Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2003, Side 7
RITSTJÓ RASPJ ALL
Valgeröur Katrín Jónsdóttir
Viðbrögð við nýju útliti Tímarits hjúkrunarfræð-
inga hafa verið mjög góð og hafa margir hjúkrun-
arfræðingar haft samband og lýst ánægju með
efni og útlit síðasta tölublaðs. hað er mjög á-
nægjulegt fyrir ritstjóra og ritnefnd, margir hafa
sagt að þeir hafi lesið blaðið spjaldanna á milli og
því hvatning að halda áfram á sömu braut, sem
markast af ritstjórnarstefnu tímaritsins sem birt-
ist í þessu tölublaði. Eins og þar segir er ætiunin
að sameina í einu tímariti fræðigreinar og annað
efni sem hefur upplýsingagildi og skírskotun til
hjúkrunarfræðinga sem fagstéttar, svo sem ýmis-
legt varðandi félags- og réttindamál og heilbrigð-
ismál. Þó eru eðliiega ekki aliir á sama máli, sum-
ir vilja fleiri fræðigreinar, aðrir enn færri eins og
gengur. Meðal stéttarinnar eru margir góðir penn-
ar og ég hvet ykkur til að senda inn efni, einkum
hvað varðar umræðu um þau máiefni sem efst eru
á baugi innan heilbrigðisþjónustunnar og leggja
orð í belg, segja frá nýjungum í starfi sem aðrir
geta nýtt sér, athyglisverðum greinum og bókum.
Tímaritið er prentað á vistvænan pappír sem ekki
eingöngu eyðist í náttúrunni heldur hefur jafn-
framt góð áhrif á jarðveginn og ganga hjúkrunar-
fræðingar þar fram með góðu fordæmi.
í þessu tölublaði birtist fyrsta ritrýnda greinin á
árinu, hugmyndafræðilegar stefnur í hjúkrun eft-
ir Kristínu Björnsdóttur og grein um notkun tón-
listar við hjúkrun eftir þær Olöfu Kristjánsdóttur
og Guðrúnu Kristjánsdóttur. Þá er að finna kynn-
ingu á störfum hjúkrunarfræðinga á hjartadeild-
um og tengjast nokkrir pistlar þeirri sérgrein
hjúkrunar, hvernig hjúkrunarfræðingar sjá fyrir
sér að hægt sé að ná fram markmiðum heilbrigð-
isáætlunar til að draga úr hjartaáföllum, og
Astrós Sverrisdóttir fræðslufulltrúi Hjartaverndar
skrifar forvarnapistil.
í síðasta tölublaði sagði Sigþrúður Ingimundar-
dóttir frá reynslu sinni af því að greinast með
brjóstakrabba. I þessu tölublaði höldum við áfram
að fjalla um erfiðleika sem hjúkrunarfræðingar
geta lent í eins og aðrir. Fríða Froppé ritar grein
um vímuefnavanda kvenna og tekur viðtöl við tvo
hjúkrunarfræðinga sem hafa misnotað lyf og á-
fengi. Fram kemur að konur eru oft veikari en
karlar er þær leita aðstoðar og þeir sem vinna
innan heilbrigðiskerfisins eiga oft enn erfið-
ara með að leita aðstoðar en aðrir.
Valgeröur Katrín Hjúkrunarfræðingar vinna um heim allan og
Jónsdóttir pistillinn frá útlöndum hefur opnað glugga
út í heim. I þessu tölublaði fáum við fréttir af Kolbrúnu Krist-
jánsdóttur sem vinnur á sjúkrahúsi í Abu Dhabi í Sameinuðu
furstadæmunum. Mikill viðbúnaður hefur verið þar að undan-
förnu vegna bráða lungnabólgu eftir að fréttist af nokkrum til-
fellum í Kuwait og m.a. opnuð ný einangrunardeild með 7
rúmum. Þar sem annars staðar hefur verið fylgst með stríðinu
í írak í beinni útsendingu sjónvarps- og útvarpsstöðva og þeim
umbrotum sem eiga sér stað þar þessa dagana þvf í Abu Dhabi;
vinna m.a. írakar sem hafa áhyggjur af fjölskyldum sínum
heima fyrir. Ymislegt annað efni er í þessu tölublaði, m.a. við-
tal við Herdísi Sveinsdóttir formann sem fer nú til annarra
starfa og þakka ég henni samstarfið og óska góðs gengis í fram-
tíðinni.
Valgerður Katrín Jónsdóttir
valgerdur@hjukrun.is
BEDCO k MATHIESEN EHF
Bæjarhraun 10* sími 565 1000 • bedco@bedco.is
Veita sárinu
hreinsimeðferð í
allt að 24 klst.
Henta m.a. vel á;
• gömul/ ný sár
• fótasár
• sýkt sár
• dauðan vef
• fibrin í sári
• brunasár
Tímarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 79. árg. 2003