Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 9
HJUKRUNARKVENNABLAÐIÐ
7
f RACHEL EDGREN
^tac/cl 29. apríí 1893 - /töáin 21. nóucmlcr 1957
Þau sviplegu tíðindi bárust hingað fyr-
ir nokkrum dögum, að Rachel Edgren
hefði látist 21. nóv. úr heilablóðfalli. Lát
hennar bar mjög skyndilega að og er því
enn erfiðara að átta sig á því, að hún
'skuli allt í einu
vera horfin úr fé-
lagslífi og starfi
Norrænu Samvinn-
unnar, en þar átti
hún sannarlega
heima af lífi og
sál.
Rachel Edgren
var finsk að ætt og
starfaði alla tíð á
meðal sænskumæl-
andi Finna. Hún var fædd 29. apríl 1893.
Að afloknu stúdentsprófi hóf hún hjúkr-
unarnám og lauk því ásamt ljósmóður-
námi á tilskildum tíma.
Eftir fyrri heimsstyrjöldina, þegar
Finnar öðluðust sjálfstæði, varð mikil
gróska í öllum framfaramálum þeirra og
átti það ekki síst við framfarir í hjúkr-
unar- og heilsuverndarmálum. Á þeim
tímum stofnaði Mannerheim Marskálkur
barnaverndarsamtök þau, sem síðan eru
við hann kennd og aðallega eru starfrækt
á hinum finnskumælandi svæðum lands-
ins, en sænska þjóðarbrotið, sem býr
mestmegnis á Álandseyjum og á vestur-
strönd Finnlands, stofnaði heilsuverndar-
samtökin Folkhálsan. Þangað réðist Rachel
Edgren og varð það hennar lífsstarf, að
skipuleggja og stjórna þessari miklu
heilsuverndarstarfsemi, við mjög erfiðar
aðstæður á meðal fátækra íbúa á harð-
býlli strandlengju og skergarði Finnlands
og á eyjaklösum úti í botniska flóanum.
Rachel Edgren var mjög félagslynd og
taldi alla tíð Finnum vera mikla nauð-
syn á því að fylgja Norðurlöndum í heil-
brigðis- og félagsmálum. Eins og kunn-
ugt er, eru 2 hjúkrunarkvennafélög í
Finnlandi, sænskumælandi og finnsku
mælandi. Rachel Edgren var í 18 ár for-
maður sænska félagsins; næstu 5 árin
ritari í Norðurlandasamvinnu hjúkrun-
arkvenna og loks í 4 ár formaður þeirra
fjölmennu samtaka. Öll voru þessi störf
unnin af djúpri innlifun, eins og vænta
mátti af jafn heilsteyptri konu og Rachel
var.
Henni var auðsýndur mikill heiður
fyrir unnin störf, og nefni ég þar m. a.
að hún var kjörin heiðursfélagi í Lækna-
félagi Finnlands, og fyrir nokkrum ár-
um var hún sæmd Florence Nightingale
orðunni.
íslenzkum hjúkrunarkonum var hún
mjög vinveitt, og henni var það að þakka,
að 4 íslenzkum hjúkrunarkonum gafst
tækifæri til þess að nema heilsuvernd þar
í landi við mjög hagstæð kjör, en heilsu-
verndarnám í Finnlandi er talið með því
bezta sem gerist í þeirri grein heilbrigð-
ismála. Fyrir vináttu Rachelar Edgren
þökkum við íslenzkar hjúkrunarkonur
innilega og munum ávallt minnast henn-
ar með djúpri virðingu.
Sigi'íður Eiríksdóttir.
LEIÐRÉTTING
I síðasta tölublaði Hjúkrunarkvenna-
blaðsins misritaðist tilkynning í dálkin-
um Hjónabönd, og biður blaðið hlutað-
eigendur velvirðingar á þeim leiðu mis-
tökum. Tilkynningin átti að vera:
Kristín Þorsteinsdóttir, hjúkrunar-
kona og Sigurjón Hilaríusson, kennari.