Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Side 13

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Side 13
Hvert er álit sjúklinganna? vel á að vera, að fylgjast með endurhæfingu sjúklingsins, að sjúkrahússvist lokinni, hvort sem hann þarfnast hælisvistar, eða vistar á öðrum stofnunum, en þar tekur sérþjálfað hjúkr- unarlið við honum, eða hann fer til sinna heimkynna, þar sem hann nýtur ekki stuðnings fag- lærðs fólks. Ýmsir erfiðleikar kunna að mæta honum, sem hann getur ekki glímt einn við, og hann þarf að leita ráða, sem er ekki svo auðvelt, þegar hann hverfur í fjöldann. Þótt endurhæfingin hefjist strax við komu sjúklingsins inn á sjúkrahúsið, er ekki víst að hann skilji eða kunni að not- færa sér hana þegar hann fer þaðan og á að standa óstuddur. En sá árangur, sem náðst hef- ur innan veggja sjúkrahússins, er of dýrkeyptur, til að hann nýtist ekki, og verði unninn fyr- ir gýg, vegna lélegrar þjónustu, og að ekki séu skilyrði fyrir hyggilegri og nauðsynlegri end- urhæfingu sjúklings eftir veru hans þar. Takmarkið á því að vera, að það beri að líta á endurhæfing- una sem einn þátt og eina heild í sjúkramálum og heilsugæzlu, og efla samvinnu sjúkrahús- anna og heilsuverndarinnar. Vera má, að í framtíðinni mætti vel svo fara, að með auk- inni heilsuvernd og vaxandi samvinnu hennar og sjúkrahús- anna, verði hægt að létta á að- sókn að sjúkrahúsunum. THlaga: Samvinna náist milli sjúkrahúsanna og heilsu- verndarinnar. málshættir Annað er gæfa og annað gjörvu- kiki. Augunum kennir um illur lesari. . Af gnægð hjartans mælir munnur- inn. Allt eykur ágjörnum áhyggju. Aldrei er svo leiður að ljúga að ekki verði ljúfur til að trúa. Eftir Brita Asplund, fil. kand. 1 Svíþjóð fylgjast nú hjúkr- unarkonur af miklum áhuga með þeim rannsóknum, sem nú fara fram við háskólana þar, fyrst og fremst í Stokkhólmi og í Uppsölum. Út frá þjóðfélags- legum fræðikenningum er nú rannsakað, hvaða augum sjúkl- ingar líta á sjúkdóm sinn og sjúkrahúsvistina. Samband sjúklinganna við lækna og ann- að starfslið er einnig rannsakað. Forustumaður þessara rann- sókna er doktor Joachim Israel, sem er docent í þjóðfélagsfræði við háskólann í Stokkhólmi, og nú stundar rannsóknir í læknis- fræðilegri félagsfræði (medi- cinsk sociologi) við Uppsalahá- skóla. Hluta af niðurstöðum rannsókna sinna hefur hann gefið út í bókinni, „Hur upp- lever patienten sjukhuset". Með rannsókninni, sem fram fór í samtalsformi, árið 1961, var reynt að komast að, hverjum augum sjúklingar iitu á sjúkra- húsið í heild. Var einkum haft í huga, annars vegar fyrir- komulag sjúkrahúsanna, eins og lýsingin, stærð herbergjanna, heilbrigðis- og hreinlætisfyrir- komulag, og hins vegar samband sjúklinganna og starfsliðsins. Að áliti doktor Israel, eru þess- ir tveir þættir háðir hvor öðr- um. Rannsóknin fór fram á tveim sjúkrahúsum í Stokk- hólmi. Alls voru 400 sjúklingar bæði karlar og konur spurðir. Sjúklingar voru af handlæknis- og lyf jadeildum og var geðheilsa þeirra með eðlilegum hætti. Til grundvallar var lagður aldur, kyn, stétt. í Svíþjóð má greina milli fyrstu stéttar, annarrar og þriðju, og fer flokkunin eftir tekjum og menntun einstakl- ingsins. — Fyrsta spurning- in, sem lögð var fyrir sjúkling- ana hljóðaði svo: Getið þér nefnt þrjú atriði, sem þér álítið nauðsynleg fyrir velferð sjúkl- inga á sjúkrahúsi? 41% álitu, að mikilvægasta atriðið væri framkoma og við- mót starfsliðsins og lækna, það er að segja, að framkoma þeirra væri vingjarnleg (einlæg), og að rætt væri við sjúklingana. I öðru sæti varð aðhlynning á sjúkrahúsinu. 8% sjúklinganna álitu að aðbúnaður á sjúkrahús- unum skipti mestu máli. Spurt var um, hversu margir meðsjúklingarnir ættu að vera. 43% álitu, að þeir mættu ekki vera fleiri en þrír, það er að segja fjögur rúm í herbergi. 23% vildu hafa einn með- sjúkling. Af þessum 23% voru flestir sjúklingar í fyrstu stétt (yfir- stétt). Þá var spurt um blöndun kynja á deildum. Aðeins Va hluti sjúklinganna voru því fylgjandi, aðallega yngri kynslóðin. Varðandi hið sálfræðilega viðmót og þá sér- staklega sambandið milli sjúkl- inga annars vegar og lækna og starfsliðs hins vegar, voru sjúkl- ingar spurðir hvort þeir hefðu verið kynntir fyrir herbergis- félögum sínum við komuna á TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 11

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.