Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Qupperneq 11

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Qupperneq 11
GRUNDVÖLLUR KVENNALISTANS Kvennalistinn er stjórnmálaafl sem vill breyta samfélaginu og setja virðingu fyrir lífi og samábyrgð í önd- vegi. Við viljum samfélag þar sem kvenfrelsi ríkir. Við viljum að hið besta úr reynslu og menningu kvenna verði haft að leiðarljósi þegar stefna er mörkuð í samfélaginu, ekki síður en hið besta úr reynslu og menningu karla. Kvenna- listinn vill varðveita og þróa hið jákvæða í lífssýn kvenna og nýta það í þágu samfélagsins alls. Hann er hvorki á vinstri né hægri væng stjórnmálanna, heldur kvennapólitísk stjóm- málahreyfing. Kvennalistinn er því ný vídd í íslenskum stjómmálum. Þrátt fyrir lagalegt jafnrétti er langt frá því að staða kvenna og karla í þjóðfélaginu sé sambærileg. Ein megin- ástæða þess er að rótgrónar hugmyndir um konur, stöðu þeirra og hlutverk, gera ekki ráð fyrir því að þær standi jafn- fætis körlum. Því hefur m.a. ekki verið tekið nægilegt mið af stöðu og þörfum kvenna við stefnumótun, lagasetningu og stjómun þjóðfélagsins. Atvinnuþátttaka kvenna er orðin almenn, enda efnahags- leg nauðsyn fyrir langflest heimili landsins. Engu að síð- ur em ólaunuð störf á heimil- um og umönnun bama enn nær eingöngu á ábyrgð kvenna og sá tími sem þær hafa aflögu fýrir sjálfar sig og áhugamál sín því mjög takmarkað- ur. Formleg völd karla em mun meiri en kvenna og gildir einu hvert litið er í þjóðfélaginu. Þótt konur hafi haft kosningarétt og kjörgengi hér á landi frá árinu 1915, em þær einungis um fimmtungur þingmanna og hlutur kvenna í opinberum nefndum, stjórn- um og ráðum er sáralítill og snöggtum minni en á öðmm Norð- urlöndum. Kvennalistinn telur þetta óvið- unandi ástand sem sé samfélag- inu öllu til tjóns. Allt sem getur orðið til að bæta stöðu kvenna skilar sér í réttlátara og betra þjóðfélagi fyrir alla. Kvennalist- inn stefnir að samfélagi þar sem konur og karlar geta verið virk í atvinnulífi, í fjölskyldu- lífi og við mótun samfélagsins, samfélagi þar sem kynferði ákvarðar ekki stöðu fólks, samfélagi þar sem dagvinnu- laun fyrir 6-8 stunda vinnudag nægja til viðunandi fram- færslu einstaklings og samfé- lagi sem virðir réttindi og þarf- ir bama. Kvennalistinn leggur sam- tímis áherslu á að konur eiga sameiginlega reynslu og menn- ingu og að aðstæður kvenna em breytilegar og konumar sjálfar um leið. Kvennalistinn gengur annars vegar út frá sameiginlegri reynslu og menningu allra kvenna sem m.a. einkennist af þáttum eins og líffræðilegri sér- stöðu og kven- legri sjálfsmynd sem mótast hefur í aldanna rás. Þetta leiðir af sér annað verðmæta- mat og önnur lífs- gildi en þau sem ríkja í veröld karla. Hins vegar leggur Kvenna- listinn áherslu á að konur em mis- munandi sem einstaklingar og að staða og að- stæður kvenna, bæði í einkalífi og á vinnumarkaði, em marg- breytilegar. Verkakona kynn- ist öðmm erfið- leikum sem hefta frelsi hennar en fóstra, bóndi, nemi, læknir, lög- fræðingur eða heimavinnandi húsmóðir. Aðstæður kvenna em líka breytilegar eftir byggðalögum, aldri, menntun, bamafjölda og hjúskapar- stöðu. Það er nauðsynlegt fyrir kvenfrelsisafl að hlusta á mis- munandi raddir kvenna, virða fjölbreytileika þeirra og taka mið af honum í allri stefnu- mörkun. Virða verður rétt allra kvenna til að velja sér þann lífsfarveg sem þær kjósa og gera þeim um leið kleift að vera efnahagslega sjálfstæðar. Þetta teljum við mikilvægar gmnd- vallarforsendur kvenfrelsis. Kvennalistinn leggur áherslu á að hlutverk kvenna í samfé- laginu er mótað af sögu okkar og menningu og að mikilvægt er að konur hafi áhrif á þær þjóðfélagsaðstæður, sem ákvarða stöðu þeirra. Framboð til Alþingis er ein þeirra leiða sem við fömm til að auka áhrif kvenna og bæta stöðu þeirra. Kvennalistinn er stjómmála- afl þar sem lýðræði og vald- dreifing situr í fyrirrúmi. Hann er byggður upp á for- sendum kvenna en ekki eins og hefðbundin valdakerfi sem karlar hafa mótað. Ábyrgðin dreifist á margar hendur svo að engin þarf að skuldbinda sig umfram það sem hentar miðað við aðstæður hjá hverri og einni. Mannkynið stendur frammi fyrir miklum vanda. Umhverf- isspjöll, mengun, stríðsátök og ójöfnuður ógna öllu lífi jarðar. Kvennalistinn vill snúa við blaðinu, setja virðingu við Móður Jörð í öndvegi og stuðla að þjóðfélagi sem er í sátt við allar þjóðir og byggir á jafn- vægi manns og náttúm. Til að svo megi verða þarf hugarfars- byltingu. Konur hafa dýrmætri reynslu og viðhorfum að miðla, reynslu sem ætti að nýtast vel til að