Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2003, Page 28
með hjartabilun. Hún segir að sjúldingum sé í raun skipt í
fjóra hópa, svo sem hjartabilunarsjúklinga, sjúklinga sem fá
kransæðastíflu, sjúklinga með hjartsláttartruflanir og svo
sjúklinga sem eru að fara í rannsóknir. Verið sé að vinna hug-
mynd að skipulagi þar sem hjúkrunarfræðingar á deildinni
flytjast á milli hópa og kynnast öllum sviðum hjúkrunarinnar
en geta orðið sérfræðingar í einhverju tilteknu og geta orðið
faglegir leiðtogar þar og það skipti mjög miklu máli þegar
horft sé til framtíðar.
Unnur segir að þær séu aðeins hyrjaðar á því að skipuleggja
starfið á þennan hátt og það gangi mjög vel. „Hér er t.d. hjúkr-
unarfræðingur sem sér um sjúklinga sem híða eftir að fara í
raflífeðlisfræðilega rannsókn, það er töluverður biðlisti eftir
þeirri rannsókn. hessi hjúkrunarlræðingur tók að sér að gera
mjög gott fræðsluefni og boðaði alla sem bíða eftir aðgerðinni
á fræðslufund. Þetta vakti milda ánægju hjá sjúklingunum,
þeir voru vel undirbúnir í staðinn fyrir að bíða heima eftir að-
gerð sem er búið að segja þeim óljóst frá.“
Rakel bætir við að legutíminn hafi styst mjög mikið og því
þurfi að huga vel að því hvernig fræðslan sé skipulögð og hvort
nægur tími sé fyrir sjúklinginn að fá þá vitneskju með heim
sem hann þurfi þegar hann útskrifast. Tíminn sé orðinn stutt-
ur og fólk gangi í gegnum mikla erfiðleika við innlögn og mót-
taki þar af leiðandi ekki fræðsluna, því sé mjög mikilvægt að
skipuleggja fræðsluna vel og að það sé stöðugt verið að bjóða
hana. Það sé einnig mjög mikilvægt að fólk viti hvert það á að
leita þegar það kemur heim. Unnur segir að verið sé að und-
irbúa að sjúklingar, sem fá fyrsta hjartaáfall, verði hoðaðir í
fræðsluviðtöl og svo verði metið hvort þeir þurfi að koma einu
sinni eða oftar. Það verði mjög spennandi að sjá hvernig þetta
verkefni þróast.
Rakel segir margt að gerast á þessum vettvangi sem sé spenn-
andi fyrir hjúkrunarfræðiqga sem séu að útskrifast. „Ef vel
tekst til að skipuleggja sjúklingahópana, sem ég ræddi um
áðan, færi hjúkrunarfræðingur t.d. fyrst í hóp þeirra sjúklinga
sem eru að koma inn í rannsóknir og síðan í annan hóp sem
krefst meiri þekkingar og færni og svo framvegis. Eftir það fer
hjúkrunarfræðingurinn að átta sig hvar hans áhugasvið liggur
og deila þekkingu sinni með öðrum. Það skiptir okkur miklu
máli að fá inn í þessa sérhæfingu faglega leiðtoga."
Hún segir þjónustuna þó takmarkast af fjármagni, hjartaþræð-
ingar séu að mestu í dagvinnu hakvaktir taki við eftir það, en
enn séu ekki bakvaktir um helgar og það sé ekki nógu gott.
„En við stefnum að því að manna helgarnar líka með haustinu
en okkur vantar rekstrarfé. Aðstaðan hefur batnað mjög með
tilkomu aukinnar hjartaþræðingarþjónustu og biðlisti eftir
hjartaaðgerðum liefur styst til muna,“ segir hún að lokum.
Hjúkrun 2004
Ráöstefna um rannsóknir í hjúkrun, Hjúkrun og
samfélagið, veröur haldin dagana 29.-30. apríl
2004 aö Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2,
Reykjavík.
• Ráðstefnan er haldin í samvinnu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, hjúkrunarfræðideildar Háskóla
íslands og hjúkrunarfræöibrautar heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri samkvæmt samkomulagi sem
gert var milli þessara aöila í ágúst 2002.
• Gestafyrirlesarar veröa tveir, einn erlendur og einn
innlendur.
• Frestur til að skila útdráttum er til 31. desember
2003. Auglýst verður eftir útdráttum í 3. tbl. Timarits
hjúkrunarfræöinga sem kemur út i júní og á vefsíðu
Félags íslenskra hjúkrunarfræöinga www.hjukrun.is
en þar verður sett upp sérstök síða fyrir ráðstefnuna.
• Sérstök áhersla veröur lögð á veggspjaldakynningu
auk fyrirlestra.
• Undirbúningsnefnd skipa Aðalbjörg J. Finnbogadóttir,
SóleyS. Bender, Páll Biering, Hildigunnur Svavarsdótt-
ir og Hafdis Skúladóttir.
• Samstarfsaðili er Congress Reykjavík - ráðstefnu-
þjónusta ehf.
Nánari upplýsingar veitir Aöalbjörg J. Finnbogadóttir,
hjúkrunarfræðingur, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga,
simi 540 6400, netfang: adalbjorg@hjukrun.is.
Brautskráning í hjúkrunarfræði frá Háskóla
íslands 22. febrúar 2003 og lokaverkefni
BS-próf í hjúkrunarfræði og lokaverkefni
Eygló Hannesdóttir: Zen og hjúkrun. Leiðtogahlutverkið
í Ijósi Zen búddisma.
Guðrún Jónina Guðjónsdóttir: Upplifun unglinga af dvöl
á geödeiid.
íris Dröfn Björnsdóttir: Kynlíf aldraðra. Þekking og viö-
horf.
Katrín Guðjónsdóttir: Að finna lifinu nýjan farveg. Um-
önnun á heimilum.
Stella Sharon Kiernan: Aö hafa mörg járn í eldinum.
Heilsufar kvenna. Forprófun mælitækis.
MS- próf í hjúkrunarfræöi og lokaverkefni
Ingibjörg Eiriksdóttir: Útkoma úr tviburameðgöngum og
fæðingum með tilliti til heilsufars mæðra og barna árin
1991-2000 á Landspítala-háskólasjúkrahúsi. (Leiðbein-
endur: Hildur Harðardóttir og Ólöf Ásta Ólafsdóttir).
Margrét I. Hallgrímsson: Útkoma spangar i eðlilegri
fæöingu: Áhrif stellingar og meðferðar. (Leiðbeinendur:
Þóra Steingrímsdóttir og Ólöf Ásta Ólafsdóttir).
Timarit islenskra hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 79. árg. 2003