Fréttablaðið - 05.04.2017, Blaðsíða 18
Bandaríski vogunarsjóðurinn
Taconic Capital, sem keypti megnið
af sex prósenta hlut Seðlabankans í
Kaupþingi í nóvember í fyrra, hafði
skömmu áður opinberlega lýst því
yfir að bréf Kaupþings væru tals
vert undirverðlögð í viðskiptum á
eftirmarkaði. Seðlabankinn seldi
hlut sinn í Kaupþingi fyrir samtals
um 19 milljarða en rúmlega tveimur
mánuðum síðar var tilkynnt að
Deutsche Bank hefði samþykkt að
ljúka ágreiningsmáli við Kaupþing
með 50 milljarða eingreiðslu. Gengi
bréfa Kaupþings rauk upp í kjölfarið
um liðlega 30 prósent og sá hlutur
sem Seðlabankinn hafði selt frá sér
hækkaði því um leið í virði um fjóra
til sex milljarða króna, eins og upp
Taldi Kaupþing verulega undirverðlagt
Seðlabankinn
var fyrir söluna
fjórði stærsti
hluthafi Kaup-
þings með sex
prósenta hlut.
fréttablaðið/
anton brinK
40%
hlutur Taconic Capital í
Kaupþingi gerir vogunar-
sjóðinn að langstærsta hlut-
hafa eignarhaldsfélagsins.
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
og Seðlabankinn seldi Kaupþings
bréfin á, en sjóðurinn væri hins
vegar þeirrar skoðunar að virði
þeirra væri um hundrað – og að
endurheimtur gætu líklega reynst
eitthvað umfram það gangverð.
Það mat vogunarsjóðsins, sem
er jafnframt stærsti hluthafi Kaup
þings, reyndist rétt – gengi bréfanna
er núna í kringum 115 – og sjóður
inn hefur því hagnast verulega á
skömmum tíma með kaupunum á
bréfum Seðlabankans. Aðrir kaup
endur að hlut Seðlabankans voru
meðal annars vogunarsjóðurinn
Attestor Capital en rétt eins og Tac
onic Capital gekk sjóðurinn nýlega
frá kaupum á 9,99 prósenta hlut í
Arion banka. Við ákvörðun um að
selja öll bréf sín í Kaupþingi undir
lok síðasta árs horfði Seðlabankinn
meðal annars til þess, samkvæmt
heimildum Markaðarins, að bank
inn taldi óheppilegt að vera hluthafi
í Kaupþingi samtímis því að verið
væri að ganga frá sölu á stórum hlut
félagsins í Arion banka. Með því að
losa um allan hlut bankans væri
því ekki hægt að halda því fram að
íslensk stjórnvöld hefðu í reynd
óbeina aðkomu að sölu bankans
sem einn stærsti hluthafi Kaup
þings.
Meira en tvöfaldað hlut sinn
Allt frá því um mitt síðasta ár hefur
Taconic Capital styrkt stöðu sína
sem áhrifamesti eigandi Kaupþings
með uppkaupum á bréfum annarra
hluthafa. Á aðeins nokkrum mán
uðum bætti sjóðurinn við sig rúm
lega 20 prósentum í Kaupþingi en
í dag er Taconic Capital langsam
lega stærsti einstaki hluthafi félags
ins með nærri 40 prósenta hlut.
Heildareignir Kaupþings námu ríf
lega 400 milljörðum í árslok 2016 en
óvissa um endanlegar heimtur hlut
hafa hefur einkum verið í tengslum
við tiltekið eignasafn félagsins –
svonefndar vandræðaeignir – en á
síðasta ársfjórðungi fjórfaldaðist
bókfært virði þeirra og nam 80
milljörðum. Þar munaði mestu
um fyrrnefnda eingreiðslu þýska
bankans til að ljúka ágreiningsmáli
um viðskipti með skuldatryggingar
Kaupþings á árunum fyrir 2008 í
stað þess að fá úr því skorið fyrir
dómstólum.
Hluthöfum Kaupþings var til
kynnt um niðurstöðuna við
Deutsche Bank þann 25. janúar
síðastliðinn en í fjárfestakynningu
þýska bankans, sem birtist nokkr
um dögum síðar, segir að samkomu
lagið við Kaupþing hafi verið gert í
október 2016. Kaupþing hefur ekki
viljað staðfesta þá tímasetningu
vegna „ríkra trúnaðarákvæða í
samningum við Deutsche Bank“.
