Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2016, Blaðsíða 30
Vikublað 16.–18. febrúar 201630 Fólk
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
TANITA FITUMÆLINGAVOGIR
Nauðsynleg hjálpartæki eftir jól
Nánari upplýsingar á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
Tengist við iPhone
með Bluetooth
Leo kom, sá og sigraði
B
AFTA-verðlaunin voru af-
hent í Royal Opera House í
London síðastliðið sunnu-
dagskvöld að viðstöddum
stórstjörnum sem margar
höfðu komið langa leið. The
Revenant var ótvíræður sigurvegari
kvöldsins eins og fyrirfram hafði
verið veðjað á. Myndin hlaut fimm
verðlaun, var valin besta myndin,
Alejandro Inarritu hlaut verðlaun
fyrir leikstjórn, Leonardo DiCaprio
var valinn besti karlleikarinn og
auk þess fékk myndin verðlaun fyr-
ir hljóðupptöku og kvikmyndatöku.
DiCaprio var gríðarlega vel fagnað
þegar tilkynnt var um sigur hans.
Ræða hans, þar sem hann hyllti
móður sína, var mjög líklega besta
ræða kvöldsins.
Brie Larson var valin besta leik-
konan fyrir leik sinn í The Room.
Besti aukaleikari var Mark Rylance
í Bridge of Spies og Kate Winslet
var valin besta aukaleikkona fyr-
ir frammistöðu sína í Steve Jobs.
DiCaprio og Larson þykja líkleg
til að hreppa Óskarsverðlaun í ár
og þar veðja menn sömuleiðis á
að The Revenant verði valin besta
kvikmyndin. n
ritstjorn@dv.is
n Stórstjörnur mættu á BAFTA n The Revenant varð sigurvegari kvöldsins
Kampakátir sigurvegarar Alejandro Inarritu og Leonardo DiCaprio fögnuðu sigri. Það kom í hlut Tom Cruise
að tilkynna hvaða mynd þætti besta mynd ársins. Hann fagnaði þeim félögum.
Steven Spielberg og Kate Capshaw eigin-
kona hans Spielberg tók við verðlaunum Mark Rylance sem hlaut BAFTA fyrir leik
sinn í Bridge of Spies. Rylance var að leika á sviði í New York og komst ekki á hátíðina.
Vel klæddur á
BAFTA Idris Elba var tilefndur sem
besti aukaleikari fyrir leik sinn í Beasts of
No Nations.
Í sigurvímu
Kate Winslet hélt tilfinninga-
þrungna ræðu eins og hennar
var von og vísa. Hún er vön að
fá verðlaun og gleðst innilega
í hvert sinn.
Ekki vel klædd
Jenny Beaven hlaut BAFTA fyrir bestu
búninga í Mad Max. „Einungis einn
besti búningahönnuður í heimi gæti
komið hingað klæddur eins og úti-
gangskona,“ sagði kynnirinn Stephen
Fry eftir að Beaven tók við verðlaun-
um sínum. Fry hefur verið harðlega
gagnrýndur vegna þessara orða.
Ætíð vel klædd Cate Blanchett var tilnefnd fyrir leik sinn í Carol.
Leikkonan frábæra vekur ætíð athygli á rauða dreglinum fyrir glæsilegan klæðaburð.