Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Blaðsíða 6
Elísabet Þorgeirsdóttir
HÚS
Hús eru til að sofa í
lifa
og elska í
en með hús á bakinu
brosum við ekki
hlaejum ekki
að vöxtum
sem liggja á gluggum
r\jótum ekki
hótunarbréfa
elskum ekki
höfuðstól sem vex
eins og hnúturinn
í maga okkar
þegar við störum á skjái
grátum í sófa
aelum á parket
í húsum
sem eru til
að lifa og elska í.
Ó, Ó, Ó STELPUR
Var það svona
sem það átti að verða?
Stóðum bjartsýnar
og sungum:
Áfram stelpur. . . .
Trúðum á eitthvað betra
hver á sinn hátt
Sáum það blika —
en stöndum nú
í biðröðum banka
með andvökubletti
í hnakka
ó, ó, ó stelpur. . . .
ELlSABET ÞORGEIRSDÓTTIR er
fædd árió 1955 og er ritstióri Neyt-
endablaðsins. Hún hefur gefið út
Ijóðabækurnar Augað i fjallinu, 1977
og Sa/t og rjómi, 1983. Elísabet skip-
ar 28. sæti Kvennalistans í Reykja-
vík I komandi kosningum.
GERÐUR KRISTIMÝ
VETRARLJÓÐ
Tunglið frosið
I Tjörninni
byltir sér undir ísnum
rökkrið kastar
rekum á daginn
og ég er þegar
farin að kvíða
dauða þínum.
GERÐUR KRISTNÝ er fædd árið
1970 og er í frönsku og bókmennt-
um I Háskóla (slands. Ljóð eftir hana
hafa m.a. birst í Lesbók Morgun-
blaðsins, Þjóðviljanum og Ljóðormi.
Vetrarljóð er úr bókinni Þessi ást,
þessi ást sem Háskóli (slands gaf út
nú í febrúar. Átti Gerður Kristný tvö
Ijóð í þeirri bók og er titill bókarinnar
sóttur í annað þeirra.
eins og ellin sé kynlaust og stéttlaust
fyrirbæri, en auðvitað byggjum við í ell-
inni á því sem lífið hefur fært okkur.
Það getur verið reginmunur á kjörum
gamals fólks og aðstæðum. Við vitum
að lífskjör kvenna eru almennt verri en
lífskjör karla og það batnar ekkert með
aldrinum. Sá munur sem er á fólki
gegnum lífið helst áfram í ellinni.“
Það er Sigríður Jónsdóttir félags-
fræðingur hjá Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar sem þetta segir en
hún er þátttakandi í samnorrænu verk-
efni sem felst í því að kanna lífskjör og
aðstæður eldri kvenna á Norðurlönd-
unum. Verkefnið er unnið að tilhlut-
an Norrænu ráðherranefndarinnar.
Ástæðan fyrir því að út í það var farið er
einföld: Konur lifa lengur en karlar og
þær eru verr settar en þeir.
„Gamlar konur á Norðurlöndunum
eru óskaplega stór hópur. Þar búa yfir
2 milljónir kvenna sem eru orðnar 65
ára og það má því segja að það sé her
gamalla kvenna á Norðurlöndunum.
Hlutfall þeirra er þó mismunandi eftir
löndum. Þannig eru konur, 65 ára og
eldri, 10% af öllum íbúum Svíþjóðar en
karlar 7.5%. Á íslandi eru konurnar 6%
en karlarnir 4.5%. Við íslendingar er-
um því þrátt fyrir allt yngri þjóð, ef svo
má að orði komast, heldur en Svíar. En
við fikrum okkur sama veg og þeir og
þjóðin mun eldast á komandi árum.
Það er hins vegar fátt sem bendír til
þess að hinn hlutfallslegi munur milli
kynja minnki. Ef við lítum svo á aldurs-
hópinn sem kominn er yfir áttrætt þá
eru 152 konur á íslandi á hverja 100
karla en í Finnlandi eru 267 konur á
þessum aldri á hverja 100 karla. ís-
lenskar konur hafa því fleiri karla til að
umgangast en þær finnsku. Ástæðan er
sú að stríðið tók svo stóran toll af
finnskum karlmönnum."
— En að hvaða leyti eru lífskjör eldri
kvenna Jrábrugðin lífskjörum eldri
karla?
„Niðurstöður okkar liggja enn ekki
fyrir en það er engu að síður hægt að
segja að það gíldi það sama um eldri
konur eins og þær sem yngri eru, þær
eru með lægri tekjur en karlar. Konur
sem eru fæddar upp úr aldamótunum
standa líka mun verr að vígi en karlar
hvað varðar lífeyrisréttindi. Þá gildir
það almennt að þær eru með minni
menntun en karlar. Ef við berum sam-
an konur og karla á Norðurlöndunum,
sem eru komin yfir 55 ára aldur, þá er
mun líklegra að konur séu bara með
skyldunám og formleg menntun
kvenna minnkar með hækkandi aldri.
Hvergi á Norðurlöndunum er bilið milli
kynja, hvað þetta varðar, eins mikið og
á íslandi. Þetta hefur auðvitað áhrif á
stöðu kvenna hér á landi því það er
visst samhengi milli menntunar og bet-
ur launaðrar atvinnu — það hefur að
minnsta kosti verið svo. Menntunar-
leysið á eflaust sinn þátt í því að eldri
konur á íslandi eru að miklum hluta í
einhæfum láglaunastörfum. Þá er mun
algengara á öllum Norðurlöndunum að
konur en karlar svari því játandi að
þær séu veikar eða finni fyrir ákveðn-
um sjúkdómseinkennum."
