Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Síða 11

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Síða 11
HJÚKRUNARKVENNABLAÐIÐ 9 Jónsdóttir, yfirhj.kona, Kleppi, varafull- trúi Ásta Guðmundsdóttii’, deildar- hj.kona, Landakotsspítala, Guðbjörg Árnadóttir, forstöðukona, Kumbaravogi, Helga Kaaber, heimilishj.kona, Reykjavík. Jóna Guðmundsdóttir, forst.kona, Kópa- vogi, Júlíana Guðmundsdóttir, aðstoðar- hj.kona, Landspítalanum, Katrín Gísla- dóttir, skurðstofuhj.kona, Ólafía Jónsdótt- ir, forstöðukona, Kleppjárnsreykjum, Sig- urlaug Helgadóttir, yfirhjúkrunarkona, Kristnesi. Auk þess tóku 2 aðrar ísl. hjúkrunar- konur, Ki'istín Þorsteinsdóttir og Ásta Hannesdóttir, þátt i mótinu, en þær starfa í Sahlgrenska sjúkrahúsinu i Gautaborg. Við lögðum af stað með flugvélinni „Geysi“ þ. 26. júni, því nokkrar í hópnum höfðu hugsað sér að taka þátt í fund- um, sem haldnir voru á undan mótinu, en það voru hjúkrunarkonur, læknar og prestar, sem stofnuðu til þeirra. Fjölluðu fundir þessir um samvinnu milli þessara aðilja og sjúklinga, og voru fyrirlestrarn- ir er þar voru haldnir, á siðfræðilegum og trúarlegum grundvelli, bæði fróðlegir og lærdómsríkir. Ég hafði því miður ekki tækifæri til þess að sitja þá, en við Rósa Sigfússon dvöldum þá daga úti á eyju í sænska skerjagarðinum og tókum þátt í fundahöldum ritara hinna norrænu fé- laga og Samvinnunnar, í því skyni að skipuleggja hjúkrunarkvennaskiptin og ýmis störf, sem á riturunum hvíla. Á þessari litlu eyju, sem mestmegnis er hyggð af sjómannafjölskyldum, var unað- ur að dvelja í nær 3 sólarhringa. Við bjuggum hjá fjölskyldu, en borðuðum og héldum fundina á matsöluhúsi eyjarinnar. Setning þingsins fór svo fram þ. 2. júlí í Másshallen, en sunnud. 1. júlí var guðs- þjónusta í dómkirkjunni, og finnst mér það ætíð mjög hátíðleg stund, þegar hjúkrunarkonur margra landa fylla stóra dómkirkju og búa sig í þögn til þátttöku í sameiginlegri guðsþjónustu. Þingið var sett að viðstaddri krónprinsessu Svía, sem var verndari þingsins. Anna Hjelm, for- maður félagsdeildarinnar í Gautaborg, bauð gesti velkomna ásamt Karin Elvers- sen, formanni S.S.N. Því næst talaði for- maður Foreningin Norden, Axel Gjöres um l)ýðingu norrænnar samvinnu og benti á, hve geysimikil aukning hefði orðið á skiptum starfsflokka hin siðari ár. Þá tók til máls Dr. Axel Höjer. Hann er gamall baráttumaður og brautryðjandi í heilsu- verndarmálum, fylgist vel með nýjum stefnum og er ótrauður að bera þær fram. Hann er oft langt á undan sínum tíma og mætti því skilningsleysi og mótspyrnu í fyrstu, eins og títt er um slíka menn. Síðan fylgdu kveðjur frá formanni Internationl Council of Nurses, Gerda Höjer, og ritara sama félagsskapar Daisy Bridges, og að lokum voru kveðjur bornar fram frá formönnum hinna norrænu félaga. Mörg og merkileg mál voru rædd á fundunum næstu daga, og verður vonandi hægt að lýsa þeim nánar seinna í blaðinu. Hér skal aðeins drepið á helztu málin. Störfum var hagað þannig, að fundarkon- um var skipt í flokka og gafst þeim á þann hátt kostur á að kynna sér betur á- hugamál síns eigin verkahrings. Nokkrir heildarfundir voru líka haldnir, og held ég, að 2 fundir hafi vakið einna mesta athygli. Sá fyrri fjallaði um samvinnu fag- samtaka og hjúkrunai’kvennafélaga, en þar hafði finnska hjúkrunarkonan og al- þingismaðurinn Kyllikki Pojaala fram- sögu, en síðari fundurinn var um starfs- greiningu innan hjúkrunar- og heilsu- verndarmálanna og var efnið sett fram með þeim hætti, að fundarkonur (en sal- ui’inn var nær fullskipaður )hlustuðu á viðræður nokkurra hjúkr.kvenna Norð- urlandanna um heppilega starfsgreiningu í sjúkrahjúkrun og heilsuvernd. Viðræð- urnar önnuðust þessar hjúkrunarkonur: Gerda Höjer og Astrid Staaf frá Svíþjóð, María Odgaard frá Danmörku, Rachel Ed-

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.