Fréttablaðið - 05.04.2017, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 05.04.2017, Blaðsíða 42
Frú Vigdís Finnboga-dóttir verður heiðurs-gestur  þegar skjala-safn Norræna hússins verður formlega opnað í kvöld klukkan 19,  í framhaldinu ætlar hún að segja frá minningum sínum sem tengjast húsinu.  „Vigdísi ólst upp á næsta horni, hún horfði á Norræna húsið í byggingu og hefur notað það mikið í gegnum tíðina,“ segir Kristín Kona Kristjánsdóttir, markaðs- og kynn- ingarstjóri. Þetta er upphafið að vikulegri dagskrá í Norræna húsinu sem er öllum opin, því flest miðvikudags- kvöld ársins héðan í frá verður opn- aður kassi úr skjalasafninu þar milli klukkan 19 og 21 og sögur sagðar. „Við munum halda upp á 50 ára afmæli Norræna hússins á næsta ári og byrjum undirbúninginn með því að biðja fólk að líta til baka og deila með okkur reynslu sinni og upplifun af húsinu og starfsemi þess. Einnig bjóðum við gestum að skoða og greina gamlar myndir og skjöl,“ segir Kristbjörg. Hún bendir á að samkvæmt reglum vinni starfsmenn Norræna húss- ins þar að hámarki átta ár í senn og þeir sem séu þar nú vilji rifja upp söguna í sameiningu með fólkinu sem noti húsið og eigi það með þeim. „Auðvitað eru endalausar sögur sem tengjast þessu menningarhúsi. Við opnuðum skjalageymsluna og fundum fullt af kössum með misvel merktum myndum. Þar eru ártöl en víða vantar nöfn og við spurðum hvert annað: Hverjir eru á þessum myndum, hvaða fólk er hér að gifta sig? En meðal þess sem grafið var upp var blaðaúrklippa sem á stóð að það besta sem gerst hefði á árinu 1968 væri að Norræna húsið hefði verið byggt!“ Hugmyndin er sú, að sögn Krist- ínar, að opna kassa frá einum ára- tug í einu á hverju miðvikudags- kvöldi  fram að 1. desember, að undanskildum júlí og ágúst. Einnig verður fyrrverandi starfsmönnum, arkitektum, ljósmyndurum og fólki sem notaði húsið stefnt þangað til að segja sögur. „Þetta ætlum við að taka upp á vídeó og fá líka almenn- ing til að skrifa niður frásagnir til að fólk framtíðarinnar geti fræðst. Jafnvel strax á næsta ári, sem er afmælisárið sjálft. Þá ætlum við að hafa sýningu í gangi sem tengist sögu þessa merka húss.“ gun@frettabladid.is Vigdís forseti mætir á fyrsta opna kvöldi Starfsfólk Norræna hússins býður  fólki í sögustund vikulega. Þar deilir það reynslu sinni úr húsinu, skoðar gömul skjöl, skrár og myndir. Fyrsta dagskráin af þeirri tegund er í kvöld, miðvikudag. Kristín Kona vonast til að ná að safna minningum fólks um Norræna húsið til að geyma til framtíðar, hvort sem þær eru skemmtilegar, alvarlegar, spennandi eða vandræðalegar. Fréttablaðið/GVa Fimmtíu ára gömul mynd af Norræna húsinu í byggingu. MyNd/NorræNa húsið Þetta ætlum við að taka upp á vídeó og Fá líka almeNNiNg til að SkriFa Niður FráSagNir til að Fólk FramtíðariNNar geti FræðSt. JaFNvel Strax á NæSta ári, Sem er aFmæliS- árið SJálFt. Þá ætlum við að haFa SýNiNgu í gaNgi Sem teNgiSt Sögu ÞeSSa merka húSS. 5 . a p r í l 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r22 M e n n I n G ∙ F r É T T a B l a Ð I Ð menning 0 5 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :5 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 C -8 D F C 1 C 9 C -8 C C 0 1 C 9 C -8 B 8 4 1 C 9 C -8 A 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.