Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2003, Blaðsíða 44
Guörún Árný Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur á HÞ
LOFT 2002
t
Ráöstefna um tóbaksvarnir á Islandi
Meöferöarúrræöi innan heilbrigöisþjónustunnar
Síðastliðið haust, 27.-28. september, var haldin opin ráð-
stefna um tóbaksvarnir á Islandi. Megininntak ráðstefn-
unnar var að rýna í meðferöarúrræði innan heilbrigðisþjón-
ustunnar. Sérstök áhersla var lögð á gildi þess að nýta sam-
talstækni til að stuðla að breytingum á lífsstíl. Samtals-
tæknin gæti í raun nýst á öllum sviðum heilbrigðisþjónust-
unnar. Þarna voru samankomnir sérfræðingar og áhugafólk
um tóbaksvarnir víða að úr heiminum, miðluðu þekkingu
sinni og ræddu framtíðina. Hvaða meöferðarform og að-
ferðir hafa nýst best til að fá fólk til að breyta um lífsstíl?
Hvar verða áherslur tóbaksvarna innan heilbrigðisþjónust-
unnar á næstu árum? Getum við í sameiningu stuðlað að
því að markmiö íslensku heilbrigöisáætlunarinnar varöandi
tóbaksnotkun til 2010 náist?
Ráðstefnan var haldin á Skútustöðum í Mývatnssveit og
nefndist „Loft 2002“. Um var að ræða samstarfsverkefni Tó-
baksvarnanefndar, Landlæknisembættisins, Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins, Lækna gegn tóbaki, Samtaka
hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra gegn tóbaki, Heilbrigðis-
stofnunar Þingeyinga og Ráðgjafar í reykbindindi - grænt
númer 8006030. Ymis fyrirtæki og stofnanir styrktu Loft
2002 en aðalstyrktaraðili var fyrirtækið GlaxoSmithKline.
Jóhanna S. Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur í Mývatnssveit
og ráðgjafi í reykbindindi, var framkvæmdastjóri Lofts 2002
fyrir hönd Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Fundarstjórar
voru Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir, hjúkrunarforstjóri HÞ, og
Sigurður Halldórsson, heilsugæslulæknir á Kópaskeri.
42 Tímarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 79. árg. 2003
I greininni hér á eftir verður byrjað á að gera
j grein fyrir inntaki fyrirlestranna á Lofti 2002,
niðurstöður pallborðsumræðna síðan kynntar lít-
] illega og að lokum verður framtíðarsýn þátttak-
enda á Lofti 2002 skoðuð.
Heilbrigðisáætlun íslands til 2010
Haukur Valdimarsson, aðstoðarlandlæknir, setti
ráðstefnuna. Hann fór m.a. yfir heilbrigðis-
áætlun Islendinga til 2010 þar sem eitt af sjö
forgangsverkefnum fjallar um að stefnt skuli að
því að ná hlutfalli reykingamanna niður fyrir
15% og hlutfalli barna og unglinga sem reykja
niður fyrir 5%. Hann fór síðan yfir leiðir, sem
bent er á í heilbrigðisáætluninni, til að ná þess-
um markmiðum:
1. Fræðsla og forvarnir sem beinast að börnum,
ungmennum og lullorðnum.
2. Eftirfylgni við banni á tóbaksauglýsingum,
niðurgreiðslu nikótínlyfja og verðstýring.
3. Betra aðgengi að meðferðarúrræðum fyrir
reykingasjúklinga.
4. Reyklaust umhverfi sem víðast.
5. Aukið eftirlit með sölu á tóbaki til unglinga.
6. Skipuleg söfnun og úrvinnsla á staðtölum um
tóbaksneyslu þjóðarinnar í heild og einstakra
þjóðfélagshópa.
Hann gat þess að reykingar væru helsta orsök
margra sjúkdóma og eitt stærsta heilbrigðis-