Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Side 18
Rætt hefur veriS að nýju við land-
lækni, heilbrigðismálaráðherra og
fjármálaráðherra um að stofna em-
bætti hjúkrunarmálafulltrúa við heil-
brigðismálaráðuneytið, og bréf hefur
verið sent fjárveitinganefnd Alþingis
og bíðum við nú og væntum velvilja
og skilnings í þessu máli.
Þá var og bréf sent stjórn Lífeyr-
issjóðs hjúkrunarkvenna varðandi
réttindi hjúkrunarkvenna, er starfa
hjá öðrum aðilum en ríkis- og- bæjar-
stofnunum, til að greiða í sjóðinn,
en stjórnin samþykkti að æskilegt
væri að reyna að fá lagabreytingu á
Alþingi ef unnt kynni að vera, og
verður það gert síðar.
Þing og fulltrúamót S.S.N. var
haldið í Svíþjóð dagana 19—24 sept.
Sóttu 38 íslenzkar hjúkrunarkonur
mótið. Fyrir hönd Hjúkrunarféiags
íslands hauð fonnaður að halda næsta
„kongress“ á íslandi árið 1970, en
þá á, sem kunnugt er, S.S.N. hálfrar
aldar afmæli. Var þetta boð þegið
með þökkum.
Á fulltrúaráðsfundinum kom fram
eindregin áskorun frá einstökum er-
lendum nefndarfulltrúum og for-
manni H.F.Í. um að framvegis yrðu
íslenzkir nefndarfulltrúar virkir
þátttakendur í nefndarstörfum, en
ekki bara „korresponderandi", sem
hingað til. Verður þetta atriði tekið
til athugunar og reynt að ráða bót
á, eftir því sem fjárhagur og ástæð-
ur S.S.N. leyfa.
Það vakti sérstaka athygli, hvað
íslenzki hópurinn var fjölmennur að
þessu sinni, og kom fram að öllu leyti
félagi okkar til sóma. María Finns-
dóttir flutti erindi um það sem efst
er á baugi í hjúkrunarmálum á ís-
landi. Elín E. Stefánsson var fundar-
stjóri og Ingibjörg Ólafsdóttir, ritari
í umræðuhóp, sem tók til meðferðar
efnið „hjúkrun á sjúkrahúsdeildum"
(várd inom institutionen), en þar
hafði framsögu Alda Halldórsdóttir.
Var þeim öllum tekið mjög vel. Yms-
ar framákonur í hjúkrunarmálum á
Norðurlöndum höfðu orð á því, hvað
íslenzkar hjúkrunarkonur virtust
vera 'lifandi af áhuga, þar sem þær
hefðu mætt svo margar og sérstalc-
lega lilutfallslega úr yngri árgöng-
unum.
Á stjórnarfundi 6. okt. var sam-
þykkt að stofna fræðslunefnd (eða
fræðslumálanefnd) sem ætti að gegna
þvi hlutverki, að kynna í t. d. efri
framhaldsskólabekkjum hjúkrunar-
nám og framtíðarmöguleika í hjúkr-
unarstarfi. Einnig að hafa náið sam-
band við hjúkrunraskóla landsins og
auk þess að vera ráðgefandi aðili fyr-
ir hjúkrunarkonur um alla mögu-
leika til framhaldsmenntunar og að
skipuleggja fræðslunámsskeið, en í
framtíðinni að vinna að undirbúningi
og skipulagningu hjúkrunarfram-
haldsskóla. Ef að aðalfundur sam-
þykkir, verður kosið í þessa nefnd
á eftir.
Hér langar mig að skjóta inn smá-
frétt er ég las í blaðinu Nursing Out-
look, og mér þykir umhugsunarverð,
þótt e. t. v. eigi ekki heima í árs-
skrýslu. — I Toronto í Canada
er til hjúkrunarskóii, sá eini í
heiminum, er eingöngu er ætlaður
nemum á aldrinum 30—-50 ára, The
Quo Vadis School of Nursing, en hann
brautskráði fyrsta hópinn á þessu
ári, 28 hjúkrunarkonur, og eru 23
þeirra mæður og fimm ömmur. Sam-
tals eiga þær 59 börn. Skólastjórinn
segir að frá stofnun skólans hafi bor-
izt um 2000 umsóknir og fyrirspurnir
frá einstaklingum eða stofnunum í
Canada, Bandaríkjunum, frá Evrópu,
Afn'ku og Ástralíu.
Miðaldra konum er gefinn kostur
á að afla sér hjúkrunarmenntunar
og er hér um athyglisverða tilraun
að ræða, til að hjálpa til að bæta úr
skortinum á lærðum hjúkrunarkon-
um, en um leið brjóta niður gamla
fordóma um að aðeins æskufólk hafi
nægilega námsgetu og áhuga. Vafa-
laust munu margar þessar konur, að
námi loknu, skila margra ára hjúkr-
unarstarfi, e. t. v. jafn mörgum eða
jafnvel fleirum en ýmsar hjúkrun-
arkonur er lærðu ungar að árum, en
hafa horfið frá starfi snemma að
námi loknu, og þá ekki haft ástæður
til að hverfa aftur til starfa eða
brostið kjark til þess.
