með aðeins 6,1 prósents fylgi en náði
15,2 prósentum í síðustu kosningum.
Samfylkingin fer úr 16,1 prósenti í síð-
ustu kosningum í 10,5, Framsóknar-
flokkurinn úr 11,8 prósentum í 7,4 og
Vinstri græn úr 9,6 prósentum í 8,9.
Aðrir flokkar mælast með 4,6 pró-
senta fylgi í könnuninni. Meirihlutinn
fer því úr 54,5 prósentum í kosningum
niður í 42,6 prósent og væri því að lík-
indum fallinn.
Ofangreind netkönnun var unnin
af Gallup fyrir einkahlutafélag í eigu
stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins
í Kópavogi. Markmiðið var að kanna
fylgi framboða ef kosið yrði til bæjar-
stjórnar í Kópavogi í dag, ásamt því að
mæla ánægju með störf bæjarstjór-
ans. Um var að ræða netkönnun þar
sem úrtökin samanstóðu af einstak-
lingum, 18 ára og eldri, búsettum
í Kópavogi, handahófsvöldum úr
Viðhorfshópi Gallup.
Spurt var annars vegar, á tímabil-
inu 18. nóvember til 7. febrúar: Ef
kosið yrði til bæjarstjórnar í Kópavogi
í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú
kjósa/líklegast kjósa? Úrtakið fyrir
þessa spurningu var 1.666, fjöldi svar-
enda 925, 741 svaraði ekki og þátt-
tökuhlutfallið 55,5 prósent.
Hins vegar var spurt, á tímabilinu
2. desember–7. febrúar: Ertu ánægð(-
ur) eða óánægð(ur) með störf Ár-
manns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra
Kópavogs? Úrtakið fyrir þessa spurn-
ingu var 1.234, fjöldi svarenda 726,
508 svöruðu ekki og þátttökuhlutfallið
58,8 prósent. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Með fullar kistur fylgis Píratar mælast með 26,3% fylgi í Kópavogi á sama tíma og flestir aðrir flokkar þar dala frá niðurstöðum kosn-
inganna 2014. Píratar náðu ekki inn manni þá en myndu samkvæmt könnuninni láta verulega finna fyrir sér ef gengið yrði til kosninga nú.
Innrás Pírata í Kópavogi
Framsóknar-
flokkur
SamfylkingSjálfstæðis-
flokkur
Píratar Vinstri græn og
félagshyggjufólk
7,
4
%
10
,5
%36
,5
%
26
,3
%
8
,9
%
11
,8
%
16
,1
%3
9
,3
%
4
% 9
,6
%
Svona mælast flokkarnir í könnuninni og svona gekk
þeim í síðustu kosningum.
Könnun
2016
Könnun
2016
Könnun
2016 Könnun
2016 Könnun
2016
Könnun
2016 Könnun
2016
Björt framtíð Annan
flokk/lista
6
,1
%
15
,2
%
Kosningar
2014
Kosningar
2014
Kosningar
2014
Kosningar
2014
Kosningar
2014
Kosningar
2014
4
,3
%
*Spurning: Ef kosið yrði til
bæjarstjórnar í Kópavogi í dag,
hvaða flokk eða lista myndir
þú kjósa/líklegast kjósa?*
Kemur ekki á óvart Ingólfur Árni
Gunnarsson var oddviti Pírata í Kópavogi
í síðustu sveitarstjórnarkosningum, þá
aðeins 23 ára.
Ánægja með Ármann 40,5 prósent eru ánægð með störf Ármanns Kr. Ólafssonar,
bæjarstjóra Kópavogs, samkvæmt könnuninni. Mynd Sigtryggur Ari
Ánægð(ur)
40,5%
Óánægð(ur)
20,2%
Hvorki né
39,2%
Ánægja með Ármann
*Spurning:
Ertu ánægð(ur)
eða óánægð(-
ur) með störf
Ármanns Kr.
Ólafssonar,
bæjarstjóra
Kópavogs?*