Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Blaðsíða 17

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Blaðsíða 17
Jóhannsdóttir (heilsuverndarnefnd), til vara: Sigríður Jakobsdóttir. Komité för sluten várd: Sigríður Stephensen (sjúkradeildanefnd), til vara: E. E. Stefánsson. Komité för faglige emner: María Pinnsdóttir, til vara: Hrönn Jóns- dóttir. Endurskipulagsnefnd S.S.N.: María Pétursdóttir, til vara: Ingibjörg Ól- afsdóttir. Fulltrúar til I.C.N. eru þeir sömu: Sigurlín Gunnarsdóttir, Guðfinna Thorlacius, systir Anna Pauline og systir Anna Benedikta. Þá voru á félagsfundi 14. marz 1966 kosnar í kaffisölunefnd þær: Anna Guðrún Jónsdóttir, formaður, Erla Óskarsdóttir, Hrefna Björns- dóttir, Ásthildur Þórðardóttir, Krist- iana Sigurðardóttir og Aðalheiður Pafnar, og á fundi 18. apríl voru kosnir fulltrúar á þing B.S.R.B. þau: Ingibjörg R. Magnúsdóttir, Anna Loftsdóttir, Alda Halldórsdóttir, Re- bekka Jónsdóttir, Geir Friðbergsson, María Guðmundsdóttir, en til vara: Sigrún Jónatansdóttir, Sólveig G. Haildórsdóttir, Guðrún Árnadóttir, Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir, Elín Anna Sigurðardóttir, Guðlaug Guð- niundsdóttir, Regína Stefnisdóttir, °S á sama fundi var Elín Stefánsson kjörin aðalfulltrúi til S.S.N. en Alda Halldórsdóttir til vara. Síðast en ekki sízt má telja nefnd- Jna sem vinnur að Hjúkrunarkvenna- ^alinu, áhugasöm og sístarfandi nefnd, sem enn á mikið verk fram- nndan, jafnvel þótt sérhver einstaki- 'ngur létti henni störfin með því að skila sínu tiltölulega litla hlutverki v>ð starfið strax. Kjaradómur um laun ríkisstarfs- •nanna féll 30. nóvember 1965. Hjúkr- unarkonur, sem voru i 13. launaflokki, sarlærðar hjúkrunarkonur og deild- ai'hjúkrunarkonur voru færðar upp ujn einn flokk, en forstöðukonur s.iúkrahúsa (með 200 rúm eða fleiri) Urn 2 flokka. Hins vegar voru að- stoðarforstöðukonur stærstu sjúkra- 1Usa (með 200 rúm eða fleiri) áfram í 18. flokki og forstöðukonur á sjúkra- húsum, sem hafa innan við 200 rúm áfram í 19. flokki. Sem eðlilegt var kom fram óánægja frá þessum tveim starfshópum, sem ekki fengu leið- réttingu, hliðstætt við aðra stai-fs- hópa hjúkrunarstéttarinnar, en þar sem Kjaradómur var úrslitadómur í þessum málum, var ekki að vænta leiðréttingar eftir að dómur hafði fallið, og voru þó gerðar tilraunir til þess. Dagana 1. og 3. des. voru haldnir fundir með samninganefnd Reykja- víkurborgar og Hjúkrunarfélagi ís- lands, en fyrir hönd hjúkrunarfélags- ins gátu aðeins mætt auk formanns, Sigurlín Gunnarsdóttir og Elín Anna Sigurðardóttir. Þar sem áður hafði verið gert samkomulag milli þessara aðila um að kjör þau er kjaradómur ákvæði, skyldi einnig gilda fyrir hjúkrunarkonur starfandi hjá Reykjavíkurborg, þurfti aðeins að ganga formlega frá málum, og taka til athugunar frábrigðileg atriði, og semja um þau til samræmis við Kjaradóminn. Eru hjúkrunarkonur Reykjavíkurborgar í sömu launa- flokkum og áður getur, en í 16. flokki eru einnig heilsuverndarhjúkrunar- konur, (án sérnáms) og borgarhjúkr- unarkonur en í 18. flokki heilsuvernd- arhjúkrunarkonur með sérnámi. Kjarasamningurinn við Reykjavíkur- borg var undirritaður á gamlaársdag 1965. Það sem segja má að hafi verið ánægjulegt við samningana við Reykjavíkurborg, var, hversu vel var tekið málaleitan um ókeypis starfs- búninga og þvott á þeim, sem varð til þess að sams konar samningar fengust við ríkisstofnanirnar. Á síðasta aðalfundi var samþykkt ályktun, þar sem mótmælt var kröf- um eða tillögum, sem ríkisvaldið hafði þá lagt fyrir Kjaradóm, og var sú ályktun send dagblöðunum. Á sama fundi var samþykkt laga- breyting um sérgreinafélög, og að samþykki fengnu, var Félag Röntgen- hjúkrunarkvenna viðurkennt sem deild innan Hjúkrunarfélags Islands. Einnig var samþykkt að hækka félagsgjöldin. Ingibjörg Ólafsdóttir, ritari félags- stjórnar, var ráðin til eins árs frá 1. febrúar, á skrifstofu félagsins, hálfan dag, og hefur komið í ljós, að það var orðin full þörf fyrir fastan starfsmann. Guðrún Erlendsdóttir var ráðin lögfræðilegur ráðunautur félagsins, í stað Benedikts Sigurjónssonar, sem hætti störfum fyrir félagið, þar sem hann var skipaður dómari í Hæsta- rétti. Stjórn Lífeyrissjóðs hjúkrunar- kvenna hefur haldið 4 fundi á árinu, og 24 félagskonur fengið lán til bygg- inga eða íbúðakaupa. Samþykkt var á fundi þar í janúar, að gera þá breytingu, að hjúkrunarkonur, sem starfað hafa 10 ár, eigi rétt á láni úr sjóðnum, þótt þær séu ekki starf- andi þegar lánið er veitt, en starf- andi hjúkrunarkonur þurfa aðeins að hafa unnið 5 ár til að hafa rétt til lána. Þá hækkuðu hámarkslána- greiðslur úr 188 þús. í 225 þús. (750 kr. á m2). Ellilífeyrir frá sjóðnum er greidd- ur 32 hjúkrunarkonum. Þórunni Pálsdóttur voru veittar sænskar kr. 1000,00 af S.S.N.-styrkn- um til framhaldsnáms í geðhjúkrun við Statens Speciale Skole i Psykia- trisk Sykepleie, Oslo, og Elinborgu Ingólfsdóttur sömuleiðis til að stunda nám við Karolinska Sjukhuset, Stokk- hólmi, undirbúningsnám vegna vænt- anlegs starfs hennar á vegum Hjarta- og æðaverndarfélagsins. Fræðsluerindi voru flutt 6 kvöld í marzmánuði, allt 12 erindi. Töluðu þar 2 hjúkrunarkonur, María Finns- dóttir og Alda Halldórsdóttir, 9 lækn- ar og Sigurður Ingimundarson um verkstjórn í nútíma atvinnurekstri. Fundarsókn var fádæma góð og upp- örfandi fyrir þá sem að námskeiðinu stóðu. Sýndi skoðanakönnun, að flest- ir þátttakendur vildu að félagið beitti sér fyrir frekari fræðslu árlega eða annaðhvort ár. TÍMAKIT HJÚKKUNARFÉI.AGS ÍSLANDS 15

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.