sveigja af braut eyðilegg- ingarinnar og inn á veg lífsins og réttlætisins. STJÓRNARAÐILD - STJÓRNARAÐHALD HVORT TVEQGJA ER MIKILVÆGT í LVÐRÆÐISÞJÓÐFÉLAGI Kvennalistakon- ur fengu ekki alvarleg tilboð um þátttöku í ríkisstjórn eft- ir kosningarnar 1983, enda að- eins 3 óþekktar þingkonur til viðtals og mikil tortiyggni í garð þeirra. Annað varð uppi á teningnum eftir kosningarnar 1987 þegar kjósendur höfðu sýnt þessari ungu grasrótar- hreyfingu það traust að tvö- falda fylgið og tölu þing- kvenna. Gömlu flokkamir skildu skilaboðin og knúðu dyra hjá Kvennalistakonum. Eftir hefðbundnar þreifingar var sest að viðræðuborði með fulltrúum Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. Víðræðum- ar stóðu í heila viku, en leiddu ekki til myndunar ríkisstjóm- ar. Áherslumunurinn var of mikill. Að mati Kvennalistans átti það að vera forgangsverkefni þeirrar ríkisstjómar að styrkja stöðu fjölskyldunnar og bæta kjör og aðstæður kvenna og barna. Okkur fannst útilokað að slá slíku á frest, meðan unnið væri að öðm meginverk- efni, sem var tiltekt í ríkis- búskapnum, hagræðing og gagnger endurskoðun tekjuöfl- unar ríkissjóðs. Einnig lögð- um við áherslu á eflingu menntunar, menningar- og rannsóknarstarfsemi, aukna valddreifingu í stjórnkerfinu, umbætur í umhverfismálum, aukið framboð félagslegs hús- næðis og stöðvun hernaðar- framkvæmda í landinu. í reynd snemst þó viðræð- urnar að langmestu leyti um það, sem Kvennalistakonur settu sem skilyrði fyrir aðild að ríkisstjóm, þ.e. tryggingu launa, sem dygðu til fram- færslu. Afstaða okkar er einfaldlega sú, að það sé lágmarkskrafa, að afrakstur fullrar dagvinnu dugi a.m.k. fyrir brýnustu nauðsynjum. Því var það til- laga okkar, að framfærslu- kostnaður einstaklings yrði lagður til gmndvallar og jafn- vel lögbundið, að laun fyrir fulla dagvinnu yrðu ekki undir því marki. Fulltrúar Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks treystu sér ekki til að samþykkja þetta úr- slitaatriði Kvennalistans, og á því strönduðu viðræðumar. Kjósendur virtust kunna að meta þessa afstöðu okkar og sýndu það með sívaxandi fylgi við Kvennalistann allt næsta ár. Þá kom hins vegar sprengj- an mikla, þegar slitnaði upp úr samstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðu- flokks. Á örfáum dögum í sept- ember 1988 var mynduð ný stjóm tveggja síðamefndu með tilstyrk Alþýðubandalags og Stefáns Valgeirssonar, eins konar „happaþrenna með bón- us“, og ári síðar var svo Borg- araflokknum kippt um borð. í bæði skiptin átti svo að hetta, að Kvennalistanum stæðl til boða aðild að ríkisstjórn, sem hann þáði ekki. Óvildar- menn Kvennalistakvenna hafa óspart neytt færis að bregða þeim um hugleysi og ábyrgðar- leysi og hafa uppskorið nokk- uð við dreifingu þess áburð- ar. Sannleikurinn er hins vegar sá, að Kvennalistakonum stóð það eitt til boða við myndun ríkisstjórnarinnar haustið 1988 að hnýta slaufu á tilbú- inn pakka guðfeðra núverandi ríkisstjórnar, sem þeir msluðu saman á nokkmm klukku- stundum. Ógeðfelldasta inni- hald þess pakka var fiysting launa og heftur samningsrétt- ur launafólks, sem fulltrúar Al- þýðuflokks og Framsóknar- flokks töldu eina af meginstoð- um undir þeim gmndvelli, sem stjórnarmyndun þeirra hvíldi á. Alþýðubandalagið studdi það sjónarmið með stjómarþátttöku. Launafrystingin og fjötrun samningsréttar launafólks var óyfirstíganlegur þröskuldur að mati Kvennalistakvenna, sem öxluðu þá ábyrgð að vera trúar grundvallarsjónarmiðum, þótt það kostaði tækifæri til stjóm- arþátttöku. í því efni komu engir samningar né undan- sláttur til greina. Kvennalistakonur- hafa sett mark sitt á stjórnmálin á síð- ustu ámm og sá tími kemur vafalaust fyrr en seinna, að þær láta til sín taka í ríkis- stjóm. Það getur þó ekki orðið í skiptum fyrir grundvallarmál eins og rétt fólks til þess að semja um kjör sín. Því má heldur ekki gleyma, að í lýð- ræðisþjóðfélagi er virk og ábyrg stjórnarandstaða ekki síður mikilvæg en stjórnarað- ild. Hlutverk stjómarandstöðu er að veita ríkisstjórn aðhald og standa vörð um lýðræðlð í hvívetna, og það hlutverk taka Kvennalistakonur alvarlega. Markmið Kvennalistans er samvinna á málefnalegum gmnni, þar sem konur og karl- ar vinna hlið við hlið af gagn- kvæmri tillitssemi hvert fyrir annars vinnubrögðum og sjón- armiðum. Því öflugri stuðning sem við fáum, þeim mun nær emm við því markmiði. Kristín Halldórsdóttir Höfundur er fyrrverandi þingkona Kvennalistans í ReyKjanesi og skipar nú 11. sæti listans. Hún vinn- ur fyrir þingflokk Kvennalistans.

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.