Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Page 19
Ársskýrsla
Hjúkrunarfélags íslands
1982
Flutt á fulltrúafundi 4. og 5. maí 1983.
A stjórnarfundi 27. apríl 1983 var samþykkt að miða allar skýrslur við tímabilið milli fulltrúafunda.
Myrndir með skýrslunum eru teknar á fundinum.
Uppbygging ársskýrslu félagsins fyrir áriö
1982 verður með þeim hætti að ég mun taka
fyrir tölulegar upplýsingar ásamt ýmsum al-
mennum upplýsingum — nám — námsferðir
og styrki. Erlend samskipti. lífeyrissjóðinn.
ráðstefnur, fundi — lög, reglugerðir og mál í
brennidepli.
Sigríður Guðmundsdóttir 2. varaformaður
gerir grein fyrir kjaramálum. en þau settu
mestan svip á starfsemi félagsins s. I. ár.
María Finnsdóttir, fræðslustjóri gerir grein
fyrir fræðslu- og menntunarmálum.
Ingibjörg Arnadóttir, ritstjóri gerir grein
fyrir útgáfustarfsemi og Ástríður Tynes, for-
maður trúnaðarráðs fyrir starfsemi trúnað-
armanna HFÍ.
Ættu félagar því að fá góða heildarsýn yfir
starfsemi liðins árs.
Félagar í HFÍ 1. jan. 1982 .......1.845
Nýir félagar á árinu 1982:
Frá Hjúkrunarskóla fsl. 101
— Nýja hjúkrunarskólanum 1
— erlendum skóla 1 103
Á árinu létust eftirtaldir hjúkrunar-
fræðingar:
Katrín Pálsdóttir 11. apríl 1982.
Anna J. Bjarnason 15. október 1982.
Systir María Flavia 23. desember 1982.
Þorbjörg Friðriksdóttir 12. apríl 1983 4
Ursögn vegna búsetu erlendis 4
Félagar í HFÍ 1. janúar 1983 1.941
Aukafélagar, nemar í HSÍ 165
(5 luku námi í janúar 1983)
Heiðursfélagar íslenskir:
Anna Johnsen. Bjarney Samúelsdóttir, Sig-
ríður Eiríksdóttir, Sigríður Bachmann og
Þorbjörg Jónsdóttir.
Heiðursfélagar erlendir:
Margrethe Kruse, Danmörku, Maj-Lis
Juslin og Agnes Sinervo, Finnlandi.
1. janúar 1983 voru starfandi í hjúkrunar-
störfum á landinu 1269 félagar í HFÍ eða
65.73%. Auk þess voru 12 félagar starfandi
sem kennarar, Ijósmæður og meinatæknar.
Af þeim 1.269 voru 572 í fullu starfi og 697 í
hlutastarfi, meginhluti þeirrí í 60-80%
starfi, en 72 í minna en hálfu starfi. Félagar
HFÍ yfir 65 ára eru 144 og 31 þeirra var
starfandi. í framhaldsnámi innanlands, NHS
og HÍ voru 56, af þeim eru 20 taldir með
starfandi hjúkrunarfræðingum. Erlendis
voru 206 félagar, eða 10.62%, af þeim eru
a. m. k. 9 í framhaldsnámi. Þá eru ekki taldir
starfandi um áramót 317 félagar, (meðtaldir
12, sem ekki vinna hjúkrunarstörf) eða
16.33% allra félagsmanna.
Ef aðeins eru taldir félagar í HFÍ innan-
lands. sem eru 1735 að frátöldum:
þeim sem komnir eru yfir 65 ára og ekki
starfandil 13
þeim sem eru í framhaldsnámi og ekki starf-
andi 36
þeim sem starfa sem kennarar. meinatæknar
og ljósmæður 12
eru eftir 1574 félagar í HFÍ. Af þeim eru
1269 starfandi eða 80.62% og ekki taldir
starfandi 305, eða 19.38%.
Á árinu luku 9 hjúkrunarfræðingar fram-
haldsnámi frá Nýja hjúkrunarskólanum í
hjúrkuna á hand- og lyflækningadeildum.
í skólanum eru alls 54 hjúkrunarfræðingar í
framhaldsnámi, 9 í hand- og lyflækninga-
hjúkrun, þeir Ijúka námi í janúar 1983. 8 í
geðhjúkrun, 7 í öldrunarhjúkrun, 12 í
heilsuverndarnámi, 18 í svæfinga- skurð- og
gjörgæsluhjúkrun. Tveir hjúkrunarfræðingar
félagar í HFl eru í BS námi í Háskóla ís-
lands.
Þá voru hér starfandi um áramót 22 erlendir
hjúkrunarfræðingar og 6 sem ekki eru félag-
ar í HFÍ.
(Samkvæmt skrám frá vinnustöðum voru 43
BS hjúkrunarfræðingar í starfi um áramót).
Stjórn HFÍ var þannig skipuð frá fulltrúa-
fundi 1982:
Sigþrúður Ingimundardóttir, formaður (tók
við af fyrrverandi formanni Svanlaugu
Árnadóttur 1. september 1982). Sigrún
Oskarsdóttir. 1. varaformaður, Sigríður
Guðmundsdóttir, 2. varaformaður, Guðrún
M. Jónsdóttir, ritari, Sigríður Austmann
Jóhannsdóttir, Sigrún Ásta Pétursdóttir og
Stefanía Sigurjónsdóttir, meðstjórnendur.
Varastjórn:
Jóna Valg. Höskuldsdóttir, Kolbrún Ágústs-
dóttir, Ásthildur Einarsdóttir, Bergdís H.
Kristjánsdóttir, Sveinbjörg Einarsdóttir og
Guðný Bjarnadóttir.
Stjórnarmennirnir Guðrún M. Jónsdóttir rit-
ari og Sigríður Austmann Jóhannsdóttir,
létu af störfum. Við ritarastörfum tók Svein-
björg Einarsdóttir í september 1982 og Kol-
brún Ágústsdóttir tók sæti Sigríðar Aust-
mann Jóhannsdóttur í febrúar 1983.
Á árinu voru haldnir 23 stjórnarfundir.
Stjórnarfund sitja að jafnaði skrifstofustjóri,
ritstjóri Hjúkrunar, formaður trúnaðarráðs
og formaður, eða fulltrúi HNFÍ.
Á stjórnarfundi 7. október 1982 varákveðið
að fréttir frá stjórn yrðu fastur liður í mál-
gagni okkar, en fundagerðir stjórnarfunda
ekki sendar til formanna allra svæðisdeilda.
Stjórn félagsins stóð fyrir tveim félagsfund-
um á árinu auk tveggja daga fulltrúafundar
að venju.
Á fjölmennum félagsfundi í maí var kynntur
sérkjarasamningur félagsins við fjármálaráð-
herra og í september aðalkjarasamningar.
Þá stóð félagsstjórn fyrir aðalfundi trúnaðar-
manna og tveggja daga námskeiði fyrir trún-
aðarmenn eins og undanfarin ár. Auk þess
voru haldnir fjölmargir fundir á vinnustöð-
um víðs vegar, og þá aðallega í sambandi við
verkfallsboðun hjúkrunarfræðinga hjá
Reykjavíkurborg á fyrri hluta ársins og
vinnustöðvunina í maí. Reykjavíkurdeild
HJÚKRUN */•» - 59. árgangur 17