Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 4
Sigrún Magnúsdóttir:
HeílsuverrLclarstöh Reykjavíkur
Þess hefur verið farið á leit við mig,
að ég skýrði hér nokkuð frá Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur, sem nú hefur um
skeið verið starfrækt í hinum nýju húsa-
kynnum við Barónsstíg. Vil ég þá byrja
á því að leiðrétta þann misskilning, sem
oft hefur orðið vart, að Bæjarspítalinn
og Slysavarðstofan sé hluti af Heilsu-
verndarstöðinni. I húsi Heilsuverndar-
stöðvarinnar starfa nú fjórar sjálfstæð-
ar stofnanir, sem ekkert hafa sameigin-
legt annað en það, að þær eru — til
bráðabirgða — undir sama þaki og hafa
að nokkru leyti sömu yfirstjórn. Stofn-
anir þessar eru: Skrifstofa borgarlæknis,
Bæjarspítali Reykjavíkur, Slysavaröstofa
Reykjavíkur og Heilsuverndarstöö
Reykjavíkur. Þrjár hinar fyrstnefndu
eru reknar og kostaðar eingöngu af
Reykjavíkurbæ, en Heilsuverndarstöðin
er samkvæmt lögum kostuð af Reykja-
víkurbæ, ríki og Sjúkrasamlagi Reykja-
víkur að % frá hverjum aðila, en Reykja-
víkurbær sér um rekstur hennar. í því
sem hér fer á eftir verður aðeins skýrt
frá starfi Heilsuverndarstöðvarinnar. Á-
ætlað er að Bæjarspítalinn og Slysavarð-
stofan flytji í hið nýja Bæjarsjúkrahús,
sem nú er verið að byggja, þegar er það
er tilbúið. Er nú fyrirhugað að reka þá
fæðingarheimili fyrir Reykjavíkurbæ í
húsi Heilsuverndarstöðvarinnar. Kemst
þá' fyrst samhangandi og rökrétt notk-
un hússins sem Heilsuverndarstöðvar,
með eftirlit með barnshafandi konum og
ungbörnum á næstu hæðum.
Mikill hluti þeirrar starfsemi, sem
fyrst flutti inn í hið nýja hús var arfur
frá Hjúkrunarfélaginu Líkn. Allt starfs-
,fólk Líknar flutti með sínum deildum, en
vitanlega eykst starfið ár frá ári og nýtt
fólk bætist við.
Hús Heilsuverndarstöðvarinnar er
1516 fermetrar að stærð og 16.500 rúm-
metrar. — Byrjað var á bygg-
ingu hússins í maí 1950, en í des. 1953
flutti fyrsta deildin inn í hið nýja hús.
Byggingin var undirbúin af 5 manna
nefnd, kosinni af bæjarstjórn. Var dr.
Sigurður Sigurðsson, berklayfirlæknir,
formaður hennar, en með honum voru í
nefndinni: dr. Jóhann Sæmundsson, yfir-
læknir, Jóhann Hafstein bankastjóri,
Katrín Thoroddsen læknir og frú Sigríð-
ur Eiríksdóttir, sem um langt skeið hafði
verið formaður Líknar. Teikningu að
húsinu gerði Einar Sveinsson arkitekt.
Deildir Heilsuverndarstöövarinnar.
I. Elzta deild Heilsuverndarstöðvarinn-
ar er berklavarnadeildin. Þegar Hjúkrun-
arfélagið Líkn kom á stofn Hjálparstöð
fyrir berklaveika árið 1919, eftir er-
lendri fyrirmynd, voru flestir málsmet-
andi menn vantrúaðir á að hún gæti
nokkurntíma orðið að gagni í baráttunni
við hina ægilegu berklaveiki, sem þá
herjaði á þjóðina. Hún hefur þó tvímæla-
laust sannað gagnsemi sína, og hafa
berklavarnastöðvar hvarvetna með öðr-
um þjóðum reynst happadrjúgur þátt-
ur í berklavörnum. Góður árangur af
berklavörnum er undir því kominn að