Gefin hafa verið út jólakort til
ágóða fyrir sumarhússjóð. Kortið
teiknaði Elínborg Ingólfsdóttir,
hjúkrunarkona. Upplagið 10.000 ein-
tök og kostar eintakið 10 kr. Er von-
andi, að hjúkrunarkonur sýni nú í
verki áhuga sinn á viðhaldi sumar-
hússins með því að kaupa og selja
þessi kort.
3 íslenzkar hjúkrunarkonur sækja
S.S.N. Forskningsseminar, sem hald-
ið verður í Kaupmannahöfn dagana
4. —17. des. næstkomandi, þær Ingi-
björg Magnúsdóttir, Gunnur Sæ-
mundsdóttir, María Finnsdóttir, en
stjórn H.F.f. hefur útnefnt Maríu
Finnsdóttur sem nefndarfulltrúa í
Forskningsnefnd S.S.N. og Sigurlínu
til vara.
Þing Bandalags kvenna var haldið
í Iðnó dagana 7.—10. nóvember og
sátu kjörnir fulltrúar þingið. Elín E.
Stefánsson, sem er nefndarfulltrúi í
heilbrigðisnefnd Bandalagsins, gerði
grein fyrir ýmsum tillögum heil-
brigðisnefndar, og verða þær vænt-
anlega birtar í dagblöðunum, en for-
maður bandalagsins og fullti'úar ósk-
uðu þess eindregið, að Elín flytti út-
varpserindi, á þeirra vegum, um til-
lögur nefndarinnar og heilbrigðismál
almennt.
Sumar nefndir hafa meira að stai fa
eitt ár, en minna annað. Aðrar nefnd-
ir hafa svo umfangsmikil verkefni,
að helzt má aldrei slakna á áhuga
og starfsgleði. Ein þeirra, sem yfir
40 ár hefur gegnt veigamiklu hlut-
verki, er ritnefndin okkar, en í hana
hafa valizt hæfir og stai'fsfúsir sjálf-
boðaliðar, sem hafa uppskorið lítið
annað en þakkir, góðar ábendingar
og stundum velviljaða gagnrýni. Enn
kemur blaðið út 4 sinnum á ári, eins
og fyrir 40 árum, er það hóf göngu
sína. Líður ekki senn að því, að nauð-
synlegt verði að hafa launaðan rit-
stjóra, og stefna að því um leið að
auka tölublöðin árlega? Að sjálfsögðu
er blaðið, að vissu leyti, fjárhagslega
þungur baggi, en félagsstarfsemin
er orðin umsvifamikil og félagið fjöl-
mennt, og stundum kemur það fyrir
að efni, sem komast þarf til stéttar-
innar allrar, og verður ekki gert
betur á annan hátt en með blaðinu,
berst stéttinni of seint vegna þess
hve tölublöðin eru fá á árinu og langt
á milli.
Á þessu ári var tekin upp sú ný-
breytni að hafa jólatrésskemmtun
fyrir börn hjúkrunarkvenna og kaffi-
sölu, til að afla tekna til að kosta
fulltrúa á vegum félagsins til stai'fa
í þeim samtökum, sem félagið er að-
ili að erlendis. Nefndimar tvær, sem
sáu um þessi atriði störfuðu með
miklum ágætum, þannig að jólatrés-
skemmtunin var mjög vel heppnuð
og nefndinni, sem um það sá, til sóma.
Sama er að segja um kaffisölunefnd-
ina, að hún leysti störf sín svo vel
af hendi, að það var til mikillar
ánægju fyrir alla, sem áttu kost á að
taka þátt í þeirri skemmtun, auk
þess að skila hagnaði, sem nam 70
þúsund krónum. Hefur þegar verið
ráðstafað af þeirri upphæð, sem hér
segir: greiddur ferðakostnaður og
uppihald fyrir Öldu Halldórsdóttur,
en eins og fyrr getur flutti hún aðal-
erindið fyrir okkur í Stokkhólmi og
greiddur verður ferðakostnaður og
uppihald fyrir tvö þátttakendur í
„Forskningsseminaret", Ingibjörgu
Magnúsdóttur og Gunni Sæmunds-
dóttur, en stjórnin hefur fengið vil-
yrði um ríkisstyrk fyrir ferðakostn-
aði Maríu Finnsdóttur.
Stjórnarfundir voru 14 en félags-
fundir 5 auk aðalfundar. Ég sé ekki
ástæðu til að rekja efni félagsfund-
anna, þ. s. gerð hefur verið grem
fyrir þeim í tímariti okkar.
Aðilar Hjúkrunarfélags íslands
16 TÍMARIT IIJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS