Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Side 20

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Side 20
20 SITJA STELPUR VIÐ STJÓRNVÖLINN? Mynd: Þórhlldur Garðarsdóttir Já að sjálfsögðu skiptir það máli en í raun skiptir það mestu máli að þeir sem þar starfa sinni hagsmunum nem- enda. — Hvemig finnst þér að hafa einungis stráka eða stelpur í stjórn nemendafélaga? Mér finnst mjög einhæft að hafa einungis annað kynið í stjórn þar sem sjónarmið þess geta orðið þröngsýn í garð hins kynsins. — Geturðu ímyndað þér hvers vegna stelpur veljast síð- ur í stjómir og trúnaðarstörf skólafélaganna heldur en strákar? Mér finnst stelpur þurfa að hafa meira fyrir hlutunum. Einnig finnst mér þær yfirleitt samviskusamari en stákar. Þetta er þó mjög einstaklings- bundið. Katrín Ósk Einarsdóttir, Flensborgarskóla. — Hefur þú hugleitt að taka að þér trúnaðarstörf á vegum skólans? Já, kannski seinna því ég hef mikinn áhuga á félags- störfum. - Finnst þér skipta ein- hveiju máli hvort strákar eða stelpur eru í stjórn eða trúnað- arstörfum fyrir félagið? Ég held að strákar og stelpur standi sig alveg jafn vel í þessu. — Hvernig finnst þér að hafa einungis stráka eða stelpur í stjórn nemendafélaga? Mér finnst nauðsynlegt að það séu bæði stelpur og strák- ar í stjórninni. — Geturðu ímyndað þér hvers vegna stelpur veljast síð- ur í stjórnir og trúnaðarstörf skólafélaganna heldur en strákar? Ætli krakkar haldi ekki að strákar þori meira heldur en stelpur. IMenntaskólanum við Sund stunda hátt á ní- unda hundrað nemend- ur nám og em álíka margar stelpur og strákar. Stjórn skólafélagsins er einungis skipuð strákum og stelpur eru innan við 20% þeirra sem gegna trúnaðar- störfum fyrir hönd nemenda. Ætli þetta sé dæmigert fyrir þátttöku stelpna í stjórnum og nefndum á vegum skólafélaga? Skiptir ef til vill engu máli hvort stelpur eru með í þess- um stjórnum? Þessum spurn- ingum verður svarað hér á eft- ir. Hlutverk skólafélaganna er að sjá um félagslífið í skólun- um. Félagslífið er oft æði fjöl- breytt, skemmtanir, menning- ardagskrár og íþróttaviðburð- ir. Félagslífið teygir sig jafnvel út fyrir veggi skólans, t.d. kannast flestir við spurninga- keppni og ræðukeppni fram- haldsskólanna. Trúnaðarstörf- um á vegum skólafélaga fylgir því mikil ábyrgð og þau veita nemendum mikla innsýn í stjórnunarstörf. Til að fá hugmyndir um hlut stelpna í trúnaðarstörfum var kannaður fjöldi stelpna í 10 framhaldsskólum á höfuðborg- arsvæðinu og 16 sérskólum og fjöldi stelpna í trúnaðarstörf- um. Misjafnt er eftir skólum hversu margir gegna trúnaðar- störfum enda er uppbygging félaganna ekki alls staðar með sama hætti. Könnunin leiddi m.a. eftirfarandi í ljós: Sex stelpur og einn kennari úr Menntaskólanum við Sund. væg fyrirmynd og sjálfar öðlast þær dýrmæta reynslu. Vilji þær starfa að félags- eða stjórnmálum seinna geta þær nýtt sér fyrri reynslu sína. Þær siyrkja einnig aðrar stelpur því telja má fullvíst að stelpum þyki eðlilegt að íhuga þátttöku í trúnaðarstörfum þegar þær sjá kynsystur sínar í þeim. Oft heyrist sú skýring að stelpur skorti bæði kjark og löngun til að taka að sér trún- aðarstörf. Vilji stelpur ekki stelpur stelpur í formenn alls trúnaðar- störfum Fjölbrautarsk. Ármúla 59 % 36 % strákur Fjölbrautarsk. Breiðh. 58 % 47% stelpa Fjölbrautarsk. Garðabæ 50 % 20% strákur Flensborg 55 % 64 % stelpa Kvennaskólinn 77 % 80 % stelpa Menntask. í Kópavogi 50 % 30 % strákur Menntask. í Hamrahlíð 59 % 43 % strákur Menntask. í Reykjavík 56 % 20 % strákur Menntask. við Sund 49 % 18 % strákur Verslunarskólinn 51 % 33 % stelpa (Heimild: Símanáman 90-91, símaskrá 10 framhaldsskóla) Könnunin gefur vísbending- ar sem draga má saman í þijá liði: 1. Ef strákar eru í meirihluta í nemendahópnum þá gegna þeir melrlhluta trúnaðarstarf- anna. 2. Þótt stelpur séu í meiri- hluta í nemendahópnum er sjaldgæft að þær gegni meiri- hluta trúnaðarstarfanna. 