Fréttablaðið - 05.04.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —8 1 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 5 . a p r Í l 2 0 1 7
FrÍtt
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
FERMINGARSKRAUT
Er kominn
tími á ný
dekk?
Pantaðu
tíma fyrir
dekkjaskiptin
á N1.is
eFnahagsMál Erfitt getur reynst að
verjast skipulögðum og einbeittum
vilja til að beita blekkingum. Þetta
segir Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi
forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME),
aðspurður hvort flétta á borð við
þá sem var spunnin í tengslum við
söluna á Búnaðarbankanum gæti
endurtekið sig í Arion banka, þar
sem hópur vogunarsjóða fer nú með
stóran hlut.
Benedikt Jóhannesson fjármála-
ráðherra hefur sagt nauðsynlegt að
fá nánari upplýsingar um hverjir
standi að baki kaupum á 30 pró-
senta hlut í Arion banka. Nú spyrji
sig allir hvort þarna sé einhver
lundaflétta í gangi. Þingmenn hafa
einnig lýst yfir áhyggjum og kallað
eftir frekari upplýsingum um nýja
eigendur Arion banka.
„Ef það er eitthvert baksamkomu-
lag sem er vel skipulagt og falið,
þá er mjög erfitt að finna út úr því
nema menn detti niður á einhverjar
upplýsingar. Það kemur þó venju-
lega ekki upp fyrr en einhverju síðar
þegar eitthvað gerist,“ segir Jónas Fr.
Unnur Gunnarsdóttir, núverandi
forstjóri FME, segir eftirlitið betur í
stakk búið nú að bregðast við blekk-
ingum eins og þeim sem stundaðar
voru í Lundafléttunni svokölluðu
þegar Búnaðarbankinn var seldur.
„Við erum reynslunni ríkari nú en
fyrir fjórtán árum,“ segir Unnur.
Á meðal þeirra þingmanna sem
fylgjast grannt með gangi mála er
Lilja Alfreðsdóttir. Í samtali við
Fréttablaðið segist hún hugsi yfir
svörum FME um að Vogunarsjóðirnir
þrír fari ekki með virkan eignarhlut.
Það er byggt á því að hver og einn á
minna en 10% í bankanum. FME
segir þar að auki að sjóðirnir hafi
ekki haft með sér formlegt samstarf
við kaupin, en slíkt samstarf myndi
þýða að eignarhluturinn væri virkur.
„Ég þarf að sjá greininguna hjá Fjár-
málaeftirlitinu og frekari skýringar
til þess að sjá að þetta séu ekki virkir
eigendur,“ segir Lilja. – sg / sjá bls. 6
Segir erfitt fyrir FME að koma í
veg fyrir aðra lundafléttu
Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, telur að við söluna á Arion geti reynst erfitt að
verjast baksamkomulagi sem er vel skipulagt og falið líkt og við söluna á Búnaðarbankanum. Núverandi
forstjóri segir FME betur í stakk búið en þá. Lilja Alfreðsdóttir vill skýringar á virku eignarhaldi Arion.
Í dag er Fréttablaðið
sKOðun Kári Stefánsson skrifar
Bjarna Benediktssyni. 13
lÍFið Ari Jósepsson segist hafa
verið rekinn úr Leikhópnum . 30
Menning Sögustundir og
mynda grúsk í Norræna húsinu.
22
plús sérblað l FólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
ViðsKipti Bandaríski vogunar-
sjóðurinn Taconic Capital, sem
keypti megnið af sex prósenta
hlut Seðlabankans í Kaupþingi í
nóvember í fyrra fyrir samtals 19
milljarða, hafði fáum vikum áður
lýst því opinberlega yfir að hann
teldi bréf Kaupþings talsvert undir-
verðlögð í viðskiptum á eftirmark-
aði. Seðlabankinn varð af 4 til 6
milljörðum þegar bréf Kaupþings
hækkuðu í virði tveimur mánuðum
síðar um liðlega 30 prósent eftir að
Deutsche Bank samþykkti að ljúka
ágreiningsmáli við Kaupþing með
50 milljarða eingreiðslu.
Við ákvörðun um að selja í Kaup-
þingi undir lok síðasta árs horfði
Seðlabankinn meðal annars til
þess, samkvæmt heimildum Mark-
aðarins, að hann taldi óheppilegt að
vera hluthafi í Kaupþingi samhliða
sölu félagins á hlut í Arion banka.
Með því að losa um allan hlut sinn
væri ekki hægt að halda því fram
að stjórnvöld hefðu í reynd óbeina
aðkomu að söluferli Arion banka.
– hae / sjá Markaðinn
Taldi bréfin
í Kaupþingi
undirverðlögð
19
milljarða fékk Seðlabankinn
fyrir hlut sinn í Kaupþingi.
dóMsMál Illa gengur að innheimta
sektir hér á landi sem einstaklingar
hafa verið dæmdir til að greiða. Því
hærri sem upphæðin er, því verr
gengur að innheimta.
Sektir sem komnar eru í vanskil
nema 3,2 milljörðum króna. Illa
gengur að innheimta sektirnar.
Sé sektin yfir átta milljónir er
innheimtuhlutfallið aðeins 5% en
25-35% fyrir smærri sektir. Þetta
kemur fram í fjármálaáætlun ríkisins.
Vinnuhópur er starfandi til að
skoða skilvirkari innheimtuúrræði
og á að skila tillögum að breytingum.
– bb
Skuldum marga
milljarða í sektir
sÝrland Öll spjót beinast að Bashar
al-Assad, forseta Sýrlands, eftir að
efnavopnum var beitt gegn almenn-
um borgurum í smábæ í landinu í
gær. Grunur leikur á að sprengjum
hafi sérstaklega verið varpað á spít-
ala í bænum.
Bandaríkin, Frakkland og Bret-
land eru í hópi þjóða sem fordæmt
hafa árásina. Benda þau fingri
sínum á stjórnarherinn. Yfirmenn
hersins segja hins vegar að upp-
reisnarmenn hafi verið að verki.
Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið
út að atvikið verði rannsakað sem
mögulegur stríðsglæpur og boðað
hefur verið til neyðarfundar í
Öryggisráði SÞ í dag. Talið er víst að
Rússar og Kínverjar beiti neitunar-
valdi. – jóe / sjá síðu 10
Öryggisráðið
fundar vegna
efnaárásar
Ung stúlka fær aðhlynningu á sjúkrahúsi eftir að hafa komist í tæri við saríngas sem sýrlenskir stjórnarher-
menn eru sagðir hafa varpað á bæinn Khan Sheikhoun í gær. Hún komast lífs af en minnst 58 létust, þar af ellefu
börn. Þetta er mannskæðasta efnavopnaárásin í Sýrlandi síðan í ágúst 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
0
5
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:5
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
C
-6
1
8
C
1
C
9
C
-6
0
5
0
1
C
9
C
-5
F
1
4
1
C
9
C
-5
D
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K