Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 22
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Lögin í ár eru mörg grípandi og bæði tilhlökkunarefni og heiður að deila sviði með jafn hæfileika- ríku fólki. Svala er fagmaður fram í fingurgóma og það er mikil nánd og góður andi í hópnum. Þessi keppni er oft óútreiknanleg en ég hef fulla trú á íslenska framlaginu. Svala er engri lík og ég er afar stolt af að vera hluti af hópnum hennar.“ Mikið annríki og fögnuður ríkir í Kænugarði en Anna Sigga segir ekki þörf á að vera partíljón til að standa vaktina. „Það væri samt erfiðara að vera heimakær, kvöldsvæf eða félagsfælin í þessum aðstæðum. Dagskráin er mjög þétt en skemmtileg og hver viðburður tækifæri til að öðlast faglega reynslu, skemmtilegar minningar og jafnvel eignast nýja vini,“ segir Anna Sigga sem upplifir Eurovision sem risastóra tónlistarhátíð þar sem margir lista- menn koma fram. „Fagmennskan er í hverju horni og gaman að fá innsýn í undirbúninginn, umfangið og þá miklu vinnu sem fer fram að tjaldabaki. Hér er mikið álag á aðalsöngvurunum og margir leggja ómælda vinnu í að kynna sig og fram- lag sitt daga, vikur og jafnvel mánuði fyrir keppni, ásamt því að leggja sig fram um að vera landi sínu og þjóð til sóma.“ Hún segir Kænugarð vera hrífandi, gróna og gullfallega borg, fulla af skemmtilega sýnilegum andstæðum. „Hér mætist gamalt og nýtt – Austur-Evrópa og Vesturlönd. Gest- gjafarnir í ár láta sig öryggi keppenda varða og vilja greinilega að fólk upplifi Kænugarð sem örugga borg. Hún er verulega stór og dreifð og gaman að skoða mismunandi hluta og læra um viðburðaríka sögu hennar. Úkraínu- menn bjóða upp á frábæran mat og fyrirtaks þjónustu, og fólkið er vina- legt og hjálpsamt þótt mörgum reynist það erfitt þar sem enska er fremur óalgeng hér.“ Nemendurnir hvetjandi Anna Sigga var sex ára þegar söng- ferillinn hófst. Þá tók hún þátt í söng- leiknum Salti söngbók en sá fágæti söngleikur hefur verið endurútgefinn á geisladisk. „Síðan hef ég sungið víða með kórum og hópum en einnig sem einsöngvari í brúðkaupum og jarðar- förum. Ég tók tvisvar þátt í Söng- keppni framhaldsskólanna, árin 2001 og 2002, hef verið bakrödd hjá Kaleo og Glowie og tekið þátt í mörgum tónleikum, eins og Jólatónleikum Fíladelfíu og Jólagestum Björgvins,“ segir Anna Sigga en það var einmitt á Jólagestum Björgvins sem Svala heillaðist af atriði Reykjavík Gospel Company, þar sem Anna Sigga söng undir stjórn Óskars Einarssonar. „Ég hef alltaf verið Eurovision- aðdáandi þótt ég geti ekki þulið upp sigurvegara eða topp 10 ákveðinna ára. Þetta er stærsta útsending tón- listarviðburðar í heimi og ég hef mjög gaman af keppninni. Ég vil endilega njóta hennar með öðrum í Euro- vision-partíi, svo lengi sem ég næ að hlusta á lögin. Íslensku kynnarnir eru líka alltaf svo þrusufyndnir og orðheppnir að keppnin verður enn skemmtilegri fyrir vikið.“ Anna Sigga er kennari í Austur- bæjarskóla og segir nemendur hafa sýnt mikinn áhuga og stuðning vegna ferðar hennar utan. „Börnin sýndu þessu mikinn skiln- ing og mörg eru dugleg að senda mér hvatningu á SnapChat. Þriggja vikna aðskilnaður er langur tími, svo ég tali nú ekki um í lok skólaárs, en þau eru samviskusamir vinnuþjarkar og í góðum, hæfum höndum. Ég hef því engar áhyggjur af þessum elskum.