Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Blaðsíða 15

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Blaðsíða 15
MINNING Steinunn Guðmundsdóttir hjúkrunarkona F. 15. júlí 1928 — d. 15. jan. 1967. Það var á fallegum haustdegi í byrjun septemberber árið 1955, að við hittumst í fyrsta sinn í Hjúkrunarskóla Islands, 14 ungar stúlkur alls staðar að af landinu. Allar horfðum við björtum augum á framtíðina, og allar áttum við sameiginlega eina heita ósk, að verða góðar og dugandi hjúkrunarkonur. Fæstar höfðu nokkurn tíma sézt áður, en áður en margar vikur liðu var þessi hópur orðin ein órjúfanleg heild, sem aldrei hefur rofnað, þó að leiðir hafi skilizt um tíma. Fyrst eftir námið dvöldu sumar erlend- is um tíma, og síðan hafa flestar stofnað heimili og eign- ast önnur áhugamál utan hj úkr- unarstarfsins, samt erum við alltaf eins og ein fjölskylda. Ut- an að komandi fólk skilur ekki alltaf orðið „hollsystir", sem svo oft er á vörum okkar, en þetta orð þýðir svo sannarlega að við erum eins og stór systra- hópur og böndin okkar á milli eru áreiðanlega eins sterk og hin svokölluðu blóðbönd. Nú er fyrsta stóra skarðið höggvið í systrahópinn. Hún Steina er ekki lengur á meðal okkar. Við vitum að veikindi hennar og Þjáningar á síðustu árum voru fthklu meiri en við gerðum okk- Ur í hugarlund, sífelldar vonir bata urðu aftur og aftur að eugu. Nú síðustu vikurnar veik von um bata með uppskurði, og Þó að reynsla okkar í svona til- ^llum hefði átt að leiða okkur 1 allan sannleika, þá héldum við samt dauðahaldi í þessa veiku v°n, og stöndum nú hljóðar og hryggar og trúum ekki að hún sé horfin. Við huggum okkur aðeins við, að hún er laus við all- ar þjáningar og er gengin í ríki Drottins síns, þar sem engar sorgir og sjúkdómar fyrirfinn- ast, og þar fær hún eflaust stórt hlutverk að vinna. Hún var elzt af okkur og hafði líka öðlast meiri reynslu í lífinu en allar hinar. Hún var aðeins rúmlega fermd, þegar hún missti móður sína og tók þá við heimili föður síns, annaðist það og sá um upp- eldi 4 yngri systkina sinna, yngsta systirin var aðeins smá- barn og þekkti því varla aðra móður. Það má nærri geta hve mikið er lagt á unglingstelpu, að taka að sér þetta hlutverk og það sýnir þó mest hve mikið er í slíka stúlku spunnið, sem veld- ur slíku hlutverki jafn vel og raun varð á. Hún var komin undir þrítugt, þegar hún gat farið að hugsa svolítið um sjálfa sig, en þá var barnahópurinn kominn vel ti! manns. Þá hóf hún starf við sjúkrahúsið á Akureyri sem gangastúlka. Henni varð strax ljóst að hjúkrun vildi hún gera að ævistarfi sínu. Hún hafði auðvitað ekki haft tíma til mik- illar skaólgöngu, og hafði því ekki gagnfræðapróf, sem til þarf að setjast í Hjúkrunarskólann, en hún settist í Iðnskólann á Akureyri og tók próf þaðan í þeim námsgreinum, sem til- skildar voru, og hóf hjúkrunar- nám eins og áður segir í sept- ember 1955. Síðan tóku við námsárin þrjú, en þau eru án efa beztu ár æv- innar í augum okkar allra. Vinnan var þroskandi og skemmtileg á hinum ýmsu deild- um Landspítalans og á sjúkra- húsum út á landi. Frístundir áttum við margar og ógleym- anlegar, við vorum kátar og lífs- glaðar og lífið lék við okkur. Við sungum og ortum vísur um allt milli himins og jarðar, m. a. um allar hollsysturnar. Steina var síðust í stafrófinu og henn- ar vísa byrjaði svona: Hér hefur farið fagurt fé, fremst þó teljum eina Þetta er ef til vill ekki mikill skáldskapur og framhald vís- unnar skiptir ekki máli, en hún sýnir bara örlítið brot af þeim hug og virðingu, sem við bár- um fyrir Steinu. Hún var okk- ar fremst á svo margan hátt. Hún var mjög dul og hlédræg daglega, en í okkar hóp var hún kát og glöð og gat hlegið dátt með okkur. Hún var mjög trúuð og sótti fundi í K.F.U.K. og Kristilegu félagi hjúkrunar- kvenna. Hún var elskuð af sjúkling- um sínum, enda var hún fram- úrskarandi vandvirk og skyldu- rækin við öll sín störf. Eftir að námi lauk tvístraðist hópurinn og Steina fór til Akureyrar, þar sem hún tók að sér mjög erfiða TÍMARIT HJÚKRUNARFÉI.AGS ÍSLANDS 13

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.