Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2003, Qupperneq 37
UMFJOLLUN
Konur eru veikari er karlar
hjá konum og körlum. Nokkrir veigamiklir þætt-
ir eru þó ekki sambærilegir hjá kynjunum og
verða hér á eftir raktir nokkrir þeirra.
Líkamleg einkenni
Af líkamlegum einkennum, sem greina má fyrst
hjá alkóhólistum, eru þolaukning og frá-
hvarfseinkenni. Síðan koma ýmsir afleiddir sjúk-
dómar, eins og lifrarbólga, hár blóðþrýstingur,
vannæring og úttaugabólga, að ótöldum afleið-
ingum slysa.
Líkamlega eru konur verr af guði gerðar til að þola
áfengisneyslu en karlar. Þær þola áfengi verr,
verða fyrr drukknar og áfengismagn í blóði mælist
hærra hjá þeim en körlum þrátt fyrir sama
skammt áfengis á þyngdareiningu. Skýringa hefur
verið leitað í þeirri staðreynd að karlar hafa hlut-
fallslega meira vatnsmagn í líkamanum en konur,
en talið er að þarna spili einnig inn í að konur
hafa ekki eins mikið af hvötum í magavegg og
karlar og því eyðist minna af áfengi hjá konunum.
Hormónar eiga einnig hlut að máli og margar
konur tengja neyslumunstur sitt tíðahringnum.
Áfengismagn er t.d. hærra rétt fyrir tíðir og eiga
þær því erfiðara með að segja fyrir um áhrif og
vara sig á ofurölvun. Fyrirtíðaspenna hefur verið
tengd alkóhólisma, þ.e. að konum, sem hafa
fundið til fyrirtíðaspennu, sé hættara við alkó-
hólisma. Þá nota konur oftar ávanalyf samfara á-
fengisneyslu en karlar, samanber rannsóknarnið-
urstöðurnar sem getið er hér að ofan. Þetta er
ekki góð blanda og verða konur því oft illa
drukknar og óútreiknanlegar.
Einn líkamlegan þátt má nefna til viðbótar en það
er sú staðreynd að fitumagn er meira í líkama
kvenna. Líkami þeirra losar sig því hægar við ró-
andi ávanalyf sem setjast í fituvefina, sama má
segja um fleiri efni, t.d. hass. Efnin safnast því
upp í líkama þeirra. Fráhvarfseinkennin koma
síðar fram, eru lúmskari og standa lengur yfir. Þar
af leiðandi verða þær veikari en karlar.
Þá koma fylgikvillar mun fyrr fram hjá konum,
t.d. fitulifur, hár blóðþrýstingur og vannæring.
Slys eru algeng hjá konum sem misnota áfengi.
Félagsleg vandamál
„Hver skyldi vera að passa börnin hennar í kvöld?"
var spurt í hneykslan fyrir nokkrum árum í tilefni
af því að kona sat drukkin á bar í miðri viku. Um
jafndrukkinn karl, sem einnig á börn og sat á hin-
Tafla 1
Fráhvarfseinkeini (meöaltal einkunna)
Karlar Konur
1. dagur 26,1 32,3
2. dagur 19,3 25,3
3. dagur 15,9 21,3
4. dagur 14,3 20,1
5. dagur 12,3 18,9
6. dagur 10,7 18,6
7. dagur 10,0 18,1
Tafla 2 Ástæöa komu, skipt eftir kynjum
Karlar Konur Alls
Áfengi 45,3 42,7 44,6
Lyf 0,6 1,6 0,9
Fíkniefni 6,3 8,9 7,0
Áfengi og lyf 1,6 5,6 2,7
Áfengi og fíkniefni 44,4 37,9 42,6
Blandaö 1,3 0,8 U
Annað 0,8 0,2
Aöstandandi 0,3 1,6 0,7
Alls 100,0 100,0 100,0
Tafla 3 Dagdrykkjumunstur
Karlar Konur Alls
Dagdrykkja 24,9 31,6 26,7
Túradrykkja 29,8 16,7 26,3
Helgardrykkja 39,0 44,7 40,6
Annaö 6,2 7,0 6,4
Alls 99,9 100,0 100,0
Landspitali-háskólasjúkrahús, geðdeild
Ása Guömundsdóttir, sálfræðingur
um enda barsins, var aftur á móti sagt með vorkunn: ,Ætli fót-
boltaliðið hans hafi ekki verið að tapa enn einu sinni?“ Þetta at-
vik segir meira en mörg orð um afstöðu fólk til drukkinna
kvenna. Þær hafa átt undir högg að sækja. Það hefur ekki verið
talið kvenlegt, jafnvel siðlaust, af konu að drekka of mikið.
Körlum fyrirgefst meira og er mismunandi afstaða til kynferð-
ismála handhægust til skýringar. Drukknum körlum er talið til
tekna að komast yfir sem flestar konur og þeir stæra sig af því.
Konur, sem gera slíkt hið sama undir áhrifum áfengis, eru for-
dæmdar. Þær fá þann stimpil að vera lauslátar. Löngum hefur
það verið svo, að þegar konu er nauðgað og gerandinn er
drukkinn er það talið draga úr ábyrgð nauðgarans, en konan er
talin ábyrgari ef hún er drukkin.
Timarit islenskra hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 79. árg. 2003