Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Page 13

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Page 13
MOLAR í samningagerð snemma árs 1989 var fulltrúum ASÍ og VSÍ ljóst að óeðlilega mikill munur væri á launum karla og kvenna. Eitthvað yrði að gera. Því var samþykkt að láta eftir- farandi bókun fylgja kjara- samningnum: „Aðilar eru sammála um að stefnt skuli að aukinni hlut- deild kvenna í stjómunarstörf- um í fyrirtækjum. Jafnhliða þessu er stefnt að því að konur takist á hendur ábyrgðarmeiri og hærra laun- uð störf. Aðilar em sammála um að skipa viðræðuhóp, sem skoði hver þróun launamunar karla og kvenna hefur verið, hvað skýri hann og kanni leiðir til að draga úr honum.“ Tvö ár em síðan bókunin var gerð. Nefndin var skipuð. Hún hefur aldrei komið saman. Það er kapítuli út af fyrir sig. Hitt er ekki síður umhugsunarefni að bókunin er skólabókar- dæmi um það hefðbundna mat á kvennastörfum sem heldur launum kvenna niðri. Hvað felst t.d. í annarri efnisgrein bókunarinnar? „Hættu nú að blessa!,“ sagði tröllið forðum við Guðmund biskup góða og eins mætti segja við aðila vinnumarkaðar- ins: Hættið nú að kanna! Látið verkin tala! MOLAR Árið 1953 kom út vísinda- skáldsagan Stálhellar eftir Is- aac Asimov. Þar er því lýst hvernig við mennimir munum búa einhvem tíma í fjarlægri framtíð. Heilu borgimar em yfirbyggðar, íbúamir hafa aldrei fundið ferska vinda leika um sig, né notið sólar nema í gegnum gler og öræfin heilla ekki, þau ógna. Menn lifa líkt og molvörpur. Lausnin í sög- unni er að flytja til fjarlægra pláneta, landnám á öðmm hnöttum. Þetta virðist auðvitað bæði fáránlegt og fjarlægt okkar samfélagi - en er það svo við nánari skoðun? Við byggjum glerkastala til að njóta útsýnis úr í stað þess að skokka upp á hlíðarbrúnir og líta yfír landið. Rætt er um yfirbyggðar göngu- götur og við byggjum bfla- geymslur undir húsum, eina, tvær og allt að fjórum hæðum niður í jörðina. Trúlega má sjá góðar hliðar á þessu öllu sam- an en hvað um það nýjasta? Nú em hugmyndír uppi um að byggja bflastæði undir Austur- velli! Kannski framtíðarsýn Isaacs Asimovs hafi ekki verið svo fjarri lagi eftir allt saman! MOLAR í október 1987 fór fram ut- andagskrámmræða á Alþingi ma SMJÖRLÍKISGERÐ Akureyri Notaðu AKRA með öðruúrvals hráefni.... ogútkoman verður frábær! Súkkulaðiterta með rommkremi Léttþeytið 70 g AKRA smjörlíki, 90 g sykur, 90 g púðursykur og 3 egg. Hrærið saman við 150 g hveiti, xh tsk. natron, 2 tsk. salt, 25 g kakó og 150 g mjólk. Bakið við 190°C í 20 mínútur. Rommkrem Hrærið saman 50 g kakó, 500 g flórsykur og 350 g AKRA smjörlíki og bætið í rommdropum eftir smekk. Skreytið kökuna. Verði ykkur að góðu! um matarskattinn. Þá sagði Ólafur Ragnar Grímsson, nú- verandi fjármálaráðherra, um Jón Baldvln Hannibalsson, þá- verandi fjármálaráðherra: „Það stendur þess vegna, hæstvirt- ur fjármálaráðherra, ennþá á þér krafan um að draga matar- skattinn til baka. Þegar þú ert búinn að því getur þú komið og rætt við samtök launafólks. Fyrr en þú gerir það ertu brennimerktur sem maður, sem ekki er hægt að treysta.“ Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og Ólafur Ragnar inn í ríkisstjómina. Það skyldi þó ekki vera að samtímis hafi fjölgað í hópi brennimerktra um a.m.k. einn? MOLAR Um miðjan febrúar sýndi fjármálaráðherra stórmennsku sína og boðaði ríkisstarfs- mönnum 0.3% kjarabót frá og með 1. mars. Vegna þessa settu forsvarsmenn ASÍ, að virtist í náinni samvinnu við VSÍ, á svið mikið sjónarspil í fjölmiðlum sem gekk út á það að efnahagsbati væri enginn og því ekki hægt að bjóða hækkun. Ríkið hafði hins veg- ar fundið gífurlegan efnahags- bata og starfsmenn þess geta því fagnað mánaðamótunum með 0.3% launahækkun! PILSAÞYT lék forvitni á að vita hvernig konur í hópi ríkis- starfsmanna hyggðust halda upp á hækkunina. Kennslu- kona í gmnnskóla, sem út- skrifaðist úr Kennaraháskóla íslands 1981 og hefur stundað kennslu síðan, leyfði okkur að fylgjast með innkaupum sín- um eftir launahækkunina. Kennslukonan er í launaflokki 141-6 og fær því heilar 218 krónur í hækkun. Hún ætlaði að kaupa sér nýjar sokkabuxur fyrir glaðninginn — en því mið- ur, 218 krónur hmkku ekki til. En kennlukonan var ekki af baki dottin, hún sá fram á að hér eftir gæti hún bætt við innkaupalistann einu sinni í mánuði heilum lítra af mjólk, tveimur lítmm af undanrennu og 500 grömmum af skyri. Og hugsið ykkur, hún stendur uppi með 8 krónur í afgang! Er nema von að mennimir munn- höggvist? Mjolkursamlav Sauðárkróki-Sími 95-35200 13

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.