Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Page 4

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Page 4
Mynd: Krlstín Bogadóttir KONUR ÞURFA LYKLA TIL AÐ LJÚKA UPP DYRUM 1 egar Kvennalistinn bauð fram í fyrsta sinn til Alþingis árið 1983 var Guðrún Agnarsdóttir læknir í öðru sæti listans. Hún var þá nánast óþekkt og hafði engin afskipti haft af stjórn- málum. En hún ávann sér fljótt virðingu og vinsældir, langt út fyrir raðir Kvenna- listakvenna. Nú er hún hætt þingmennsku og stendur því á tímamótum. Við fengum hana til að skyggnast um þaðan og meta stöðu og framtíð Kvenna- listans og kvennahreyfingar- innar. Það er ekki fjarri lagi að líkja Alþingi við hamraborg. Húsið gefur tilefni til samlíkingar- innar en auk þess er Alþingi lokaður heimur sem lýtur sín- um eigin lögmálum. En hvern- ig leið frumkvöðlum Kvenna- listans á þingi, þeim Kristínu, Sigríði Dúnu og Guðrúnu, ný- gengnum í hamarinn vorið 1983? „Ég held að strax að aflokn- um kosningunum höfum við skynjað það mjög sterkt að við hefðum Qöregg á milli hand- anna og að við værum þarna fyrst og fremst á annarra veg- um. Mér hefur alltaf fundist ég vera í hlutverki sendiboða eða erindreka. Það var oftast áhyggjuefni fyrstu árin eftir hvert viðtal eða önnur við- skipti við fjölmiðla hvort við- komandi hefði lagt Kvennalist- ann niður með því að standa sig illa eða ekki nógu vel. Þetta hefur auðvitað ijátlast af okk- ur „. . . og allar komu þær aft- ur og engin þeirra dó“ og Kvennalistinn lifir og dafnar. En við Kvennalistakonur ger- um óskaplega miklar kröfur hver til annarrar vegna þess að krafan utan úr þjóðfélaginu er svo sterk um að við stöndum okkur. Við viljum vera að minnsta kosti fullkomnar. Þegar ég lít til baka þá finnst mér að þessi tími hafi umfram allt verið alveg geysilega lær- dómsríkur og jákvæður. Það sem hefur verið neikvætt hefur oftast verið eltthvað sem ég hef getað lært af. Ég myndi því eindregið mæla með þessari rejmslu við allar konur ef þær hafa nokkurn hug á stjórn- málastörfum. En fyrst og fremst er nauðsynlegt að trúa á málstaðinn og vera sannfærð um að hann eigi erindi inn í þingsali. Starf þingmanns er mjög krefjandi og tekur allan þinn tíma. Það verður gjarnan of lít- ill tími eftir fyrir fjölskylduna og sjálfa þig. En þannig er hugsjónabarátta - þú leggur allt í hana og fylgir málstaðn- um. Til þess að geta sannfært aðra er nauðsynlegt að vera heil og til að geta verið heil þarf að gefa mikið - bæði til- finningar og tíma.“ Áþessu vori hafa Kvenna- framboð og Kvennalisti starfað samfellt í rúm 9 ár, boðið fram í þrennum sveitar- stjórnarkosningum og þrenn- um þingkosningum. Þetta er án efa mun meira úthald en flestar konur óraði fyrir þegar af stað var farið árið 1981. í síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum hallaði hins vegar held- ur undan fæti og hafa ýmsir viljað túlka það sem svo að tími Kvennalistans sé liðinn. Ég spurði Guðrúnu hvernig þetta mál horfði við henni? „Mér finnst starf Kvenna- listakvenna mjög aðdáunar- vert. Allt er það unnið meira eða minna í frítíma eða tíma sem er tekinn frá einhverju öðru. Þó baráttueldurinn sé ekki skíðlogandi allan tímann og alltaf séu einhveijir að skvetta vatni á hann, þá lifir þó í glæðunum. Og það þarf ekki að blása kröftuglega til að loginn nái sér á strik. Þegar eitthvað gengur á, spretta kon- ur upp úr jörðinni og þær dríf- ur að hvaðanæva. Ég er í raun og veru alveg gáttuð á því hvað konur eru duglegar en mér finnst hins vegar ekkert skrít- ið þótt þær missi svolítið kraft- inn annað slagið og geti ekki haldið sjálfum sér og öðrum á floti. Það er eðlilegt að lýjast þegar svo lengi er að verki staðið. Við fengum svolítinn skell í síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum. Við tókum ef til vill ekki nægilegt mið af því að tíminn og aðstæðurnar hafa breyst. En við brugðumst við þessu eftir kosningar og það hefur orðið til þess að við erum núna miklu þrekmeiri en við vorum. Það hefur færst aukinn kraftur í Kvennalistann þótt öfl fyrir utan keppist við að spá fyrir um endalok hans. En andstaðan er sígild og áhuga- vert rannsóknarefni í sjálfu sér

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.