Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 6

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 6
4 H JÚKRUNARKVÉNN ABLAÐIÐ Frá l)prklfivarn:id(áld. Röntgenmyndataka. förum. Þær leiðbeina ungum mæðrum með að baða og meðhöndla börnin og reyna að vera þeim stoð og stytta á ýmsa lund. Þegar börnin eru orðin 2—3 mán- aða gömul og hjúkrunarkonan hefur fylgst með framförum þeirra heima, seg- ir hún mæðrunum að koma með þau inn á Heilsuverndarstöðina, til læknisskoðun- ar og bólusetningar. Hefur hver hjúkr- unarkona sinn ákveðna tíma inni á stöð- inni og tekur á móti sínum börnum. Er það mikið öryggi bæði fyrir hjúkrunar- konuna og móðurina, að sérfræðingur at- hugi barnið og segi sitt álit um þrif þess og framfarir, að athugi hvort nokkrir meðfæddir gallar eru á því, sem unnt er að laga. Um leið fær barnið sína fyrstu bólusetningu, við barnaveiki, kíghósta og ginklofa, í einni sprautu undir húð. Síðan rekur hver bólusetningin. aðra, gegn mænusótt, bólu og stundum berklum, ef berklaveiki er í umhverfi barnsins. Kúa- bólusetning er lagaskylda, og er hún end- urtekin á öllum börnum fyrir fermingu. Barnadeildin hefur stóra ljósastofu, og hafa öll börn í Reykjavík innan skóla- aldurs aðgang að henni. Vísa læknar barnadeildarinnar börn- um í ljós eftir því sem þeir sjá ástæðu til. Barnadeildin hefur úti- bú inni í Langholtsskóla fyrir börn úr því hverfi. Er það til hagræðis fýrir fólkið að þurfa ekki að fara með börn sín niður í bæ til læknisskoðana, bólusetninga eða ljósbaða. Mjög nærri ligg'ir að hvert barn, sem fæðist í Reykjavík, sé undir eftir- liti barnadeildarinnar. — Síðastliðið ár voru aðeins 4 börn sem tilkynnt höfðu verið og náðist til, sem mæðurnar óskuðu ekki eftir eftirliti með. Voru tvær þeirra giftar barnalæknum, sem vildu líta eftir sínum börnum sjálfir, sem vonlegt var. III. Mæöradeild,eða eftirlit með barns- hafandi konum. Það mun hafa verið árið 1928 sem Líkn kom á fót stöð fyrir barnshafandi konur í húsakynnum Ungbarnaverndar- innar. Flutti hún í Fæðingardeild Lands- spítalans og bjó þar við mikil þrengsli í nokkur ár, en flutti í Heilsuverndarstöð- ina í des. 1954. Er öllum barnshafandi konum í Reykjavík heimilt að leita þang- að. Er gerð mjög nákvæm læknisrann- sókn á hverri konu, bæði almennu heilsu- fari og því sem við kemur meðgöngutím- anum. Flestar konur eru sem betur fer sæmilega frískar um meðgöngutímann, en við blóðrannsóknir kemur í ljós að meira en helmingur þeirra hefur of lágt hæmoglobin. Orsakar það oft þreytu og vanlíðan sem er óþörf. Þær hressast oft furðufljótt við að fá blóðaukandi lyf. Sama máli gegnir með hægðatregðu, sem

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.