Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 2
Féll niður fjóra metra á Suðurlandsbraut Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um klukkan þrjú í gær um vinnuslys í nýbyggingu við Suðurlandsbraut. Maðurinn, sem er starfsmaður verktakans sem byggir á staðnum, féll niður fjóra metra og var í kjölfarið fluttur á slysadeild. Upplýsingar fást ekki frá Landspítalanum um líðan mannsins. Fréttablaðið/anton brink Veður Vestan gola eða kaldi og skýjað að mestu, en bjart syðst á landinu með hita allt að 17 stigum. Sums staðar dálítil væta um kvöldið. sjá síðu 24 Netverslun – lyfja.is Sumarið er tíminn Heilsutjútt 3.–14. maí Við bjóðum upp á frábær tilboð á ýmsum heilsuvörum. Kíktu við í næstu verslun Lyfju og vertu hress fyrir sumarið. 10–30% AFSLÁT TUR af völd um heilsuv örum Matargerð Jón Kristinsson, arkitekt og uppfinningamaður, fékk heldur óvænta afmælisgjöf síðastliðinn sunnudag, þegar hann fann 81 árs gamla rifsberjasultu sem móðir hans hafði lagað sumarið 1936. Jón er frum- kvöðull í sjálfbærri byggingarhönnun og hefur meðal annars staðið fyrir framleiðslu á andandi gluggum og lág- hitahúshitun. „Ég held að þetta hljóti að vera úr berjum af runnunum í garðinum okkar, annaðhvort af Stýrimanna- stíg 7 eða Ránargötu 21,“ segir Jón. Endurnýjun stendur yfir á húsinu við Ránargötu sem varð til þess að sultu- krukkan fannst í kjallara hússins. Í sömu geymslu fannst einnig niður- soðið kjöt frá 1944 sem Jón lagði sér þó ekki til munns. „Sultan var alveg ljómandi,“ segir Jón. Á sunnudag neytti hann hennar eintómrar. „Bara með teskeið. Þegar maður er með svona gersemi þá er maður ekkert að borða hana með brauði heldur vill bara finna bragðið af berjasafa þess tíma.“ Á mánudagsmorgun hrærði Jón sultuna hins vegar út í skyr, áður en hann flaug til Hollands þar sem hann er búsettur. Jón var hvítvoðungur þegar sultan var löguð, fæddur 7. maí 1936. Móðir hans, Ásta Jónsdóttir, var húsmóðir með ýmislegt á prjónunum, þar á meðal bókband og handavinnu. Þá rak hún heimagistingu fyrir ferða- menn en fjölskyldan segir hana þar með hafa verið frumkvöðul í þeim við- skiptum sem í dag fara fram í gegnum Airbnb. Hún var 38 ára gömul þegar sultan var löguð. Faðir Jóns var Kristinn Björnsson, yfirlæknir á sjúkrahúsi Hvíta bandsins við Skólavörðustíg. Jón segist ekki hafa haft neinar efa- semdir um að bragða sultuna þrátt fyrir að hún hafi verið búin til fyrir rúmum átta áratugum. Hann segir að ef matvælin geymist í rúmt ár sé nokkuð ljóst að þau þoli lengri geymslutíma. „Þegar ég fann ilminn af henni þá vissi ég að ég þurfti ekki að vera smeykur. Það var svo mikill sykur í kring að hún hafði alveg varðveist. Krukkunni var lokað með pappírsloki og kertavaxi dreypt yfir til að loftloka henni alveg. Þannig að sultan var alveg vernduð.“ snaeros@frettabladid.is Borðaði 81 árs gamla sultu á afmælisdaginn Sulta sem Ásta Jónsdóttir lagaði árið 1936 þegar sonur hennar var hvítvoðung- ur fannst um helgina. Ilmur sultunnar var góður og hún smakkaðist prýðilega. Í sömu geymslu fannst niðursoðið kjöt frá 1944 sem enginn lagði í að smakka. Þegar ég fann ilminn af henni þá vissi ég að ég þurfti ekki að vera smeykur. 1936 er löngu liðin tíð Vissulega hljómar 81 ár sem hár aldur fyrir rifsberjasultu enda um heila mannsævi að ræða. Til að setja þetta í samhengi er vert að minnast þess sem var að gerast um það leyti sem sultan var mölluð í eldhúsinu á Stýrimannastíg eða Ránargötu. l Adolf Hitler, kanslari Þýskalands, setur elleftu Ólympíuleikana í Berlín. l Játvarður VIII varð konungur Bretlands og sagði af sér síðar sama ár. l Tónverkið Pétur og úlfurinn var frumflutt. l Klassíska bókin Gone with the Wind var gefin út. Jón kristinsson sést hér bragða á sultunni góðu á afmælisdaginn sinn. Eins og sést er sultan merkt „ribshlaup 1936“. Mynd/kris kristinsson asía Ungir, vestrænir bakpoka- ferðalangar sjást æ oftar úti á götu eða á flugvöllum í Suðaustur-Asíu með betliskilti. Flestir sjást í Taí- landi, Kambódíu, Laos, Víetnam og Malasíu. Sumir biðja beinlínis um peninga til að geta haldið áfram ferðalagi sínu, aðrir leika á hljóðfæri eða selja myndir frá ferðum sínum. Heimamönnum finnst þetta ein- kennilegt og ögrandi hátterni og hafa dreift myndum af ferðalöng- unum á samfélagsmiðlum. Fátækir biðji  um peninga fyrir mat eða skólagjöldum barna sinna. Menn betli ekki fyrir einhverju sem litið er á sem lúxus.  – ibs Betla fyrir ferðalögunum Heimamönnum finnst þetta einkennilegt og ögrandi hátterni og hafa dreift mynd- um á samfélagsmiðlum. Náttúra Allt að sjö stiga jarðskjálfti gæti orðið austarlega á Suðurlands- undirlendi á næstu árum og allt að 6,5 stiga á Bláfjallasvæðinu, að mati Ragnars Stefánssonar jarðskjálfta- fræðings. Hann segir skjálftann við Árnes um helgina sýna að mikil spenna sé til staðar í Suðurlands- brotabeltinu. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. „Jarðskjálftinn segir okkur að á þessum stað er tiltölulega mikil spenna og hann segir okkur líka að sprungan er lifandi,“ segir Ragnar um Árnesskjálftann, sem mældist 4,5 stig. Suðurlandsskjálftinn árið 1896 átti upptök á sömu slóðum og stóri jarðskjálftinn 1912 er talinn hafa verið um sjö stig. „Á austasta hluta brotabeltisins, frá Landi og austur að Heklu og svo aftur vestar, vestur undir Bláfjöllum, þar ættu menn að vera vakandi og fara virkilega að skoða möguleika á stórum skjálfta þar og fylgjast með skorpunni. Þetta er líka svo nálægt Reykjavík. Þetta gæti orðið á þessu ári og á næstu fimm til tíu árum, – hvort sem maður er að tala um austast á Suðurlandsbrotabeltinu eða hérna á Bláfjallasvæðinu.“ – sa Skjálfti upp á sjö líklegur ragnar stefáns- son jarðeðlis- fræðingur 9 . M a í 2 0 1 7 Þ r I ð j u D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B L a ð I ð 0 9 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 0 -F D D 0 1 C D 0 -F C 9 4 1 C D 0 -F B 5 8 1 C D 0 -F A 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.