Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Page 3

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Page 3
FORSÍÐA: Sjúklingur grípur plássiö sem losnar, fer á ,,færiband“ sem skilar honum eftir efnum og ástæöum, betri eða verri út aftur. Allir hafa auövitaö gert ,,sitt besta" kerfiö býöur ekki upp á frekara dekur. 2. tölublaö-Júní 1983 59. árgangur ÚTGEFIÐ AF HJÚKRUNARFÉLAGI ÍSLANDS RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: INGIBJÓRG ÁRNADÓTTIR, SÍMI 15316 OG 41622. RITSTJÓRN: ÁSLAUG SIGURBJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 27417. JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR, SÍMI 22458. SIGRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR, SÍMI 44609. AUGLÝSINGAR OG BLAÐDREIFING: INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, SÍMI 15316 OG 41622. SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 15316 OG 21177. BLAÐIÐ KEMUR ÚT ÁRSFJÓRÐUNGSLEGA. ENDURPRENTUN BÖNNUÐ ÁN LEYFIS RITSTJÓRA. PRENTUN: PRENTSMIÐJAN HÓLAR HF. EFNISYFIRLIT Réttursjúklinga-mannréttindi 2 Breytt áreiti vegna sjúkdóma og sjúkrahúsvistar 7 Um heilbrigöisfræöslu 10 Læknisskoðanir og rannsóknir á ættleiddum börnum erlendis frá 11 Hvaö er framundan í kjarabaráttunni 12 Sjónarmið 13 Minning 14 Fréttir og tilkynningar 15 Ársskýrsla HFÍ1982 17 Ritstjórnarspjall Sjúkdómar hafa hrjáö mannkynið frá upphafi. Bar- áttan gegn þeim hefur veriö hörö og því mótaö ýmis atferli manna, sem bæöi fróðlegt og gagnlegt er aö kynnast. Á manninum hafa jafnframt veriö gerðar margbreytilegar rannsóknir til aö kanna hina ýmsu þætti sálar og líkama, þ. á. m. áhrif sjúkrahúsvistar á einstaklinginn. Þaö hefur því lengi verið Ijóst aö menn geta tekið og taka marga hugræna sjúkdóma í sjúkrahúsum og hafa þeir verið nefndir ,,spítalasálsýki“. Á þetta sér margar orsakir, en aðalástæöan oft verið talin „færiband- ið“, fólk verður ofurselt sjúkrahúskerfinu, sem hefur svo margar andlegar og líkamlegar breyting- ar í för með sér. Margir telja t. d. að sjúklingar samlagist ekki lífinu í sjúkrahúsunum. Þeir gefist bara upp fyrir ofureflinu og leggist í vægt þunglyndi. Þeir virðist taka öllu með jafnaðargeði, en raunin sé önnur. Þeir taki meðferðinni aðeins þegjandi, bælitilfinningarsínar og reyni að þóknast starfsliðinu. Á síðari árum hefur skilningur á fyrirbyggjandi að- gerðum gegn þessum neikvæðu áhrifum sjúkra- húsvistarinnar ásamt því hver hinn siðferðilegi réttur sjúklinga raunverulega er, aukist mjög. í þessu blaði fjallar Nanna Jónasdóttir hjúkrunar- fræðingur nánar um rétt sjúklinga - mannréttindi og hvað helst sé til úrbóta, því líf margra rennur í gegn um heilbrigðisstofnanir. í grein Nönnu segir m. a. að það séu ekki allir í þörf fyrir að leggjast í rúm, sem er hægt að stilla á ótal vegu, fá matinn upp að höku, vera nánast fyrrtir öllum hreyfimögu- leikum og settir í algjörlega ótímabært sjúklings- hlutverk. Sumir koma jafnvel beint úr vinnu, til dæmis til rannsókna og er því mest um vert að fá aðgang að sérfræðiþjónustu og meðferðarmögu- leikum þjónustudeildanna. Ennfremur skrifar Margrét Halldórsdóttir hjúkrun- arfræðingur um breytt áreiti vegna sjúkdóma og sjúkrahúsvistar. Hún hvetur hjúkrunarfræðinga til að vera vakandi fyrir þáttum sem auka þessar líkur, og þeim einkennum sem sjúklingar oft sýna. Þeir þurfa að nýta sér menntun sína á manninum, sem líffræðilegri og sálarlegri heild og vera vakandi fyrir öllum frávikum. HJÚKRUN */« - 59. árgangur 1

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.