Samkvæmt heimildum Markaðar
ins lágu fyrir drög að samkomulagi
við þýska bankann í október, með
ýmsum fyrirvörum, um að hann
myndi greiða Kaupþingi rúmlega
400 milljónir evra og forðast þann
ig málaferli fyrir dómstólum. Sam
komulagið var síðan endanlega
frágengið í lok janúar og í kjölfarið
var greiðslan innt af hendi til Kaup
þings.
Seðlabankinn hefur svarað því til
að hann hafi ekki haft neinar upp
lýsingar um viðskipti Kaupþings
og Deutsche Bank fyrr en þau voru
gerð opinber mörgum vikum eftir
að bankinn seldi bréf sín í Kaup
þingi. Í ársfjórðungslegum kynn
ingum Kaupþings á seinni helmingi
síðasta árs, meðal annars í kynn
ingu stjórnenda í september sem
Markaðurinn hefur undir höndum,
kemur fram að félagið hafi verið í
„virkum samskiptum“ við meiri
hluta mótaðila Kaupþings í stórum
ágreiningsmálum í því skyni að
kanna hvort hægt sé að ljúka þeim
með samkomulagi í stað málaferla.
Á þeim tíma nam bókfært virði
vandræðaeigna Kaupþings aðeins
21 milljarði en nafnvirði krafnanna
var hins vegar yfir 700 milljarðar.
Það var því ljóst að hagfelld niður
staða Kaupþings í stórum ágrein
ingsmálum gæti aukið umtalsvert
endurheimtur hluthafa, eins og
reyndin hefur orðið.
Við teljum að virði
krafna okkar á
Kaupþing sé 100, mögulega
eitthvað meira,
miðað við að
gangverð
þeirra er 86.
Frank Brosens,
stofnandi og eig-
andi Taconic Capital
Nokkrum dögum áður
en Taconic Capital
keypti megnið af 6%
hlut Seðlabankans í
Kaupþingi hafði eigandi
sjóðsins lýst því opinber-
lega yfir að bréfin væru
undirverðlögð. Bankinn
varð af 4-6 milljörðum
þegar þau hækkuðu í
virði um þriðjung tveim-
ur mánuðum síðar.
lýst var í Markaðnum í síðustu viku.
Fram kom í kynningu Franks
Brosens, stofnanda og eiganda
Taconic Capital, sem hann flutti á
fjárfestingaráðstefnu í Chicago í lok
október 2016, að vogunarsjóðurinn
teldi hlut sinn í Kaupþingi talsvert
meira virði en bréfin væru að ganga
kaupum og sölum á eftirmarkaði.
Brosens benti á að gengið miðað
við höfuðstól breytanlegra skulda
bréfa væri um 86, nánast sama verð
Dæmi um eftirlitsmyndavélapakka með 4 myndavélum
TAKTU ÖRYGGIÐ
MEÐ Í MYNDINA
Nánar á oryggi.is
EFTIRLITSMYNDAVÉLAR Askalind 1 | Kópavogur | Sími 570 2400
Njarðarnesi 1 | Akureyri | Sími 470 2400
Myndavélar sem hægt er að nota inni eða úti. Frábær
myndgæði (4 Mpix). Innrautt ljós með allt að 20 metra drægni.
Öflug og notendendavæn upptökutölva. Hægt að skoða lifandi
myndir og upptökur í gegnum app í snjallsíma.
Verð 128.340
m. vsk.
Öryggismiðstöðin hefur um árabil sérhæft sig í eftirlitsmyndavélum og myndavélakerfum og
býður upp á fjölbreytt úrval lausna sem henta heimilum, stórum og smáum fyrirtækjum sem og
stofnunum þar sem umfangsmikilla lausna er krafist. Öflug kerfi á frábæru verði.
Hafðu samband og fáðu ókeypis ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar.
Hægt er að sníða kerfin algerlega eftir þörfum notenda og því bjóðum við allt frá einföldum kerfum upp í stór
kerfi með hreyfanlegum vélum og mikilli sjálfvirkni.
5 . a p r í l 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r4 marKaðurinn
0
5
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:5
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
C
-9
7
D
C
1
C
9
C
-9
6
A
0
1
C
9
C
-9
5
6
4
1
C
9
C
-9
4
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K