Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Blaðsíða 8

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Blaðsíða 8
Kristín Hallgrimsdóttir. yfir þrítugt en tvítugt, svo vera má að flestar hafi verið komn- ar af líklegasta, eða öllu heldur hættulegasta giftingaraldri! Þó mun hættan seint liðin hjá, sem sjá má af því, að þessi eina dia- konissa hafði starfað allmörg ár og því sennilega komin af léttasta skeiði. Ennfremur segir í skýrsl- unni: „Overfor Island have vi været i Stand til at yde en Haandsrækning, idet paa vort Tilbud to islandske Kvinder sid- en November have lært Syge- pleje paa vort Hospital for nu i Efteraaret at overtage Pleje paa det nye Spedalskhedshospit- al ved Reykjavik". Margt fleira er forvitnilegt í skýrslunni, t. d. þar sem fram kemur, að nauðsynlegt væri að auka bóklega námið, í samræmi við kröfur nútímans, en því væri oft erfitt að koma við, vegna þess að hjúkrun sjúkl- inga yrði oft að ganga fyrir. Þess vegna sé furðulegt að heyra fáránlegar fullyrðingar um að diakonissur „lade de syge ligge“ til þess að vera við lestur og guðræknisiðkun. Þá er lagt til að reyna að skipuleggja nokk- urs konar „hojskolekursus" fyr- ir diakonissur, þar sem þær geti stundað nám ótruflaðar eins og tíðkist þegar í Stokkhólmi og Kristjaníu. Meðal heimildarriti fann ég skírteini hennar, svohljóðandi: Kristín Hallgrímsdóttir er i 8 Maaneder blevet uddannet her paa hospitalet i Sygepleje. Til Trods for denne korte Tid og Vanskeligheder med Sproget. har hun dog gjort god frem- gang. Hun besidder Dygtighed til sin Gerning og Trofasthed, hun har været meget afholdt af Patienterne". Er það undirritað 6/11 ’98 af Paulli, Overlæge. Heimkomin starfar hún við Laugarnesspítalann. 1901 eign- ast hún soninn, Ágúst Jóns- son, og varð af þeim ástæð- um að hætta störfum á sjúkra- húsinu. Hún hafði ekki mögu- leika á að hafa soninn hjá sér, og var hann að mestu alinn upp, skv. ósk hennar, hjá Ragnheiði Símonardóttur, móður Konráðs Konráðssonar læknis. Síðar meir, þegar aldur færðist yfir hana, naut hún þess að dveljast á heimili hans. Mörgum árum síðar, á fimm- tugsafmælinu, berst henni þetta bréf: „Kæra Kristín, fyrrverandi hjúkr- unarkona okkar. Við, sem erum búin að vera hér um aldarfjórðung, höfum margs að minnast. Þeir eru margir, er hafa orðið til þess að létta undir með þeim af okkur, er hafa þurft einna mest á hjálp og nærgætni að halda. Og meðal þeirra ert þú. Við, þessir, er nutum hjúkrunar þinnar, gleymum þér aldrei. Minn- inguna um margt, er þú gerðir, munum við alltaf geyma og von- um að þú uppskerir ríkulega bless- un af því, er þú sáðir hér meðal Kristín við heimilishjúkrun. 6 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.