Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 13
Hjákrun.arkonum veitt he'Lðursmerki
Tveimur íslenzkum hjúkrunarkonum hefur á þessu ári verið sýndur mikill sómi
með því að sæma þær heiðursmerkjum fyrir störf þeirra.
Sigríður Bachmann yfirhjúkrunarkona
Landsspítalans hefur verið sæmd heið-
ursmerki Alþjóða Rauða Krossinns, Flo-
rence Nightingale orðunni, en hún er
eins og kunnugt er, æðsta virðingartákn,
sem hjúkrunarkonur geta hlotið vegna
starfa þeirra í þágu hjúkrunar- og heil-
brigðismála. Sigríður Bachmann starfaði
í mörg ár hjá Rauða Krossi íslands og
ferðaðist þá víða um landið sem náms
skeiðakennari í heimilishjúkrun og hjálp
í viðlögum. Þaðan réðst hún aðalkennari
að Hjúkrunarkvennaskóla íslands og varð
síðan skólastjóri þar, þegar skólinn var
gerður að sjálfstæðri s.tofnun. Loks var
hún ráðin forstöðukona Landsspítalans
árið 1954, þegar Kristín Thoroddsen lét
af störfum þar.
Ólafía Jónsdóttir hefur verið sæmd
riddarakrossi Fálkaorðunnar fyrir langt
og gæfuríkt hjúkrunarstarf, en hún er
nú komin yfir sjötugt og veitir enn for-
stöðu fávitahælinu á Kleppjárnsreykjum.
Þegar litið er yfir starfsferil Ólafíu Jóns-
dóttur, má sjá, að forlögin hafa ekki út-
hlutað henni léttara svið sjúkrahjúkrun-
ar: Stór barnadeild á Vífilsstaðahæli með
börnum á öllum aldri, þegar berklarnir
voru í algleymingi hér á landi, hjúkrun-
arkona í þéttsetnum héraðsskóla, yfir-
hjúkrunarkona á Elliheimilinu Grund og
síðan um margra ára skeið eina hjúkr-
unarkonan á Kleppjárnsreykjum, þar
sem hún hefur bæði veitt hælinu for-
stöðu og annast öll hjúkrunarstörf, hef-
ur verið s.tarfsvettvangur þessarar dug-
miklu og fórnfúsu hjúkrunarkonu.
Stjórn Félags íslenzkra hjúkrunar-
kvenna óskar báðum þessum hjúkrunar-
konumhjartanlega til hamingju meðþann
heiður, sem þeim hefur verið sýndur.
TILKVNNING FRA DANBK, BVGEPLEJERAD:
Samvinna hjúkrunarkvenna
á Nordurlöndum.
hjúkrunarkvennaþing í kaupmannahöfn
DAGANA 1. TIL 5. JLILÍ 195B
Til leiðbeiningar þeim hjúkrunarkon-
um, sem hafa hugsað sér að taka þátt
í þingi norrænna hjúkrunarkvenna í
Kaupmannahöfn í júlí 1958, munu tíma-
rit norrænu hjúki-unarkvennafélaganna
birta fregnir á næstu mánuðum um þing-
undirbúninginn. Fyrsta vísbending vor
varðar gistingu, en seinna munu verða
gefnar upplýsingar um innritun, dag-
skrá o. fl.
Gisting. Dansk Sygeplejerád tekur ein-
ungis að sér að útvega gistingu dagana
30. júní—6. júlí 1958. Aðstoð við gist-
ingu verður veitt samkvæmt ósk umsækj-
anda (á einkaheimili, sjúkrahúsi eða
gistihúsi.
1. Ef þér óskið einungis eftir dvöl í
Kaupmannahöfn á meðan þingið stend-
ur yfir, þurfið þér ekki að hafast neitt
að vegna gistingar, en bíða einungis eft-
ir eyðublaði til innritunar.
2. Ef þér óskið að dvelja í Kaupmanna-
höfn á undan eða að afloknu þinginu,