Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 8
S k i p u l ag S m ál Framkvæmdir sem standa nú yfir við Hafnartorgs- reitinn hafa töluverð raskandi áhrif á veitingaþjónustu við svæðið. „Við höfum fundið fyrir minnkandi traffík út af þessu. Þegar traffíkin minnkar er minna að gera,“ segir Guðrún Krist- mundsdóttir, forstjóri Bæjarins beztu. Guðrún ítrekar þó að þegar fram- kvæmdum ljúki verði svæðið mun skemmtilegra. „Þetta hefur náttúru- lega áhrif en við verðum mjög glöð þegar þetta verður búið því umhverf- ið verður miklu fallegra og skemmti- legra en það var fyrir.“ Framkvæmdirnar hafa staðið yfir í um ár og útlit er fyrir að þær muni standa yfir fram til ársloka 2018. „Þetta á eftir að versna. Þeir eiga eftir að flytja rafmagnsskúrinn sem er í horninu á annan stað og það verður rosa mikið rask sem fylgir því. Þetta er ekki búið enn, en við verðum bara að vera þolinmóð,“ segir Guðrún. Hún segir röskunina helst lýsa sér í verra aðgengi. „Það er mjög erfitt að komast þarna að. Það liggur eiginlega við að bara fuglinn fljúgandi komist þarna að.“ Borgin hefur ekki boðið pylsustaðnum bætur vegna fram- kvæmdanna, og ekki hefur Guðrún farið fram á það. Jakob Hörður Magnússon, eigandi veitingastaðarins Hornsins, segir framkvæmdirnar leggjast ágætlega í sig. „Þetta bara tekur svo langan tíma, þetta verður allt voða flott þegar þetta er búið, ég get ekki betur séð. Þetta hefur einhver áhrif, svona slæmt aðgengi, og mér finnst þetta ganga hægt. Ég get þó ekki beint sagt að það sé minni traffík út af þessu,“ segir Jakob. Hann telur bílastæðaskort í mið- bænum vera að verða mikið vanda- mál sem lítið sé talað um. „Ég hugsa að það geti líka haft áhrif, en ég finn ekki fyrir þessu enn þá, þetta er allt í lagi.“ Stóra vandamálið sem Hornið standi frammi fyrir sé, líkt og hjá Bæjarins beztu, skert aðgengi. „Það er skert aðgengi að veitingastaðnum mínum, en það er líka að verða svo erfitt fyrir menn að koma með vörur, ekki bara til mín heldur á öll veit- ingahúsin sem eru hérna í Kvosinni. Þetta er orðið svo þröngt allt þar sem þessar framkvæmdir eru. En ég held að menn bíti bara á jaxlinn og taki þessu með æðruleysi.“ saeunn@frettabladid.is   Veitingafólk í Kvosinni bítur á jaxlinn Framkvæmdir við Hafnartorg raska þjónustu á svæðinu töluvert. Forstjóri Bæjarins beztu segir minni traffík og minni sölu. Eigandi Hornsins segir framkvæmdir hafa áhrif á aðgengi og gangi hægt. Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf. verður haldinn miðvikudaginn 24. maí nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Dagskrá • Skýrsla stjórnar • Kynning á ársreikningi • Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun • Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins • Kosning tveggja stjórnarmanna og varamanna þeirra • Kjör endurskoðanda • Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins • Laun stjórnarmanna • Önnur mál  Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn. Fundargögn má nálgast á heimasíðu sjóðsins arionbanki.is/lsbi Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Búnaðarbanka Íslands H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 7- 13 43 kjaramál Lífeyrissjóður bænda er ósáttur við að fjármálaráðuneytið skuli vilja fella brott úr lögum ákvæði um að makar þeirra bænda sem voru sjóðs- félagar fyrir árið 1983, þegar einungis einn aðili á búinu gat greitt iðgjöld í sjóðinn, eigi rétt á lífeyri úr sjóðnum að þeim látnum. Þessi réttur maka bænda er tryggður í 6. grein laga um lífeyrissjóð bænda. Fjármálaráðherra hefur lagt fram lagafrumvarp um brottfall laga um líf- eyrissjóðinn, en markmiðið er að líf- eyrissjóðurinn starfi áfram á grundvelli almennra laga um lífeyrissjóði. Lífeyr- issjóður bænda telur að ef þessi 6. grein laganna yrði felld úr gildi væri verið að skerða réttindi maka bænda, sem eru í flestum tilfellum konur. Undir þennan skilning tekur Kvenréttinda- félag Íslands í umsögn sinni. „Stjórn Kvenréttindafélags Íslands lýsir yfir andstöðu sinni við slíkri skerðingu á réttindum kvenna í bændastétt,“ segir í umsögn sem Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir ritar nafn sitt við. – jhh Segja réttindi kvenna í bændastétt skert Framkvæmdirnar hafa staðið yfir í um ár. Útlit er fyrir að þær muni standa yfir fram til ársloka 2018. Fréttablaðið/Eyþór Þetta er orðið svo þröngt allt þar sem þessar framkvæmdir eru. En ég held að menn bíti bara á jaxlinn Jakob Hörður Magnússon, eigandi veitingastaðarins Hornið 9 . m a í 2 0 1 7 Þ r i Ð j u D a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 0 9 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 1 -2 0 6 0 1 C D 1 -1 F 2 4 1 C D 1 -1 D E 8 1 C D 1 -1 C A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.