Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 14
12
HJUKRUNARKVENNABLAÐIÐ
'Ji-éWt cg
tílkifHHiHýar
Tilhynning frá stjórn Félags
íslenzhra lijúhrunarhvenna
Á fundi í F. í. H. 15. okt. s. 1. bar frú
Guðrún Briem fram tillögu, er var und-
irrituð af nokkrum hjúkrunarkonum, er
vinna á Landspítalanum. Þar var skorað
á stjórn F. í. H., að hlutast til um, að
sá háttur, að tvískifta daglegum vinnu-
tíma hjúkrunarkvenna, verði lagður
niður, þar sem frítími um miðjan dag
fari að mestu í ferðir fram og aftur, ef
hjúkrunarkonur búa fjarri vinnustað.
Urðu allmiklar umræður um tillög-
una. Formaður benti á að það hljóti að
vera vandamál innan spítalanna hver
vinnutilhögun er viðhöfð, sem verði að
leysast á hverjum stað.
Samþykkt var að kalla saman til við-
ræðna fulltrúa frá flutningsmönnum til-
lögunnar, yfirhjúkrunarkonum frá bæj-
verðið þér sjálfar að sjá yður fyrir gist-
ingu þann tíma, sem er utan við 30. júní
—6. júlí 1958. Vér viljum vekja athygli
yðar á því, að mjög erfitt er að fá gisti-
hús í Kaupmannahöfn yfir sumartímann,
og ráðum vér yður því til þess að snúa
yður annaðhvort til ferðaskrifstofu eða
beint til gistihúss og tryggja yður her-
bergi í tíma.
Vér vonum, að þátttaka þingsins verði
góð og óskum yður hjartanlega velkomn-
ar til Kaupmannahafnar.
ar- og ríkisspítölum í Reykjavík og ná-
grenni, ásamt stjórn F. í. H.
Mánud. 18. nóv. mættust þessir aðilar
á Landspítalanum. Voru ræddir mögu-
leikar til bóta í þessum málum. Flutn-
ingsmaður till. taldi t. d. að ekki þyrfti
að bæta við nema sem svarar einni
hjúkrunarkonu fyrir báðar lyfjadeildir
Landspítalans.
Var það einróma álit fundarins, að
æskilegt væri að geta orðið við þessum
kröfum, tii handa þeim, er þess óska, en
taldi hinsvegar að það sé ekki fram-
kvæmanlegt, þar sem ekki er nema ein
hjúkrunarkona á deild og því síður á
litlu sjúkrahúsunum, er aðeins hafa eina
hjúkrunarkonu í þjónustu sinni.
Stjórn F. í. H. leyfir sér að beina
þeim tilmælum til yfirhjúkrunarkvenna
allra spítala landsins að athuga hve
margar hjúkrunarkonur þyrfti að bæta
við á hverjum stað, ef framangreindar
breytingar yrðu framkvæmdar, og um
leið hvort hjúkrunarkonum viðkomandi
spítala sé kappsmál að koma þessum
breytingum á, og þá, hvernig forráða-
menn spítalanna taki í málið.
Síðan væntir stjórnin þess, að yfir-
hjúkrunarkonurnar sendi henni skýrslu
um gang málsins.
Tahið eftir
Yfirhjúkrunarkonur á sjúkrahúsum
hvar sem er á landinu, eru vinsamlega
beðnar að senda mér nöfn þeirra hjúkr-
unarkvenna, sem verða starfandi á
sjúkrahúsum þeirra um áramót 1957—
1958. Yfirlit þetta er mér nauðsynlegt
að fá í hendur í 1. viku janúar mánaðar
1958.
Sigríður Eiríksdóttir
formaður F. I. H.
Aragötu 2, Reykjavík.