Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Page 12
VOPNIN KVÖDD
Mynd úr febrúarheftl HOT PRESS
vaða afstöðu
hafið þið til
utanríkis-
mála?“ vorum
við Kvenna-
listakonur stundum spurðar
um það leyti er fyrsta stefnu-
skrá okkar leit dagsins ljós á
vordögum 1983. Oft svöruðum
við með tilvísun í stefnuskrána
okkar: „Við viljum að íslensk
stjórnvöld taki afstöðu gegn
vígbúnaði, bæði heima fyrir og
á alþjóðavettvangi, því ógnar-
jafnvægi leiðir ekki til öryggis.
Við viljum að stjómvöld beiti
áhrifum sínum hjá alþjóða-
samtökum til eílingar friði og
alþjóðlegri réttarvemd.“
Viðbrögð manna við stefnu
okkar vom æði misjöfn. Við
vomm vændar um að reka
ekki alvöru utanríkispólitík.
Friðarmál töldust á þeim tíma
ekki með alvömstjómmálum.
Ekki hvarflaði það að mönnuro
á þessum ámm að Berlínar-
múrinn yrði fallinn innan ára-
tugar og kalda stríðinu lyki.
Það færi að minnsta kosti „í
frí“, og friðarmál kæmust á ný
í brennidepil.
Allt gerðist þetta þó og um
stund trúðu menn því að hægt
væri að búa við annað ástand
en tvö stórveldi grá fyrir járn-
um hvórt á móti öðm, með
kjamorkuvopnabirgðir sem
duga til að eyða mannkyninu
þúsund sinnum. í Evrópu
eygðu menn loks von um að
vopnum yrði eytt, stríð stöðv-
uð — bæði heit og köld — og
vopnaframleiðendur snem sér
jafnvel að framleiðslu eftirlits-
búnaðar með friðinum eða ein-
hveiju enn nytsamlegra. Hug-
arfar hermennskunnar átti
ekki upp á pallborðið lengur.
Margra ára hernaðarhyggja
skildi því miður eftir sig ban-
vænan arf í vopnum og við-
horfum. Vopnum hefði aldrei
verið beitt í styijöldinni við
Persailóa nema vegna þess að
enn vom of margir sýktir af
hugarfari hermennskunnar:
Því hugarfari að ef menn
ágimast eitthvað sé réttlætan-
legt að drepa til að öðlast það.
Efast nokkur um að stríð snú-
ist um verslun og viðskiptl, en
ekki frið og frelsi?
Því hugarfari að hægt sé að
„sigra“ í styijöld. Að kvöldi
fyrsta dags stríðslns við Persa-
flóa hittl ég tvo ellefu ára
stráka, son minn og vln hans,
og spurði þá varlega hvort eitt-
hvað væri rætt um stríðið í
skólanum þeirra. „Er það ekki
búið núna? Pabbi eins stráks-
ins í okkar bekk sagði að það
yrði búið áður en við kæmum
heim úr skólanum.“ Mér
fannst þetta barnalega sagt en
þegar ég opnaði fyrir fjölmiðl-
ana heyrði ég virtustu sérfræð-
inga landsins taka undir þá
barnalegu heimsmynd sem
endurspeglast í þessum orð-
um. Menn héldu að eins dags
stríðsleik væri lokið og dásöm-
uðu þessa stílhreinu „lausn“
sem var svo miklu einfaldari
en að setjast að samningaborð-
inu og glíma við margra ára
óleystan vanda Miðaustur-
landa.
Nú vita menn að þessi sýn
var heimskuleg. Stríðið hefur
þegar kostað hörmungar og
eyðileggingu. Saklausir borg-
arar hafa falllð, hatur og tor-
tíming em fylgifiskur þessa
stríðs eins og allra annarra
stríða.
Vilji menn frið á nýjan leik
þarf annað hugarfar en það
sem birtist í herskáum yfirlýs-
ingum ráðamanna styijaldar-
þjóðanna og endurspeglast í
stríðssíbyljunni sem dynur á
landsmönnum gegnum sjón-
varpsrásimar. Konur hafa
alla tíð mælt fyrir friði og haft
það hlutverk í samfélaginu að
hlúa að lífinu, ungviðinu og
vemda það.
Konur um allan heim em
reiðubúnar til að taka höndum
saman til að snúa gangi mála
við og vinna að friði. Þær vilja
ekki að í framtíðinni leysi böm
þeirra samskiptavandamál sín
með ofbeldi. Slíkt mun aðeins
leiða stríð yfir komandi kyn-
slóðir, stríð sem felur í sér tor-
tímingu og jafnvel gereyð-
ingu.
ANNA ÓLAFSDÓTTIR
BJÖRNSSON
Höfundur er þingkona og skipar
efsta sæti Kvennalistans I
ReykJanesKiördæmi í komandi
kosningum.
í söludeildum Pósts og síma býðst pér gott úrval af
vönduðum símtœkjum auk alhliða símaþjónustu
Söludeildir Pósts og síma um land allt bjóða eingöngu viðurkenndan
úrvalsbúnað og örugga viðgerðar- og viðhaldsþjónustu.
Hjá okkur færðu gott úrval af allskyns símtækjum og aukabúnaði á góðum
greiðslukjörum.
PÓSTUR OG SÍMI
Póst- og símstöðvar um land allt og söludeildir
Kringlunni, Kirkjustræti og Ármúla 27.