Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Blaðsíða 21
FRÉTTIR og TILKYilNGAR
Fróðleikskorn.
Hér sjáum við fjölda hjúkrunar-
kvenna og manna starfandi um ára-
mót 1966—1967.
Reykjavík:
Borgarsp./Barónsst.............. 12
Slysavarðstofan ................ 10
Heilsuverndarstöð Rv............ 29
Sj. Hvítabandsins............... 11
Borgarsp./Fossvogi .............. 6
Geð- og taugad............ 3
Vöggustofa Thorv................. 1
Barnaverndamefnd ................ 1
Landakot ....................... 15
----- , nunnur.............. 19
Blóðbanki ....................... 3
Flókadeild ...................... 4
Hjúkrunarskóli Isl............... 5
Kleppsspítali .................. 22
Landspítali .................... 77
Sj. Sólheimar ....._............. 7
Krabbameinsfélag Isl............. 5
Læknast.......................... 2
Elliheimilið Grund .............. 6
Hrafnista ....................... 3
Borgarlækni ..................... 1
Tannlæknadeild .................. 1
Alls 243
Uti á landi:
Arnarholt ....................... 1
Reykjalundur .................... 2
Sj. Akraness .................... 3
— Patreksfjarðar .............. 1
—■ ísafjarðar ................... 1
— Blönduóss ................... 1
— Hvammstanga ................. 2
— Sauðárkróki ................. 6
Siglufjarðar ................ 2
Ej. Akureyri.................... 20
Heilsuv. og Barnask.............. 3
Sj. Húsavík ..................... 2
— Neskaupstað ................. 4
Vestmannaeyja ............... 4
Heilsuv. Vestmannaeyja .......... 1
Sj. Selfossi .................... 6
Keflavíkur .................. 1
Hveragerði .................. 1
Vífilstaðir .................... 12
St. Jósepsspítali Hf............. 3
Sólvangur ....................... 7
Heilsuvernd Hf................... 1
Kópavogur ....................... 4
Hristneshæli..................... 3
Alls 95
Frá skrifstofu H.F.Í.
Skrifstofan er opin kl. 17—19 á
mánudögum og fimmtudögum, og er
þá Alda Halldórsdóttir til viðtals.
Auk þess mun hún starfa að morgni
dags 5 daga vikunnar.
Formaður félagsins, frú María Pét-
ursdóttir, hefur ekki fastan viðtals-
tíma, heldur eftir samkomulagi.
Heimasími er 15624. Sími Hjúkrun-
arfélags íslands á skrifstofu er 21177.
Hjúskapartilkynningar.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Halldóra Halldórsdóttir
hjúkrunarkona og Baldur Sigfusson,
cand. med.
Ungfrú Þórhildur Karlsdóttir og
Magnús Jónsson málarameistari.
Hverjar voru fyrstar? —
Framhald af bls. 7.
ir kvölds og morgna, þar sem
það nægði.
Til fróðleiks fyrir þá, sem lít-
ið vita um Hjúkrunarfélag
Reykjavíkur, má geta þess, að
árið 1902 stofnuðu 145 áhuga-
menn félagið, fyrir forgöngu
Oddfellowreglunnar og Guð-
mundar Björnssonar, síðar
landlæknis. Jón biskup Helga-
son var kosinn formaður. Hann
var í forustu aldarfjórðung, eða
til 1927, og naut stuðnings
mætra manna og meðstjórn-
enda, svo sem prófessors Sæ-
mundar Bjarnhéðinssonar, en
hann átti sæti í fyrstu stjórn-
inni.
Félag þetta hafði starfandi
á sínum vegum, eina til tvær
hjúkrunarkonur, við heimilis-
hjúkrun.
Síðustu árin dofnaði yfir
starfsemi félagsins. Var það
lagt niður 1937. Meðal annars,
sem finna má í bréfum Kristín-
ar, er ársfundarboð félagsins.
Kemur þar fram, að auk aðal-
fundarstarfa, hafa verið flutt
erindi um læknisfræðileg efni,
og fengnir til þess færustu
læknar þeirra tíma.
Mér þykir viðeigandi að birta
hér þær upplýsingar, sem ég hef
komizt yfir um fyrstu hjúkrun-
arkonurnar hérlendis. Kynnu
Frú Guðný Jónsdóttir, hjúkrunar-
kona varð sjötug hinn 17. febi-úar s.l.
Hjúkrunarnám stundaði Guðný
við City Hospital School of Nursing
í New York 1917—’20. Framhalds-
nám í heilsuvernd við Bedford Col-
lege 1922—’23. Einnig starfaði hún
við heilsuverndarstöðvar í London
1921—’22. Frú Guðný er eini núlif-
andi stofnandi Hjúkrunarfélags Is-
lands. Hún hefur lengi stai'fað og
starfar enn sem skólahjúkrunarkona
að Laugarvatni.
Hjúkrunarfélagið óskar henni allra
heilla í tilefni afmælisins.
MIKIÐ I HÚFI!
Þekktur skurðlæknir var kallaður
út að kvöldlagi til bankastjóra, sem
hafði skorið sig í fingurinn. Hann
hitti bankastjórann náfölan og skjálf-
andi. Rannsóknin leiddi í ljós að
skurðurinn var lítill og hættulaus.
Skurðlækninum gramdist að vera
ónáðaður fyrir þessi auðvirðilegheit,
samt stjórnaði hann skapi sínu og
skrifaði recept og sagði:
„Sendið eins fljótt og hægt er í
næstu lyfjavei-zlun, það er mjög nauð-
synlegt". Bankastjórinn varð nálega
mállaus af skelfingu.
„Er það þá svona alvarlegt?"
„Já, því miður, annars eigum við
á hættu að sárið grói, áður en við
gerum nokkurn hlut fyrir það“.
MÁLSHÁTTUR
Fyrr skulu menn fá sér brauð en
brúði.
einhverjir að geta gefið frekari
upplýsingar, er það mjög vel
þegið.
María Pétursdóttir.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉI.AGS ÍSI.ANDS 19