Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 10
Frakkar fögnuðu langt fram á nótt eftir að ljóst varð á sunnudag að Emmanuel Macron yrði næsti for- seti Frakklands. Hann hlaut um 66 prósent gildra atkvæða en Marine LePen hlaut þriðjung þeirra. „Það var svakaleg stemning og þetta er greinilega mikill hátíðis- dagur fyrir Frakka,“ sagði Þórhildur Þorkelsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, sem var stödd í París um helgina. „Þeir taka þessu mjög alvarlega og eru mjög ástríðufullir,“ segir hún um stemninguna á meðal Frakka. Um 300 þúsund Frakkar hópuð- ust saman í Tuileries-garðinum, við Louvre, til að fagna nýkjörnum forseta. „Það var ótrúlegt að fylgjast með þessu,“ segir Þórhildur og bætir við að löggæslan hafi verið gríðar- leg. Þórhildur segist skynja að Frakkar uni niðurstöðunni mjög vel en ákveðinn hópur sé óhress með að hafa ekki getað kosið með hjart- anu heldur hafi þeir helst verið að hugsa um að halda Le Pen frá. „Sér- staklega vinstri mennirnir. Þeim finnst þeir ekki hafa átt neinn fram- bjóðanda sem þeir gátu kosið. Enda endurspeglast það í því að það var metfjöldi auðra atkvæða og kosn- ingaþátttakan var léleg,“ segir Þór- hildur. Hún segir fána Evrópusam- bandsins hafa verið áberandi eftir sigur Macrons og augljóst að þeir sem voru samankomnir á torginu litu á niðurstöðuna sem sigur fyrir þá sem vilja áframhaldandi aðild að Evrópusambandinu. Enda hafði Le Pen heitið því að efna til þjóð- aratkvæðagreiðslu um það hvort Frakkar ættu að vera áfram í ESB. Björn Bjarnason, formaður Varð- bergs – Samtaka um vestræna sam- vinnu og fyrrverandi ráðherra, hefur fylgst vel með kosningabar- áttunni. Hann segir niðurstöðuna styrkja Evrópusambandið í sessi en bendir á að Macron hafi ætlað Ósáttir við að geta ekki kosið með hjartanu „Ég er mjög ánægður með að hún tapaði. Hún hefði mátt tapa meiru,“ segir Björn Bjarnason um LePen. Fróðlegt verði að fylgjast með nýkjörnum forseta og flokki hans. Mikil stemning var í París á sunnudag. Macron veifaði til fjöldans. Nú þarf hann að undirbúa sig fyrir þingkosn- ingar í sumar. Áætlað er að um 300 þúsund manns hafi komið saman við Louvre á sunnudagskvöld. FréttabLaðið/EPa brigitte trogneux ætlar að taka virkan þátt í starfi eiginmanns síns, Emmanuels Macron. Hún fagnaði með honum á sunnudagskvöld. FréttabLaðið/EPa að vinna að breytingum á Evrópu- sambandinu til að stuðla að breyt- ingum í átt að meira lýðræði. Þessi fyrirheit hans séu ekki beinlínis fagnaðarefni fyrir þá sem fara með völdin í Evrópusambandinu. Það verði því spennandi að sjá hvernig mál þróast. „Þessi óánægja innan Evrópusambandsins með skort á lýðræðislegu umboði þeirra sem fara með æðstu stjórn er ekki bara bundin við Frakkland,“ segir Björn. Björn segist ánægður með að Macron hafði sigur gegn LePen. „Ég er mjög ánægður með að hún tapaði. Hún hefði mátt tapa meiru.“ Björn segir að það verði spenn- andi að fylgjast með Macron í fram- haldinu. „Það verður spennandi að sjá hvern hann velur sem for- sætisráðherraefni og hvernig hann myndar ríkisstjórn,“ segir hann. Þá verði spennandi að sjá hvernig þingið verður samsett eftir þing- kosningarnar í sumar. „Ég á ekki von á því að Le Pen fái mikið í þingkosningunum en það er ekki vitað hvað hann fær,“ segir Björn og bendir á að bæði Macron og flokkur hans séu óskrifað blað. „En hann skýrði auðvitað sín sjónarmið í kosningabaráttunni og var málefnalegur á meðan hún var eiginlega bara dónaleg, ef svo má segja.“ jonhakon@frettabladid.is Hann skýrði auð- vitað sín sjónarmið í kosningabaráttunni og var málefnalegur á meðan hún var eiginlega bara dónaleg, ef svo má segja Björn Bjarna- son, formaður Varðbergs 9 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R10 f R é t t I R ∙ f R é t t a B L a Ð I Ð 0 9 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 1 -0 C A 0 1 C D 1 -0 B 6 4 1 C D 1 -0 A 2 8 1 C D 1 -0 8 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.