— Ellilífeyrisaldur er víðast hvar á
Norðurlöndunum lægri en hér á landt.
Leiðir það ekki aj sér meiri atvinnu-
þátttöku hjá eldri konum hér en ann-
ars staðar?
„Jú en við megum heldur ekki gleyma
að atvinnuleysi er meira þar en hér.
41% íslenskra kvenna yfir 65 ára aldrl
eru í einhverri launavinnu en aðeins
16% norskra kvenna. Þar við bætist að
íslenskar konur vinna líka lengri
vinnudag. Þetta sama á svo sem við um
aðra aldurshópa en það dregur ótrúlega
lítið úr vinnu með aldrinum, eins og
maður hefði kannski ætlað."
- Eru lífskjör eldri kvenna ekki mis-
munandi ejtir þjóðjélagsstöðu þeirra?
„Konur eru ekki einlitur hópur frekar
en karlar en það eru kannski aðrir
þættir sem ákvarða stöðu þeirra. Það er
t.d. miklu líklegra að gamlar konur,
sem búa við góða félagslega stöðu, hafi
öðlast hana með hjónabandínu, ekki
vegna menntunar sinnar eða eigin
starfa. En það sama gildir um yngri
konur og þá vaknar óneitanlega sú
spurning hvað aukin menntun hafi í
raun fært konum. Það er líka greinileg-
ur munur á konum sem aldrei hafa
gifst eða eignast börn og hinum sem
eiga fjölskyldu. 15% gamalla kvenna hér
á landi hafa aldrei verið giftar eða í
sambúð og þetta er talsvert stærri hóp-
ur en á hinum Norðurlöndunum.
Það sem ég hef orðið vör við í fyrrl
könnunum, sem ég hef gert, er að þess-
ar konur eru afskaplega mikið einar og
einmanaleiki þeirra kemur skýrar fram
en hjá körlum sem aldrei hafa kvænst.
Þó þær hafi aldrei gifst eru þær samt
vanar því að vera í umönnunarhlut-
verki, t.d. gagnvart bræðrum eða for-
eldrum, en þegar þær verða eldri er því
algerlega lokið. Þessar konur hafa yfir-
leitt verið tekjulágar, hafa aldrei haft
tök á að eignast eigið húsnæði og hafa
úr mjög litlu að spila í ellinni."
— Þegar Jram líða stundir verða ung-
ar og miðaldra konur gamlar. Heldur
þú að staða þeirra verði önnur en
staða gamalla kvenna er í dag?
„Ég held að það verði tvímælalaust
breytingar á stöðu gamalla kvenna í
framtíðinni. Staða okkar í ellinni breyt-
ist í takt við breytingar í þjóðfélaginu.
Konur sem hafa aílað sér menntunar
og tekið þátt í atvinnulífinu munu eiga
annars konar elli en gamlar konur í
dag. Þeim mun kannski reynast auð-
veldara að halda sér virkum en það geta
líka orðið ýmiss konar breytingar á
stöðu þeirra sem erfitt er að sjá fyrir.
Það hefur t.d. verið sýnt fram á að
streita er orðin mun algengari hjá kon-
um en körlum vegna þess að þær eiga
svo erfitt með að sameina heimilisstörf
og atvinnuþátttöku. Við vitum ekki
hvaða áhrif þetta hefur á heilsufar
þeirra í framtíðinni. Það kann líka vel
að vera að ýmsir sjúkdómar, sem hing-
að til hafa fyrst og fremst hrjáð karla,
leggist í ríkari mæli á konur. Það getur
því vel verið að íslenskar konur verði
ekkert allra kerlinga elstar þegar fram
líða stundir.
Þó að konum í dag reynist tiltölulega
létt að afla sér menntunar þá breytir
það kannski ekki svo míklu um stöðu
þeirra í ellinni ef þær eru barnlausar og
ógiftar. Þær gætu orðið í svipaðri stöðu
og menntunarlausar ógiftar konur í
dag. Það er aftur á móti staðreynd að í
dag eignast íleiri konur en áður börn
þó það séu færri börn á hverja konu.
Þetta skiptir talsverðu máli upp á fram-
tíðina. Börn eru ákveðin trygging gegn
einsemd í ellinni því að það deyja þá
ekki allir á undan þér.“
- Mun Jleiri giftar konur stunda nú
launavinnu en áður. Heldur þú að
þetta muni gera það að verkum að
Jjárhagsleg staða gamalla kvenna
batni íJramtíðinni?
„Kannski almennt en eftir sem áður
verður talsverður munur á fjárhagslegri
stöðu gamalla kvenna og karla. Konur
eru mjög illa settar í lífeyrissjóðakerf-
inu vegna þess að þær borga lægri ið-
gjöld þar sem þær hafa lægri laun. Þar
að auki hverfa þær oft af vinnumarkaði
ákveðinn tíma meðan börnin eru lítil.
Þær fá því lægri greiðslur til baka þegar
þær komast á eftirlaunaaldurinn. Líf-
eyrisgreiðslur miðast hins vegar við
launataxta svo það getur vel verið að
karlar fari að vakna og átti sig á því, að
það kemur þeim í koll á elliárunum að
launataxtar séu lágir og launum þeirra
sé haldið uppi með öðrum hætti meðan
þeir eru yngri."
ISG