3. Hafi skólar bæði kynin í nemendahópnum gegna stúlk- ur ávallt hluta trúnaðarstarf- anna. í heild má draga þá almennu niðurstöðu að samhliða því sem stúlkum hefur fjölgað í framhaldsnámi hafa þær í auknum mæli tekið að sér trúnaðarstörf á vegum skólafé- laganna. Þeirra hlutur er þó rýrarl en hlutur strákanna í flestum tllfellum. Þótt hér hafí einungis verið litið á nokkra skóla, aðallega á höfuðborgar- svæðlnu, má ætla að það sama gildi um allt land. Stelpur sem gegna trúnaðar- störfum á vegum skólafélags- ins eru öðrum stelpum mikil- bjóða sig fram til trúnaðar- starfa má spyija hvort ástæðan gæti verið skipulagning skóla- félaganna. í mörgum skólum byggja skólafélögin á gamalli hefð frá því að strákar réðu einir ríkjum. Vera má að félög- in höfði því ekki nógu vel til stelpnanna. Með þátttöku í trúnaðarstörfum geta stelpur haft áhrif á starfsaðferðír og verksvið félaganna. Þær geta dregið sjónarmið og viðhorf stelpna upp á yfirborðið. Hlutur stelpna í trúnaðar- störfum í skólum er ekki stór en rödd þeirra heyrist þó. Miklu máli skiptir að stelpur prjóni sig áfram innan skólafé- laganna. Þannig öðlast þær reynslu sem einstaklingar, eru öðrum fyrirmynd og koma reynsluheimi stelpna á fram- færi. Sigurrós Erlingsdóttir Höfundur er framhaldsskólakenn- ari og kvennalistakona. Hér á eftir birtast svör fjög- urra framhaldsskólastúlkna við nokkrum spurningum varðandi skólafélög og þátt- töku stelpna í þeim. Tvaer þeirra stunda nám í Mennta- skólanum við Sund þar sem hlutur stelpna í stiómum og ráðum er rnjög Ktil. Hinar tvær eru nemendur í Flensborg en þar er stelpa formaður skóla- félagsins og hlutur stelpna í stjómum og ráðum stærri en hlutur stráka. Stella María Óladóttir, 4. bekk MS — Hefur þú hugleítt að taka að þér trúnaðarstörf á vegum skólans? Nei! — Finnst þér skipta ein- hveiju máli hvort strákar eða stelpur eru í stjórn eða trúnað- arstörfum fyrir félagið? Það skiptir kannski ekki höfuðmáli en það væri æski- legt að bæði kynin gegndu trúnaðarstörfunum því strák- ar eru oft kærulausari en stúlkur. — Hvemig finnst þér að hafa einungis stráka í stjórn félags- ins? Mér finnst það ekki nógu gott. — Geturðu ímyndað þér hvers vegna stelpur veljast síð- ur í stjórnir og trúnaðarstörf skólafélaganna heldur en strákar? Það em miklu færri stelpur sem bjóða sig fram því það virðlst ennþá vera við lýði að karlmenn veljist í stjómunar- stöður; það er helst að stúlkur bjóði sig fram til ritara. Hanna Margrét Einarsdóttir, 2. bekk MS — Hefur þú hugleitt að taka að þér trúnaðarstörf á vegum skólans? Nei! — Finnst þér skipta ein- hverju máli hvort strákar eða stelpur em í stjórn eða trúnað- arstörfum fyrir félagið? Nei! Mér finnst bara að hæf- ustu einstaklingarnir hveiju sinni eigi að vera í stjórn eða trúnaðarstörfum óháð hvom kyninu þeir tilheyra. - Hvemig finnst þér að hafa einungis stráka í stjórn félags- ins? Svo framarlega sem því er vel stjórnað skiptir það mig engu máli. — Geturðu ímyndað þér hvers vegna stelpur veljast síð- ur í stjórnir og trúnaðarstörf skólafélaganna heldur en strákar? Mun færri stelpur bjóða sig fram heldur en strákar. Ég trúi því að fólk kjósi ekki eftir kyni. Kannski kjósa strákar frekar stráka en fyrir mitt leyti kýs ég ekki fólk eftir kyni. Helga Laufey Guðmundsdóttir, Flensborgarskóla. — Hefur þú hugleitt að taka að þér trúnaðarstörf á vegum skólans? Ég hef gert það. Ég er núna oddviti nemendafélags Flens- borgarskóla og var formaður nemendafélagsins í Öldutúns- skóla veturinn 1985-’86. Ég hef líka starfað mikið í nefnd- um á vegum skólans. — Finnst þér skipta ein- hverju máli hvort strákar eða stelpur eru í stjórn eða trúnað- arstörfum fyrir félagið?

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.