“ Á kyrrðarstundir í sána Eurovision er spennuþrunginn við- burður sem tekur á tilfinningaskalann og líkamlegt atgervi en Anna Sigga segist vel undirbúin. „Það er oft heilmikið álag í söngnum, að ég tali nú ekki um að fara í Eurovision sem einn af full- trúum lands og þjóðar. Ég reyni alltaf að vera vopnuð þakklæti og gleði fyrir hvern þátt í ferlinu, sérstaklega þegar togstreita á milli söngs, atvinnu og fjölskyldu veldur of miklu álagi. Það heldur huganum skýrum, fótunum á jörðinni og hjartanu á réttum stað.“ Til að undirbúa líkama og sál tók Anna Sigga mataræðið í gegn með hjálp vinkonu sinnar og söngs- ystur, Hrannar Sveinsdóttur í Crossfit Reykjavík. „Orkan, léttleikinn, sjálfsaginn og líðanin sem ég uppskar af því er stór- kostleg og gerði mig klára fyrir þessa mjög svo skemmtilegu törn. Þá kíki ég reglulega til Jóns Arnars á Kíró- praktorstofu Íslands. Ég hugsa mikið um heilsuna og les mér mikið til en er ekki alltaf jafn dugleg að framkvæma. Ég tek lýsi, omega 3, vítamín og AB- gerla og reyni að koma inn hreyfingu og teygjum þótt dagskráin sé stundum fáránlega þétt. Ég er ferlegur vökustaur og gleymi oft að drekka nóg vatn en það eru bara sóknarfæri í minni vegferð. Ég nota síðan teygjur, nuddrúllu og nuddbolta mikið fyrir þreytta vöðva.“ Til að hvíla sig á áreitinu í Eurovis- ion hefur bakraddahópurinn verið duglegur að taka söngæfingar inni á hótelherbergi og daglegar WOD- æfingar. „Mér finnst gott að fá næði og vera ein með sjálfri mér en það gefst lítill tími til þess hér. Ég hef þó skellt mér nokkrum sinnum í sána og átt þar kyrrðarstund,“ segir Anna Sigga. Snappar frá Kænugarði Anna Sigga kveðst ekki verða tapsár ef Ísland fer ekki áfram í kvöld. „Alls ekki. Öll þessi reynsla er ávinningur fyrir mig, hvernig sem fer. Mér finnst Svala þó eiga fullt erindi í úrslitin og þætti að sjálfsögðu svekkjandi ef Evrópa væri ekki sam- mála mér.“ En verður hún fegin því að koma heim eða reiknar hún með fráhvarfs- einkennum eftir keppnina í Kænu- garði? „Ég lifi mjög innihaldsríku lífi með eiginmanni og börnum svo það verður alltaf gott að komast í raunheima. Ég mun þó án efa lifa svolítið á minning- unum um þetta svakalega skemmti- lega ferðalag sem Söngvakeppnin heima og Eurovision hafa verið. Það verður ef til vill skrýtnast að minnka viðveruna á SnapChat en ég hef verið þar undir songvannasigga og snappað frá ferðinni. Það eru allir velkomnir að kíkja með mér í ferðalagið þar inn á og njóta þess sem eftir er af því.“ Framhald af forsíðu ➛ Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Íslenski Eurovision-hópurinn sem fór utan til Úkraínu. Anna Sigga er lengst til vinstri. MYND/DAVÍð LÚTHER Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900 www.yamaha.is UPPLIFÐU FRELSIÐ! UPPLIFÐU FRELSIÐ Á YAMAHA MÓTORHJÓLI Yamaha mótorhjólin eru þekkt fyrir gæði og einstaka hönnun. Við eigum örugglega rétta hjólið fyrir þig! TRACER 700 TRACER 900 WR450R XSR700XT1200Z SUPER TÉNÉRÉ YZF-R1M 2 KYNNINGARBLAð FÓLK 9 . m a Í 2 0 1 7 Þ R I ðJ U DAG U R 0 9 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 1 -1 6 8 0 1 C D 1 -1 5 4 4 1 C D 1 -1 4 0 8 1 C D 1 -1 2 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.